• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Luca Modric

Opin umræða Slúður

Í ruglinu

Björn Friðgeir skrifaði þann 18. júlí, 2013 | 12 ummæli

Þetta er held ég örugglega orðið ruglaðasta ‘silly season’ sem ég man eftir hvað United varðar.

Síðan við heyrðumst síðast fyrir tveim dögum:

  • Tito Vilanova segir að Cesc vilji vera áfram.
  • Reyndar var það í vor sem Cesc sagði það.
  • Thiago segist hafa tekið ákvörðun um að fara til Bayern eftir að hafa talað við Pep eftir HM U-21. Áttum semsé aldrei séns.
  • Wayne Rooney er “reiður og ringlaður” vegna þess að United er að fara illa með hann.
  • Það er hollt að lesa hvað Moyes sagði í raun um Rooney. (Takk Kristjans)
  • Chelsea býður 10 milljónir punda í Rooney, plús annað hvort Mata eða Luiz
  • Chelsea neitar að hafa boðið leikmenn, segir það frá United komið til að hræra í leikmönnum Chelsea (en Chelsea er þá augljóslega ekkert að hræra í Rooney)
  • Blaðamenn neita að ‘Mata eða Luiz’ slúðrið hafi komið frá United.
  • Svona í millitíðinni berast fréttir um að Nani fái nýjan samning og sé alveg á tæru að sé sterklega inni í myndinni hjá Moyes.
  • Andy Mitten, gegnheill United maður og traustur, segir alveg á hreinu að Fàbregas vilji spila og vilji koma til United en sé að bíða eftir að Barcelona taki fyrsta skrefið og segi í lagi að hann fari.
  • Ed Woodward, stórleikari úr The Equa… nei ég meina varaforseti Manchester United yfirgaf túrinn í Ástralíu í gær og flaug heim til Englands, nei, ég meina, flaug „til Evrópu“ til að sinna „mikilvægum leikmannaviðskiptum“
  • Þessi leikmannaviðskipti eru að tryggja okkur Fàbregas.
  • Nei, Modrić, sem við fengum allt í einu aftur áhuga á. (Skv Tancredi Palmieri og Sky Italia. Nei, það eru ekki traustar heimildir)
  • nú, eða Gareth Bale, sem Daily Mirror slær upp í dag að við ætlum að bjóða 60 milljónir punda í.

Er nema von menn verði ringlaðir!

En ef ég ætti að leggja undir pening í dag hvað gerðist þá þætti mér líklegustu atburðir næstu vikna vera þeir að Wayne Rooney fari, og Fellaini komi. Síðan virðist alveg séns að næla í Fàbregas. Ef Rooney verður notaður sem skiptimynt, er ekkert óvitlaust að vonast eftir t.d. Mata, sem er eiginlega vitað að Mourinho er alveg til í að láta frá sér. (Sama gildir um Luiz og Torres). Lesa meira

Efnisorð: Gareth Bale Juan Mata Luca Modric Nani Wayne Rooney 12

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Helgi P um Manchester United 3:1 Reading
  • Steve Bruce um Nottingham Forest 0:3 Manchester United
  • Helgi P um Nottingham Forest 0:3 Manchester United
  • Helgi P um Arsenal 3 : 2 United
  • Steve Bruce um Arsenal 3 : 2 United

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2023 · Keyrt á WordPress