• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Galatasaray

Evrópudeildin

Galatasaray 3:3 Manchester United

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 29. nóvember, 2023 | 11 ummæli

Manchester United mætti Galatasaray í næstsíðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Erik ten Hag stillti upp áhugaverðu byrjunarliði en enginn Casemiro né Rashford voru í hópnum í dag. Sá enski í banni og sá brasilíski meiddur. Leiknum lauk með 3-3 jafntefli eftir bráðfjörugan leik, sérstaklega síðari hálfleik. Vonin lifir, en veik er vonin um að komast áfram í 16-liða úrslitin í Meistaradeildinni. Lesa meira

Efnisorð: Alejandro Garnacho Bruno Fernandes Galatasaray 11
Evrópudeildin

Duga eða drepast í Tyrklandi!

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 28. nóvember, 2023 | 2 ummæli

Þá er komið að næstsíðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu en United á eftir útileik við Galatasaray og heimaleik í lokaumferðinni gegn Bayern Munich. Fyrir leik morgundagsins er liðið á botni A-riðils með einungis 3 stig úr heimasigri gegn FC Kaupmannahöfn. Liðið hefur tapað úti gegn FCK og Bayern og tapaði á heimavelli fyrir tyrkneska liðinu og stendur því eftir sem fyrr segir á botninum. Það er þó örlítill vonarneisti fyrir stuðningsmenn United ef liðinu tekst að kreista fram sigur gegn Galatasaray og FCK tapar fyrir Bayern á útivelli. Lesa meira

Efnisorð: Galatasaray 2
Æfingaleikir

Fyrsti leikur Zlatan! Manchester United 5-2 Galatasaray

Ritstjórn skrifaði þann 30. júlí, 2016 | 9 ummæli

United mætti Galatasaray í Gautaborg í Svíþjóð í dag þar sem Zlatan Ibrahimovic kynnti sjálfan sig til leiks eins og Zlatan einn getur gert. Leikurinn var kaflaskiptur en United tók öll völd í seinni hálfleik og kláraði leikinn með stæl.

De Gea
Shaw
Bailly
Blind
Valencia
Schneiderlin
Herrera
Martial
Rooney
Mkhitaryan
Zlatan

Bekkur: Johnstone, Romero, Darmian, Jones, Rojo, Carrick, Fellaini, Lingard, Mata, Memphis, Young, Rashford.

Okkar maður Elli var á leiknum og tísti um för sína frá Kaupmannahafnar til Gautaborgar á leikinn en fylgjast má með ævintýrum hans hér fyrir neðan. Lesa meira

Efnisorð: Galatasaray Leikskýrslur Tour 2016 9
Meistaradeild Evrópu

Galatasaray 1:0 Manchester United

Magnús Þór skrifaði þann 20. nóvember, 2012 | 7 ummæli

Eins og byrjunarliðið sannaði þá fengu ungu strákarnir að njóta sín og meðalaldurinn á varamannabekknum ekki hár.

Fyrsta skot leiksins átti hinn ungi Nick Powell sem markvörðu Tyrkjanna greip auðveldlega. Nick Powell var svo tæklaður gróflega af Felipe Melo sem slapp við spjald. Skömmu seinna áttu heimamenn hörkuskot sem Lindegaard varði. Semih Kaya fékk gult spjald fyrir hressilega tæklingu á Alex Büttner sem var á hörkusprett upp völlinn. Felipe Melo virtist vera á sérdíl hjá dómaranum, gæti verið kominn með 3 gul spjöld fyrsta hálftíma leiksins en fékk ekkert. Lindegaard varði aftur vel hörkuskot frá Altintop. Nick Powell átti svo skalla í slánna eftir fyrirgjöf frá Anderson. Fínn fyrri hálfleikur og fjörugur undir lokin en staðan samt sem áður markalaus. Lesa meira

Efnisorð: Galatasaray Leikskýrslur 7
Meistaradeild Evrópu

Byrjunarliðið gegn Galatasaray

Magnús Þór skrifaði þann 20. nóvember, 2012 | 4 ummæli

Lindegaard

Rafael Jones Carrick Büttner

Fletcher Anderson

Cleverley Powell Welbeck

Chicharito

Þetta er líklega tígulmiðja þar sem Powell verður fremstur og Fletcher aftastur.

Bekkur: Sam Johnstone, Ashley Young, Kiko Macheda, Scott Wootton, Larnell Cole, Marnick Vermijl, Joshua King.

Efnisorð: Galatasaray Liðsuppstilling 4
  • Page 1
  • Page 2
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • sófinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Helgi P um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress