• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

David Moyes

Enska deildarbikarkeppnin Stjórinn

Manchester United 2(3):1(3) Sunderland (1-2 v)

Tryggvi Páll skrifaði þann 22. janúar, 2014 | 19 ummæli

Byrjum á góðu fréttunum. Samkvæmt The Telegraph hefur Chelsea samþykkt tilboð United í Juan Mata og allt er klappað og klárt, það eina sem eftir er læknisskoðun sem fram á að fara á morgun. Spennandi fréttir og vonandi fyrsta skrefið af mörgum til þess að bæta þennan leikmannahóp.

Þetta voru 119 mínútur af hreinræktuðum leiðindum, 2 mínútur af hreinni spennu og 5 mínútur af slökustu vítaspyrnukeppni í sögu knattspyrnunnar. Lesa meira

Efnisorð: David Moyes Leikskýrslur Sunderland 19
Slúður

Góðu fréttunum rignir inn

Tryggvi Páll skrifaði þann 9. janúar, 2014 | 21 ummæli

Já, það er ekkert nema jákvæðir straumar sem streyma frá Old Trafford þessa dagana.

Chris Smalling tók þá upplýstu ákvörðun um að klæða sig upp sem sjálfsmorðsprengjumaður í búningapartý á dögunum. „Blaðamenn“ The Sun voru auðvitað ekki lengi að komast að þessu og birtu þetta á forsíðu blaðsins. Smalling var snöggur að biðjast afsökunar á þessu og sagði þetta misheppnað grín, hann hafi ætlað að þykjast vera svokölluð Jäger-Bomb. Fallega gert hjá honum að taka sviðsljósið af Moyes í smástund. Lesa meira

Efnisorð: David Moyes Skýringarmyndir 21
Enska deildarbikarkeppnin Stjórinn

Undanúrslit deildarbikarsins – taka 1

Tryggvi Páll skrifaði þann 6. janúar, 2014 | 5 ummæli

Eftir vonbrigði helgarinnar er vel þegið að fá leik strax í kjölfarið svo að hægt sé að einbeita sér að einhverju öðru en eingöngu því neikvæða. Á morgun mætum við Sunderland í úrslitum deildarbikarsins. Sem betur fer á útivelli.

Ég las ágæta grein fyrir helgina um mikilvægi bikarkeppna. Í henni er haldið fram að sigur í bikarkeppni geti virkað sem stökkbretti fyrir lið og fleytt þeim í átt að frekari velgengni. Tekið er dæmi um Nottingham Forest lið Brian Clough frá áttunda áratugnum sem vann hina merku keppni Anglo-Scottish bikarinn árið 1976. Kannski ekki stærsta bikarkeppnin en Clough sagði seinna að þetta hefði haft sín áhrif: Lesa meira

Efnisorð: David Moyes Sunderland Upphitun 5
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 1:2 WBA

Tryggvi Páll skrifaði þann 28. september, 2013 | 26 ummæli

Þetta var hrikalega lélegt. Það er ekki boðlegt að lið eins og West Bromwich Albion komi á Old Trafford og spili mikið betur en heimaliðið og fari verðskuldað heim með stigin þrjú í pokahorninu. David Moyes stillti upp eftirfarandi liði:

De Gea

Jones Ferdinand Evans Büttner

Carrick Anderson

Nani Rooney Kagawa

Chicharito

Bekkur: Evra, Welbeck, van Persie, Valencia, Fellaini, Amos & Januzaj. Lesa meira

Efnisorð: David Moyes Leikskýrslur West Bromwich Albion 26
Meistaradeild Evrópu

Manchester United 4:2 Bayer Leverkusen

Tryggvi Páll skrifaði þann 17. september, 2013 | 31 ummæli

Maður vissi ekki alveg við hverju maður átti að búast fyrir þennan leik. Síðustu ár hefur liðið verið steingelt í riðlakeppni Meistaradeildarinnar, satt best að segja var oft hundleiðinlegt að horfa á þá. Bætum því við að David Moyes hefur aldrei stýrt liði á þessu stigi knattspyrnu.

Þegar byrjunarliðið var hinsvegar birt var slegið á allan vafa og efa sem maður hafði fyrir þennan leik. Moyes stillti upp sterku byrjunarliði. Kagawa var frelsaður og fékk að byrja ásamt Fellaini. Maður fann bara á samfélagsmiðlunum eftir að liðið hafði verið birt að menn voru spenntir fyrir því að horfa á þennan leik. Byrjunarliðið var svona: Lesa meira

Efnisorð: Bayer Leverkusen David Moyes Leikskýrslur Shinji Kagawa 31
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress