• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Fantasy deildin

Fréttir út Fantasy deildinni

Sigurjón skrifaði þann 5. september, 2012 | 6 ummæli

Ljón á veginum…með bolta.

Það er rífandi gangur í Fantasy deildinni okkar en 191 einstaklingar hafa nú þegar skráð sig til leiks og 15 munu svo bætast í hópinn í næstu umferð. Við viljum endilega fá sem flesta til að taka þátt þannig að ef þið eruð ekki búin að skrá ykkur í deildina, endilega gerið það með því að nota númerið 45375-320165.

Robin van Persie var augljóslega besti leikmaður Man Utd í síðustu umferð með því að setja þrennu gegn Southampton. Fyrir það hlaut hann 15 stig, 12 stig fyrir mörkin og 3 bónus stig fyrir að vera besti leikmaður liðsins í leiknum. Hann fékk reyndar 2 stig í viðbót fyrir að spila 90 mínútur en þeim stigum tapaði hann fyrir að misnota vítið. Valencia og Ferdinand komu næstir í stigasöfnun, báðir með 5 stig, Nani var með 4 stig og aðrir leikmenn minna. Van Persie er nú atkvæðamestur United manna heilt yfir með 25 stig, Kagawa er næstur með 11 stig og svo koma þeir Rafael og Evra báðir með 10 stig.

Það voru tveir einstaklingar sem söfnuðu flestum stigunum þessa vikuna, báðir með 91 stig fyrir þriðju umferð. Það voru þeir Óskar Guðbrandsson með lið sitt RooneyVanPersie (11 sæti) og Sigurður Sigurjónsson með FC Grettir (13 sæti). Grunnurinn að góðum árangri þeirra var að hafa bæði Van Persie og Carols Tevez í framlínunni, og vera svo með annan þeirra sem fyrirliða.

Sá sem leiðir þó deildina okkar samanlagt eftir fyrstu 3 umferðirnar er Davíð Snær Ágústsson með lið sitt Basalt, en hann hefur hnoðað saman heil 262 stig sem er meðaltal upp á rúm 87 per umferð. Davíð var reyndar jafn Gunnlaugi Baldurssyni eftir síðustu umferð, en Gunnlaugur féll niður í 2 sætið eftir að hafa skorað 66 stig í 3 umferð á meðan Davíð Snær tók 78 stig.

Að lokum er afskaplega mikilvægt að taka það fram að af meðlimum ritstjórnar Rauðu Djöflanna er undirritaður efstur á töflunni, eða í 17 sæti. Þó svo ég hafi nú ekki miklar áhyggjur af samkeppninni þar á bæ, þá verð ég að nefna að Björn Friðgeir er svo sem ekki langt undan, aðeins þremur stigum.

Hér má sjá efstu tíu liðin í deildinni að loknum þremur umferðum:

 

6
Leikmenn Meistaradeild Evrópu

Meistaradeildarhópurinn

Magnús Þór skrifaði þann 4. september, 2012 | 13 ummæli

Markmenn:  1. David de Gea, 13. Anders Lindegaard, 50. Sam Johnstone

Varnarmenn: 2. Rafael, 3. Patrice Evra, 4. Phil Jones, 5. Rio Ferdinand. 6. Jonny Evans, 12. Chris Smalling, 15. Nemanja Vidic
28. Alexander Büttner, 36. Marnick Vermijl, 38. Michael Keane

Miðjumenn: 7. Antonio Valencia, 8. Anderson, 11. Ryan Giggs, 16. Michael Carrick, 17. Nani, 18. Ashley Young, 22. Paul Scholes,
23. Tom Cleverley, 24. Darren Fletcher, 25. Nick Powell, 34. Larnell Cole, 35. Jesse Lingaard, 46. Ryan Tunnicliffe

Sóknarmenn: 10. Wayne Rooney, 14. Javier Hernández, 19. Danny Welbeck, 20. Robin van Persie, 26. Shinji Kagawa, 27. Federico Macheda, 41. Joshua King

Skáletraðir eru svonefndir b-lista leikmenn, sem eru leikmenn fæddir eftir 1.janúar 1991 og hafa verið „eligable“ til að spila fyrir klúbbinn síðustu 2 ár. Sem þýðir að fleiri leikmenn en þeir sem eru á þessum lista munu koma til greina til að spila fyrir okkur í Meistaradeildinni, t.d. Scott Wootton, Robbie Brady o.fl sem komu við sögu á undirbúningstímabilinu.

13
Opin umræða

Fréttir í landsleikjahléi

Björn Friðgeir skrifaði þann 4. september, 2012 | 6 ummæli

Íslendingar vona að King slái ekki of í gegn á föstudaginn

Það getur hafa verið misráðið að opna svona rétt fyrir landsleikjahlé, en það verður að venjast eins og annað.

Lítið að frétta af okkar mönnum, engin opin bréf og svona þannig að við minnumst á það helst að Joshua King, leikmaður varaliðsins er í Noregshópnum sem kemur til Íslands í vikunni. King hefur verið á láni hér og þar, var hjá Borussia Mönchengladbach og Hull í fyrra, spilaði lítið hjá ‘Gladbach en nokkuð hjá Hull, helst á kantinum og skv viðtali við hann í Verdens Gang í morgun tekur hann það fram fyrir að spila frammi. Þetta val King í landsliðið kemur á óvart í Noregi en Egil Olsen er að yngja allverulega  upp í landsliðinu.

Dimitar Berbatov hefur kvatt United en hann kvaddi ekki Sir Alex, og lætur hafa eftir sér að hann hafi misst virðingu að hluta fyrir Sir Alex eftir að hann var ekki látinn spila en samt sífellt sagt að hann væri mikilvægur leikmaður og mætti ekki fara. Að vissu leyti skiljanlegt viðhorf, og líklega rétt sem Dimitar segir að hann hefði átt að fara eftir að hafa verið settur út úr hópnum fyrir úrslitaleikinn í Meistaradeildinni í fyrravor.

Annars er orðið laust.

6
Opin umræða Slúður

Ronaldo heim? – Opin umræða

Björn Friðgeir skrifaði þann 3. september, 2012 | 46 ummæli

Ronaldo fagnaði ekki 150 Real markinu

Framundan er tveggja vikna landsleikjahlé þannig að vonandi verða litlar fréttir af United mönnum á meðan, eina sem við viljum er að allir komist meiðslalausir í gegnum þetta. En við munum flytja fréttir af gengi okkar manna, sem og aðrar greinar á hverjum degi til að reyna að stytta okkur öllum stundir.

Meginslúðrið í gærkvöld kom hins vegar frá Madid þar sem hinn gamli vinur okkar, Cristiano Ronaldo, fagnaði hvorugu marki sínu í leik Real og skv fregnum á hann að hafa grátið í klefanum eftir leik. Eftir leikinn sagði hann fréttamönnum að hann væri leiður og það væri atvinnutengt frekar en einkamál og þess vegna gæti hann ekki fagnað mörkum. Einni sagði hann að klúbburinn (Real Madrid) vissi hvers vegna hann væri leiður.

Það er ekki að sökum að spyrja að slúðurmaskínur hafa farið í kraftdrif við þetta að velta fyrir sér hvort Ronaldo sé á leiðinni í burtu frá Madrid. Tímasetningin gæti auðvitað ekki verið verri, tveim dögum eftir að lokað var á leikmannaskipti. Ég held að það hljóti hver einasti United stuðningsmaður að láta sig dreyma um að Ronaldo komi aftur heim, og þá er ég ekki að tala um Madeira. Köld rökhyggja segir okkur þó að þetta séu líklegast bara draumar, jafnvel þó þetta sé það alvarleg óánægja hjá honum til að hann fari frá Real. Ólíklegt er að við getum reitt fram kaupverðið fyrir hann, og líklega ekki nógu há laun. Enda hafa menn sem velt hafa upp mögulegum næsta áfangastað hans velt upp tveim möguleikum: PSG og, og Cantona forði því, Manchester City.

En þetta er opin umræða, ræðið Ronaldo eða annað slúður helgarinnar (vinsamlega haldið umræðu um leikinn í gær í þræðinum við leikskýrsluna)

Efnisorð: Cristiano Ronaldo 46
Enska úrvalsdeildin

Southampton 2:3 Manchester United

Björn Friðgeir skrifaði þann 2. september, 2012 | 31 ummæli

Það væri ekki United ef ekki væri einhver óvænt í uppstillingunni. Ferdinand kominn aftur og þeir Vidic léku saman í fyrsta skipti síðan í desember.

Welbeck inn á kantinn kom ekki sérstaklega á óvart, en það sem kom á óvart var að de Gea var refsað fyrir mistökin sem leiddu til seinna marks Fulham um daginn, mistök sem voru reyndar klárt sóknarbrot fannst mér.

Lindegaard

Rafael Ferdinand Vidic Evra

Cleverley Carrick

Valencia Kagawa Welbeck

Van Persie

United byrjuðu mjög vel og sóttu frá fyrstu mínútu, Van Persie fékk frábæra sendingu frá Carrick sem hann þurfti að taka á lofti og skaut framhjá, en annars sköpuðu United menn ekki færi fyrstu 10 mínúturnar, þrátt fyrir gott spil. Southampton kom síðan betur inn í leikinn, náðu upp góðu spili og skoruðu á 16. mínútu, náðu boltanum af Kagawa, spiluðu vel upp og náðu góðri fyrirgjöf yfir á fjærstöng þar sem Lambert stökk hátt yfir Rafael og skallaði inn, óverjandi fyrir Lindegaard. United komst strax aftur inn í leikinn og jafnaði nákvæmlega 7 mínútum eftir mark Southampton, og ekki alveg ólíkt mark. Góð sókn United endaði úti á kanti hjá Valencia, falleg sending þvert yfir á fjærstöng, Clyne bakvörður Southampton féll við og Van Persie var alveg frír og hafði nægan tíma til að taka boltann niður og smella honum í netið af stuttu færi.

Eftir markið sveiflaðist leikurinn fram og til baka, hvortu lið var að skapa sér mikið og Southampton var síst minna með boltann. Þó var alltaf meiri ógnun í leik United. Kagawa var út um allt, Welbeck var meira inn á miðjunni en búast mætti við m.v. liðsuppstillinguna og Carrick og Cleverly stjórnuðu á miðjunni. Það var þó eins og vantaði að stöðva Southampton betur á miðjunni. Besta færið það sem eftir var hálfleiksins kom þegar fimm mínútur voru eftir Evra fékk frían skalla á fjærstöng en Davis varði nokkuð vel. Rétt fyrir hálfleik kom enn ein sendingin frá Carrick inn á Van Persie, en hann vantaði Berbatouchið og fékk hann í legghlífina í staðinn og missti hann frá sér.

1-1 í hálfleik og ekki ósanngjarnt. United voru jú að spila betur en Southampton gaf litið eftir og átti of góða kafla. Einföld spilamennska hjá þeim var að gefa árangur. Hjá United vantaði helst að taka aðeins betur á þeim á miðjunni og hleypa þeim ekki eins innað teig. Vinstri kanturinn hjá okkur var ósýnilegur, Welbeck of langt inni á miðjunni og þó Evra kæmi upp var það ekki nóg til að gefa möguleika þeim megin. Valencia, Kagawa og Van Persie voru að spila mjög vel saman en vantaði að komast í gegnum vörnina.

Í seinni hálfleik byrjuðu United ekki mjög vel en Kagawa átti þó gott skot rétt framhjá og síðan fékk Van Persie góða fyrirgjöf í miðjum teignum ens kaut framhjá.

Southampton komst síðan aftur yfir á 55. mínútu. Sóttu upp, fyrirgjöfin kom há inn á teiginn og Evra rann beint á hausinn þannig að Schneiderlin hafði allan tímann í heiminum til að skalla framhjá Lindegaard. Skelfileg mistök Evra.

Þrem mínútum síðar komst Puncheon í gott færi þegar hann fór auðveldlega framhjá Evra en Lindegaard varði vel í horn. Southampton voru bara miklu meira með boltann eftir þetta og komust hvað eftir annað í sókn.

Skiptingar komu á 61. mínútu, Scholes og Nani inn fyrir Cleverly og Kagawa. Hefði nú frekar tekið Welbeck útaf. Rétt á eftir komst Van Persie í færi eftir góða sendingu Scholes, en Davis varði vel og enginn var í annarri bylgjunni.

Breytingarnar virtust samt lítið gera fyrir United fyrr en við fengum víti á 68.mínútu. Nani komst inn í sendingu, lék upp í teig, lagði fyrir á Van Persie sem var strauaður niður. Van Persie tók víti, vippaði til annarar hliðar og Davis varði. Arfaslakt víti og leit enn ver út í endursýningu, Davis fór snemma af stað en Van Persie setti hann samt í hornið.

Síðasta skiptingin komi rétt eftir vítið, Hernandez inn fyrir Welbeck og United skipti alveg yfir í 4-4-2. Southampton bakkaði alveg aftur í teig og leyfði United að hafa boltann og reyndu síðan skyndisóknir á móti. Það virtist ekkert vera að gerast fyrr en á 87. mínútu þegar Rafael kom upp, gaf fyrir, Ferdinand var enn að hanga frammi eftir horn rétt áður, skallaði að marki og Van Persie setti hann inn af 3 metrum. Southampton setti í yfirgír í 2 mínútur, pressaði mikið en þegar 91 mínúta og 10 sekúndur voru liðnar tók Nani horn frá vinstri og Van Persie var gjörsamlega óvaldaður á markteig við nærstöng og hamarskallaði inn.

Það þarf ekkert að fara fögrum orðum um þetta. Þetta var hreinn og klár þjófnaður framkvæmdur af stórfenglegum striker. Ekki minna ótrúlegt fyrir það að við skoruðum úr horni. Samspilið var skelfilegt og baráttan á miðjunni tapaðist algerlega. Það er ekki nokkur leið að Evra eigi skilið að vera í liðinu í næsta leik og það eru verulegar áhyggjur að við getum ekki stöðvað sóknir framar á vellinum.

Southampton spilaði þennan leik mjög vel, setti upp strategíu sem gaf ríkulega af sér þangað til Van Persie ákvað að taka þetta að sér.

Maður leiksins? Robin van Persie. Takk. Þó hann hafi sagt að Paul Scholes hafi verið það. Sýndi nákvæmlega hvers vegna við keyptum hann.

Efnisorð: Leikskýrslur Robin van Persie Southampton 31
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 440
  • Page 441
  • Page 442
  • Page 443
  • Page 444
  • Interim pages omitted …
  • Page 446
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress