• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Alexis Sanchez

Enska úrvalsdeildin

Loksins loksins var farið á leik á Old Trafford – Ferðasaga

Runólfur Trausti skrifaði þann 5. apríl, 2018 | Engin ummæli

Fyrir páskahelgina sem var að enda þá hafði undirritaður aðeins séð Manchester United spila einu sinni og var það í Lundúnum er liðið vann Fulham 1-0 þökk sé marki Wayne Rooney eftir stórbrotnar markvörslur David De Gea. Einnig hafði hann aðeins einu sinni komið á Old Trafford en það var í skoðunarferð sumarið 2005. Því var breytt um páskana 2018.

Leiðin á Old Trafford

Það var eflaust í september á síðasta ári þegar einn af ritsjórum síðunnar ákvað ásamt þremur félögum sínum að nú loksins væri kominn tími til að sjá Manchester United spila á Old Trafford. Eflaust hefðum við farið fyrr í vetur en undirritaður ásamt einum af félögunum ákváðu að reyna finna helgi þar sem þeir gætu séð sín lið í neðri deildunum á Englandi spila líka. Þannig var það ákveðið að páskahelgin 2018 yrði yrði fyrir valinu. Stefnt var að því að sjá Peterborough United heimsækja Rotherham United á föstudeginum langa, á laugardeginum var förinni heitið í Leikhús Draumanna að sjá heimamenn etja kappi við Swansea City og að lokum var farið til Lundúna að sjá Dagenham&Redbridge keppa við lið sem ég einfaldlega man ekki hvað heitir. Lesa meira

Efnisorð: Alexis Sanchez Ferðasaga Old Trafford Romelu Lukaku Swansea City 0
Djöflavarpið

Djöflavarpið 50.þáttur – Er José Mourinho algjörlega búinn að missa það?

Magnús Þór skrifaði þann 22. mars, 2018 | 11 ummæli

Maggi, Tryggvi, Björn og Halldór settust niður  og fórum yfir leikina frá sigrinum á Chelsea. Einnig voru mál þeirra Luke Shaw og Alexis Sánchez tekin fyrir. José Mourinho hefur verið mikið á milli  tannanna hjá aðdáendum United og létum við spurningarnar ykkar ráða ferðinni þegar hann var  ræddur.

PS: Þessi þáttur var tekinn upp mínútum áður en fréttir bárust af stofnun atvinnukvennaliði Manchester United og það verður klárlega tekið fyrir í næsta þætti. Lesa meira

Efnisorð: Alexis Sanchez Brighton Crystal Palace Jose Mourinho Liverpool Luke Shaw Sevilla Spurningar 11
Pistlar

Er José að missa það?

Björn Friðgeir skrifaði þann 17. mars, 2018 | 15 ummæli

Það er leikur í kvöld og upphitunin er hér, en umræðan snúst núna alfarið um José Mourinho.

Embed from Getty Images

Eftir leikinn á þriðjudaginn á José að hafa komið inn í klefa þar sem sumir leikmenn voru hreinlega grátandi og sagðist ætla að taka á sig tapið: „When we win, we all win, when we lose, I lose alone“. Þetta kann að einhverju leyti skýra frammistöðu hans á blaðamannafundinum eftir leikinn þar sem hann talaði meðal annars um þau tvö skipti sem hann sem stjóri hafði slegið út United í meisteradeildinni, nokkuð sem þótti frekar dónalegt og ekki sæmandi manni sem núna væri stjóri United og ætti að koma þeim áfram. En eitt var víst, eftir leikinn var fókusinn fyrst og fremst á Mourinho, en ekki leikmönnum. Rætt var um að Mourinho hefði lagt upp með allt of varnarsinnað taktík, nokkuð sem er ljóst, en lítið talað um að leikmenn hefðu ekki staðið sig vel, þó sumir, eins og Lukaku segðu beint og óbeint að svo hefði verið raunin. Lesa meira

Efnisorð: Alexis Sanchez Carlo Ancelotti Ed Woodward Jose Mourinho Luis Enrique Maurico Pochettino Romelu Lukaku Sir Alex Ferguson 15
Enska bikarkeppnin

Huddersfield 0:2 United

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 17. febrúar, 2018 | 18 ummæli

Í kvöld mætti Manchester United til leiks í 5. umferð FA-bikarsins á John Smith‘s Stadium þar sem heimamenn í Huddersfield tóku á móti okkar mönnum. Í síðustu 13 viðureignum liðanna hafði Huddersfield einungis tekist að knýja fram sigur einu sinni gegn United en sá leikur var einmitt deildarleikur fyrr á leiktíðinni á sama velli. José Mourinho stillti upp mikið breyttu liði frá síðasta leik en fastaleikmenn eins og De Gea og Pogba voru hvergi sjáanlegir. Í stað þeirra fengu Carrick og Romero pláss í byrjunarliðinu en það var ánægjulegt að sjá ungu strákana í leimannahópnum í kvöld, þá Castro Pereira, Angel Gomes og Ethan Hamilton sem voru á bekknum auk þess að Scott McTominay byrjaði á miðjunni. Lesa meira

Efnisorð: Alexis Sanchez Huddersfield Town Juan Mata Romelu Lukaku VAR 18
Djöflavarpið

Djöflavarpið 47.þáttur

Magnús Þór skrifaði þann 4. febrúar, 2018 | 1 ummæli

Maggi, Björn og Halldór settust niður  og fóru yfir síðustu leiki og þá aðallega Tottenham og Huddersfield. Einnig tókum við fyrir frammistöður og framtíðarstöðu Alexis Sánchez og sitthvað fleira.

Endilega takið þátt í athugasemdum

Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan auk þess sem hægt er að hala honum niður í gegnum spilarann eða hér að neðan. Jafnframt má gerast áskrifandi að þættinum í gegnum ýmis podkast-forrit: Lesa meira

Efnisorð: Alexis Sanchez Anthony Martial Ashley Young Bryan Robson Henrikh Mkhitaryan Jonny Evans Jose Mourinho Juan Mata Marcus Rashford Nemanja Vidic Paul Pogba Rafael Rio Ferdinand Romelu Lukaku Roy Keane 1
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress