• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Darren Fletcher

Enska úrvalsdeildin

Return Of the Fletch

Runólfur Trausti skrifaði þann 1. maí, 2015 | 8 ummæli

Góðan daginn dömur mínar og herrar.
Á morgun klukkan 16:30 mun Darren Fletcher, ásamt Tony Pulis, koma með lærisveina sína í W.B.A í heimsókn á Old Trafford. Eftir tvo tapleiki í röð þurfa okkar menn að rífa sig upp af rassgatinu og morgundagurinn er tilvalinn til þess.

View image | gettyimages.com

Mótherjinn
Tony Pulis og liðsmenn hans í W.B.A sitja sjö stigum fyrir ofan fallsæti með 37 stig. Samkvæmt gömlu klisjunni þá þurfa þeir því þrjú stig í viðbót til að gulltryggja veru sína í deildinni. Annað árið í röð hefur Pulis tekið við liði sem er með buxurnar á hælunum en í fyrra tók hann við Crystal Palace sem voru svo gott sem dauðadæmdir. Hann bjargaði þeim frá falli og er að gera það sama með W.B.A í ár. Tony Pulis er vissulega ekki einn þarna en í janúar fékk hann Darren Fletcher til liðs við sig. Pulis var ekki lengi að gera okkar mann að fyrirliða og er hann vægast sagt að ganga í gegnum endurnýjun lífdaga en Fletcher hefur spilað alla leiki W.B.A síðan hann flutti sig um set. Lesa meira

Efnisorð: Darren Fletcher Upphitun West Bromwich Albion 8
Æfingaleikir

Manchester United 2:1 Valencia

Björn Friðgeir skrifaði þann 13. ágúst, 2014 | 9 ummæli

Frá fréttaritara okkar á Old Trafford
#453533808 / gettyimages.com

Old Trafford var nokkuð þéttsetinn í gærkvöld þegar United tók á móti Valencia í fyrsta leik Louis van Gaal á Old Trafford sem stjóri United og síðasta æfingaleik áður en alvaran byrjar á laugardagsmorgun. Efsta hæð Sir Alex Ferguson stúkunnar sem og efri hæðir hornstúkanna voru þó lokaðar.

Liðið sem hóf leikinn var svona:

de Gea

Smalling Jones Blackett

Young Fletcher Herrera James Lesa meira

Efnisorð: Darren Fletcher Leikskýrslur Marouane Fellaini Valencia CF 9
Enska deildarbikarkeppnin

Stoke City og Darren Fletcher á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 17. desember, 2013 | 9 ummæli

Á morgun Darren Fletcher fer United Darren Fletcher í heimsókn Darren Fletcher til Stoke Darren Fletcher í fjórðungsúrslitum Darren Fletcher deildarbikarsins. Af Darren Fletcher óviðráðanlegum ástæðum Darren Fletcher missti upphitari Darren Fletcher af leiknum Darren Fletcher um helgina og Darren Fletcher hefur því Darren Fletcher ákveðið að einbeita sér Darren Fletcher að stærstu fréttunum Darren Fletcher úr þeim leik Lesa meira

Efnisorð: Darren Fletcher Upphitun 9
Opin umræða Slúður

Fréttabútar á sunnudagsmorgni

Björn Friðgeir skrifaði þann 7. júlí, 2013 | 13 ummæli

Darren Fletcher er búinn að fara í þriðju aðgerðina á skömmum tíma við sáraristilbólgunni sem hrjáir hann. Að aðgerðirnar væru þrjár var samkvæmt áætlun, og nú mun endanlega koma í ljós hvort Fletcher getur snúið til baka sem atvinnuknattspyrnumaður.

Íþróttadagblaðið Sport í Barcelona sló því upp á forsíðu að Thiago væri búinn að semja til fimm ára við United og þetta yrði tilkynnt í vikunni. Ekkert nýtt svo sem þar, en ætli sé ekki óhætt að gera ráð fyrir að samningar séu á því stigi að flestir sem skipti máli vilji að þetta gerist. Ekki er samt sopið kálið þau í ausuna sé komið og enn getur þetta farið gjörsamlega út um þúfur, enda væri það ekki í fyrsta skipti í leikmannasölum sem slíkt gerðist. Lesa meira

Efnisorð: Darren Fletcher David Villa Gareth Bale Wayne Rooney 13
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress