• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Thiago Alcántara

Slúður Stjórinn

Þjálfararáðningar og annað

Björn Friðgeir skrifaði þann 4. júlí, 2013 | 2 ummæli

Í dag gengu tveir nýir þjálfarar til liðs við United. Ólíkt síðustu nýliðunum í þjálfarateyminu er algerlega óþarft að kynna þessa menn eitthvað frekar

[one_half]

[/one_half]

[one_half_last]

[/one_half_last]

Að auki er Robbie Cooke kominn frá Everton, hvað annað, til að taka við stöðu yfirspæjara.

Í gær var staðfest öllum að óvörum að Mats Møller Dæhlie, einn af efnilegri leikmönnum unglingaliðsins hefði gengið til liðs við Ole Gunnar Solskjær hjá Molde. Nokkur missir að honum úr unglingastarfinu en ekki virðist ljóst hvers vegna  hann snýr heim, hvort honum finnist hann ekki ná framförum eða einfaldlega sé haldinn heimþrá. Lesa meira

Efnisorð: David Moyes Mats Møller Dæhlie Phil Neville Robbie Cooke Ryan Giggs Thiago Alcántara 2
Opin umræða Pistlar Slúður Stjórinn

Moyes sestur í stólinn

Björn Friðgeir skrifaði þann 2. júlí, 2013 | 5 ummæli

Í gærmorgun mætti David Moyes ferskur til vinnu á Carringt… fyrirgefið AON Training Complex æfingavöllinn sem framkvæmdastjóri Manchester United. Það fyrsta sem gert var, var að staðfesta ráðningu Steve Round sem aðstoðarframkvæmdastjóra, Jimmy Lumsden sem þjálfara og Chris Woods sem markmannsþjálfara.

Við þessu hafði verið búist eins og við fórum yfir í lok maí, nema þá var ekki minnst á Lumsden. Hann er 65 ára gamall Skoti sem þjálfað hefur víða. Hann uppgötvaði Moyes sem leikmann hjá Celtic en varð síðar þjálfari hjá Moyes þegar Moyes tók við Preston North End og hefur fylgt honum síðan. Hann virðist samt ekki nógu hátt skrifaður til að fá stafina sína á treyjuna á myndinni hér að neðan. Kannske það lagist. Lesa meira

Efnisorð: David Moyes Ezequiel Garay Jimmy Lumsden Kevin Strootman Steve Round Thiago Alcántara 5
Opin umræða Slúður

Thiago á leiðinni?

Björn Friðgeir skrifaði þann 21. júní, 2013 | 5 ummæli

Er Thiago á leiðinni?

Fjarri því að vera fast í hendi, en orðrómurinn er sterkur um að málið sé komið það langt að farið sé að ræða launamál. Graham Hunter, gamalreyndur og virtu enskur blaðamaður á Spáni heldur því fram og undir það tekur Daily Telegraph í dag. De Gea hefur greinilega verið að vinna í þessu fyrir okkar hönd enda skrifaði hann á boltann sem Thiago fékk eftir þrennuna gegn Ítalíu „Sjáumst í Manchester“ eins og fram hefur komið. Eins og fram hefur komið er Thiago með lausnarklásúlu í samningnum sínum sem sendur í 18 milljónum evra eða um 15,4 milljónum punda og því hans að ákveða en ekki Barcelona. Upphæðin er alla jafna 90 milljónir evra, en lækkar í 18 milljónir þar sem Thiago fékki ekki að leika í meira en þrjátíu mínútur í 60% leikja Barcelona. Hann lék reyndar í 60% leikja Barcelona í fyrra og náði vel yfir 30 mínútum af meðaltali, en hefði þurft að ná þrjátíu mínútum í öllum 36 leikjunum sem hann lék, en ekki bara 21 einum þeirra. Framundan er HM á næsta ári og Thiago hlýtur að vera mikið í mun að vera fastamaður í byrjunarliði til að sýna að hann eigi erindi í spænska landsliðið (og ekkert leiðindatuð með að benda á að ef hann kemst ekki í Barcelona byrjunarliðið þá komist hann varla í spænska liðið. Hann gæti heyrt það og hugsað sig um betur…) Lesa meira

Efnisorð: Thiago Alcántara 5

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Helgi P um Manchester United 3:1 Reading
  • Steve Bruce um Nottingham Forest 0:3 Manchester United
  • Helgi P um Nottingham Forest 0:3 Manchester United
  • Helgi P um Arsenal 3 : 2 United
  • Steve Bruce um Arsenal 3 : 2 United

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2023 · Keyrt á WordPress