• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Myndbönd

Æfingaleikir

Barcelona í kvöld

Björn Friðgeir skrifaði þann 25. júlí, 2015 | 2 ummæli

Í kvöld kl. 20.05 að íslenskum tíma tekur United á móti Barcelona á Levi’s vellinum í Santa Clara, nýjum heimavelli San Francisco 49ers. Eftir tiltölulega létta leiki í þessari ferð er kominn tími að takast á við aðeins erfiðara verkefni.

Louis van Gaal og Wayne Rooney voru með blaðamannafund í gærkvöld þar sem fátt merkilegt kom fram utan það að Bastian Schweinsteiger er lítilsháttar meiddur og Van Gaal tekur ekki séns á honum í kvöld. Að öðru leyti eru allir heilir. Þeir Ángel di María, Marcos Rojo og Javier Hernandez koma allir til San Francisco í dag en auðvitað of seint til að vera með í leiknum. Síðan var Van Gaal óvenju skýr með það að vilja ekki tjá sig um leikmannakaup, Lesa meira

Efnisorð: Myndbönd Upphitun 2
Æfingaleikir

Viðtal við Ed Woodward + hápunktar gegn Club America

Tryggvi Páll skrifaði þann 19. júlí, 2015 | 6 ummæli

Ed Woodward var í áhugaverði viðtali við MUTV í gær þar sem hann fór yfir síðustu 12 mánuði og það sem framundan er.

http://www.raududjoflarnir.is/wp-content/uploads/2015/07/ew2015.mp4

 

Þetta var auðvitað svolítið drottningarviðtal en hér eru helstu punktarnir:

Um stjórann

  • Woodward gæti varla talað betur um Louis van Gaal og ljóst að hann er gríðarlega ánægður með starfið sem Hollendingurinn er að vinna, innan sem utan vallar. Samstarf þeirra tveggja virðist náið.
  • „You don’t want someone who cant make decisions, someone who doesn’t have that experience.“ Um hvern ætli sé verið að ræða hér?
  • Lesa meira

    Efnisorð: Club America Ed Woodward Myndbönd Tour 2015 6
    Taktík

    Neville og Carragher fara yfir spilamennsku United

    Tryggvi Páll skrifaði þann 14. apríl, 2015 | 4 ummæli

    Fyrir knattspyrnuáhugamenn er varla til betra sjónvarpsefni en Monday Night Football á Sky Sports þar sem Gary Neville og Jamie Carragher fara yfir leiki helgarinnar. Þeir eru ekkert að stressa sig á því að fjalla um alla leiki helgarinnar heldur velja þeir sér leiki sem þeir geta kafað ofan í og leikgreint almennilega. Í gær tóku þeir fyrir sigur United á City um helgina og einbeittu þeir sér að því að tala um United. Lesa meira

    Efnisorð: Louis van Gaal Myndbönd 4
    Leikmenn Pistlar

    Maðurinn á milli stanganna

    Tryggvi Páll skrifaði þann 16. desember, 2014 | 4 ummæli

    Í gær birtum við grein um manninn á bakvið tjöldin enda ekki skrýtið, endurkoma Michael Carrick í byrjunarliðið hefur skilað liðinu 18 stigum af 18 stigum mögulegum. Gríðarlega mikilvægur leikmaður sem virðist loksins vera að fá þá ást sem hann á skilið.

    David de Gea hefur ekki verið síðri á þessu tímabili og tryggt okkur ófá stigin á þessu tímabili. Hann hefur átt sína gagnrýnendur en virðist loksins vera að sigrast á þeim enda er erfitt að gagnrýna kappann eins og hann er að spila í dag. Hjörvar Hafliðason hefur verið helsti gagnrýnandi hans hér á Íslandi en í Messunni í gær hrósaði hann honum duglega og keypti sér í leiðinni miða um borð í David de Gea vagninn. Lesa meira

    Efnisorð: David de Gea Myndbönd 4
    Félagaskipti

    Á tali með Ed Woodward

    Tryggvi Páll skrifaði þann 20. júlí, 2014 | 3 ummæli

    Hinn sívinsæli aðstoðarvarayfirstjórnarformaður Ed Woodward settist niður með MUTV í dag og svaraði nokkrum laufléttum spurningum. Þetta er áhugavert viðtal þar sem Woody kallinn fer um víðan völl. M.a. sagði hann þetta um kaup og sölur á leikmönnum í þessum glugga:

    There is no fixed budget, financially we are extremely strong, funds are available, Louis is the boss, Louis is assessing what’s been going on, we’ve been in dialogue for some time about targets, so there’s a lot of work going on behind the scenes, so watch this space. Lesa meira

    Efnisorð: Ed Woodward Myndbönd 3
    • Page 1
    • Page 2
    • Go to Next Page »

    Primary Sidebar

    Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

    Síðustu ummæli

    • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
    • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
    • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
    • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
    • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

    Tístvélin

    Tweets by @raududjoflarnir

    Facebook

    Rauðu djöflarnir

    Footer

    Rauðu djöflarnir

    • Um okkur
    • Reglur

    Fantasy deildin

    Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

    Kóði: 1997321-460021

    Leit

    • Um okkur
    • Reglur

    Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress