• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Fred

Enska úrvalsdeildin

Liverpool 2:0 Manchester United

Björn Friðgeir skrifaði þann 19. janúar, 2020 | 27 ummæli

Marcus Rashford verður frá í nokkrar vikur og Ole Gunnar Solskjær stillti upp varnarsinnuðu liði í dag

1
De Gea
23
Shaw
5
Maguire
2
Lindelöf
29
Wan-Bissaka
17
Fred
31
Matić
53
Williams
15
Pereira
21
James
9
Martial

Varamenn: Romero, Bailly, Dalot, Jones, Mata, Lingard, Greenwood

Lið Liverpool var eins og spáð:

Alisson
Robertson
Van Dijk
Gomez
Alexander-Arnold
Wijnaldum
Henderson
Ox-Chamberlain
Mané
Firmino
Salah

Fyrstu viðbrögð við liðinu voru að það yrðu þrír miðverðir og vakti það ekki mikla lukku en fljótlega var ljóst að Brandon Williams var hreinlega í kanthlutverkinu og átti að pressa á Alexander-Arnold. United stóð sig bara alveg þokkalega fyrstu 10 mínúturnar og pressaði á Liverpool og reyndi að finna glufur á vörninni til að stinga upp á Daniel James. Fyrstu 11 mínúturnar var liðið meira að segja 58% með boltann. Lesa meira

Efnisorð: David de Gea Fred Marcus Rashford 27
Djöflavarpið

Djöflavarpið 75. þáttur – Glugginn er opinn en kemur einhver?

Magnús Þór skrifaði þann 5. janúar, 2020 | 8 ummæli

Maggi, Friðrik og Bjössi settust niður og tóku ítarlega umræða um Manchester United. Farið var yfir leikmannahópinn og frammistöðu lykilmanna. Einnig var rætt um hvaða stöðu þarf að styrkja strax í janúar.

https://open.spotify.com/episode/4tBhXKLi1joVAMS9oV1oZE

Við viljum endilega fá ykkar álit þannig að virk þáttaka í athugasemdarkerfinu er vel þegin.

Ef þið viljið senda okkur spurningar þá er það hægt að senda okkur skilaboð á Facebook síðu Rauðu djöflanna. Lesa meira

Efnisorð: Brandon Williams Ed Woodward Fred Harry Maguire Jesse Lingard Luke Shaw Ole Gunnar Solskjær Paul Pogba Scott McTominay Slúður Victor Lindelöf 8
Enska úrvalsdeildin

Manchester City 1:2 Manchester United

Björn Friðgeir skrifaði þann 7. desember, 2019 | 14 ummæli

Ole Gunnar Solskjær gerði tvær breytingar á liðinu sem vann Tottenham á miðvikudaginn. Luke Shaw kemur til baka úr meiðslum og tekur sæti Ashley Young sem Ole sagði of gamlan til að þola tvo leiki á fjórum dögum. Anthony Martial var sömuleiðis orðinn góður af skammvinnum meiðslum.

1
De Gea
23
Shaw
5
Maguire
2
Lindelöf
29
Wan-Bissaka
17
Fred
39
McTominay
10
Rashford
14
Lingard
21
James
9
Martial

Varamenn: Romero, Tuanzebe, Williams, Young, Andreas, Mata, Greenwood

Lið City:

Ederson
Angelino
Fernandinho
Stones
Walker
David Silva
Rodri
De Bruyne
Sterling
Jesús
B. Silva

Strax á annarri mínútu byrjaði fjörið, Daniel James var í góðu skotfæri við teiginn en Ederson varði helst til auðveldlega og City brunaði upp og á endanum var skot Kevin De Bruyne blokkað. Lesa meira

Efnisorð: Aaron Wan-Bissaka Anthony Martial Daniel James Fred Marcus Rashford 14
Enska úrvalsdeildin

Borgarslagur á Etihad

Björn Friðgeir skrifaði þann 6. desember, 2019 | 1 ummæli

Það hefur verið þema undanfarið að þegar United liðið tekur eitt skref framávið með góðri frammistöðu í leik að sá árangur gengur til baka í næsta leik á eftir. Eftir góðan sigur gegn Tottenham í síðasta leik er því prófraunin meiri þegar haldið skal á Etihad á morgun.

Meistarar Manchester City hafa ekki verið mjög meistaralegir í haust og sitja í þriðja sæti, ellefu stigum á eftir meistarakandídötum Liverpool. Það hefur helst verið vörnin sem hefur veirð Akkilesarhæll City í vetur. Aymeric Laporte meiddist snemma í haust og verður frá fram yfir nýárið og skarð hans hefur ekki verið fyllt almennilega. Oleksandr Zinchenko hefur líka verið meiddur en verður hugsanlega með á morgun eftir sex vikna fjarveru. Hann kemur inn í vinstri bakvörð og það breytir því ekki að bæði Otaemendi og Stones hafa verið slakir í miðverðinum og því hefur Guardiola þurft að nota Fernandinho þar í stað annars hvors og miðjan þannig veikst. Lesa meira

Efnisorð: Fred Scott McTominay 1
Evrópudeildin

Loksins, loksins, Evrópudeildin. Astana á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 18. september, 2019 | 2 ummæli

Loksins kemur að United að fái aftur að taka þátt í hinni frábæru Evrópudeild sem liðið vann svo eftirminnilega vorið 2017. Við fögnum því með að taka á móti „Rúnari Má og félögum“ eða Astana FC eins og liðið heitir utan Íslands.

Astana eru meistarar síðustu fimm ára í Kasakstan en eru í þriðja sæti í deildinni í dag, fimm stigum á eftir efsta liðinu. Það getur þó staðið til bóta því liðið á tvo leiki til góða. Liðið er því sigurvant. Þetta er fjórða árið í röð sem liðið hefur komist í riðlakeppni Evrópudeildarinnar, árið þar áður var það í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Það er því nóg af Evrópureynslu þarna. Það er þó ekki útivallarárangur sem hefur gert Astana gott, mun frekar sterkur heimavöllur, sem við tökum nánar fyrir þegar þar að kemur. Lesa meira

Efnisorð: Fred Mason Greenwood Rúnar Már Sigurjónsson Sergio Romero Upphitun 2
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress