• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Henrikh Mkhitaryan

Enska úrvalsdeildin

Nýtt Arsenal mætir á Old Trafford á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 4. desember, 2018 | 1 ummæli

Leikurinn gegn Arsenal er mikill tímamótaleikur. Í fyrsta skipti í 23 ár, síðan 20. mars 1995 kemur Arsenal án Arsène Wenger, og í fyrsta skipti síðan 25. ágúst 1985 er hvorki að finna Sir Alex Ferguson eða Wenger á hliðarlínunni.

Það er óhætt að segja að stuðningsmenn Arsenal hafi verið orðnir langeygir eftir að Wenger ákvæði að leggja svefnpokann á hilluna og leyfa öðrum að spreyta sig. Gengi félagsins hafði farið versnandi og Wenger bikarinn endaði á Anfield í fyrra. Lesa meira

Efnisorð: Diogo Dalot Henrikh Mkhitaryan Jose Mourinho Pierre-Emerick Aubameyang Upphitun 1
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 2:1 Arsenal

Halldór Marteins skrifaði þann 29. apríl, 2018 | 17 ummæli

Fyrir leikinn í dag var Sir Alex Ferguson mættur á hliðarlínuna til að gefa Arsène Wenger kveðjugjöf og virðingarvott frá Manchester United. Fallegt að sjá það. Það var eitthvað við það að sjá þrjá bestu knattspyrnustjóra í sögu ensku úrvalsdeildarinnar stilla sér upp saman, brosa og skiptast á léttu spjalli. Það hefur nú ekki alltaf verið svona létt á milli þessara þriggja stjóra. Lesa meira

Efnisorð: Arsenal Arsène Wenger Henrikh Mkhitaryan Liðsuppstilling Marouane Fellaini Old Trafford Paul Pogba 17
Djöflavarpið

Djöflavarpið 47.þáttur

Magnús Þór skrifaði þann 4. febrúar, 2018 | 1 ummæli

Maggi, Björn og Halldór settust niður  og fóru yfir síðustu leiki og þá aðallega Tottenham og Huddersfield. Einnig tókum við fyrir frammistöður og framtíðarstöðu Alexis Sánchez og sitthvað fleira.

Endilega takið þátt í athugasemdum

Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan auk þess sem hægt er að hala honum niður í gegnum spilarann eða hér að neðan. Jafnframt má gerast áskrifandi að þættinum í gegnum ýmis podkast-forrit: Lesa meira

Efnisorð: Alexis Sanchez Anthony Martial Ashley Young Bryan Robson Henrikh Mkhitaryan Jonny Evans Jose Mourinho Juan Mata Marcus Rashford Nemanja Vidic Paul Pogba Rafael Rio Ferdinand Romelu Lukaku Roy Keane 1
Félagaskipti Staðfest

Alexis Sánchez gengur til liðs við Manchester United *staðfest*

Ritstjórn skrifaði þann 22. janúar, 2018 | 12 ummæli

Manchester United hefur gengið frá félagaskiptum Alexis Sánchez frá Arsenal.

Sánchez hefur verið langbesti leikmaður Skyttnanna frá því að hann var keyptur frá Barcelona sumarið 2014 eftir HM í Brasilíu. Sterkur orðrómur er búinn að vera um að þessi öflugi landsliðsmaður Síle myndi ganga til liðs við Josep Guardiola hjá Manchester City en í ekkert varð af þeim kaupum. Samningur Sánchez er til 4½ árs og er samkvæmt sögusögnum ansi ríflegur, enda þarf ekki að greiða Arsenal fyrir hann nema sem nemur matsvirði Henrikh Mkhitaryan, sem er nú líklega í kringum 15 milljónir punda, þar sem um slétt skipti á leikmönnum er að ræða. Lesa meira

Efnisorð: Alexis Sanchez Henrikh Mkhitaryan 12
Djöflavarpið

Djöflavarpið 46.þáttur – Halló Alexis, bless Mikki

Magnús Þór skrifaði þann 18. janúar, 2018 | 4 ummæli

Maggi, Tryggvi, Björn og Halldór settust niður  og fóru yfir sigrana gegn Derby County í FA bikarnum og gegn Stoke City í deildinni.Yfirvofandi skiptum Arsenal og Manchester United á þeim Henrikh Mkhitaryan og Alexis Sanchez  voru gerð góð skil og einnig tókum við spurningar frá hlustendum og lesendum.

Endilega takið þátt með kommentum og reynym að ná upp skemmtilegri umræðu. Lesa meira

Efnisorð: Alexis Sanchez Anthony Martial Ashley Young Bryan Robson Henrikh Mkhitaryan Jonny Evans Jose Mourinho Juan Mata Marcus Rashford Nemanja Vidic Paul Pogba Rafael Rio Ferdinand Romelu Lukaku Roy Keane 4
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Interim pages omitted …
  • Page 6
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress