• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Tour 2014

Æfingaleikir Fjármál Pistlar

Verslunarmannahelgarnestið

Björn Friðgeir skrifaði þann 1. ágúst, 2014 | 11 ummæli

Það er leikur annað kvöld og það kemur auðvitað upphitun fyrir hann í kvöld.

Annars er það helst að frétta að Glazerar ætla að nota tækifærið nú þegar gengi á bréfum í United er í sögulegu hámarki og selja svolítið af hlutabréfunum sínum. Selja á 8 milljón hluti, eða fimm prósent hluta í félaginu, og að auki 1,2 milljón hluti ef verð er sérlega hagstætt, samtals þá 5,75%. Gera má ráð fyrir að fyrir bréfin fásti 80-100 milljónir punda sem renna auðvitað beint í vasa þeirra systkinana. Lesa meira

Efnisorð: Ashley Young Glazers Jonny Evans Louis van Gaal Marouane Fellaini Tour 2014 11
Æfingaleikir

Manchester United 0:0 Inter (5:3 eftir vítaspyrnur)

Magnús Þór skrifaði þann 29. júlí, 2014 | 8 ummæli

Svona leit liðið út sem byrjaði leikinn

 

Fyrri hálfleikur var frekar laus við tilþrif. United var þó töluvert betri aðilinn og spilaði oft á tíðum glimrandi vel. Engin mörk litu þó dagsins ljós og ekki var mikið um færi heldur. Það var skrýtið að sjá gamla fyrirliðann okkar leika gegn United og átti hann fínan leik fyrir Inter.

https://twitter.com/gudmegill/status/494271687895298048

https://twitter.com/StrettyNews/status/494276230892777472 Lesa meira

Efnisorð: Inter Leikskýrslur Nemanja Vidic Tour 2014 8
Æfingaleikir

United mætir Inter annað kvöld

Magnús Þór skrifaði þann 28. júlí, 2014 | 11 ummæli

Það er ekki hægt að segja annað en að United hafi farið nokkuð vel af stað undir stjórn Louis van Gaal. Leikurinn gegn Galaxy var auðvitað ekki besti mælikvarðinn á getu liðsins og sást það best í leiknum gegn Roma. Það merkilega við þann leik var að liðið var ekki að leika neitt sérstaklega vel en endaði samt hálfleikinn með 3-0 forystu. Liðið gaf aðeins eftir í seinni hálfleik og hleypti Roma inn í leikinn eftir að Amos fékk á sig martraðarmark markvarðarins og vafasama vítaspyrnu. Þrátt fyrir það var ég mjög ánægður fyrir tvær sakir. Í fyrsta lagi er liðið að leika eftir nýrri leikaðferð sem það er ekki búið að venjast og liðssamsetningin sem við sáum í seinni hálfleik og fékk á sig mörkin tvö mun líklega aldrei sjást í keppnisleik. Lesa meira

Efnisorð: Inter Nemanja Vidic Tour 2014 Upphitun 11
Æfingaleikir

AS Roma 2:3 Manchester United

Björn Friðgeir skrifaði þann 26. júlí, 2014 | 19 ummæli

Liðið leit svona út í fyrri hálfleik

Johnstone

Jones Evans Blackett

Valencia Cleverley© Mata Herrera James

Welbeck Rooney

Roma liðið: Skorupski; Calabresi, Benatia, Romagnoli, Emanuelson; Uçan, Keita, Paredes; Iturbe, Destro, Florenzi

Leikurinn var varla mínútu gamall þegar löng sending kom inn fyrir vörn United, Destro stakk Blackett og Evans af, vippaði yfir lélegt úthlaup Johnstone, boltinn skoppaði inn í markteig og á einhvern ótrúlegan hátt var skoppið nógu mikið til þess að boltinn fór yfir slána. Gríðar vel sloppið þar. Roma pressaði áfram og Destro átti fljótlega aðra tilraun, beint yfir í þetta skiptið. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Roma Tour 2014 19
Æfingaleikir

AS Roma í Denver.

Björn Friðgeir skrifaði þann 26. júlí, 2014 | 7 ummæli

United er komið til Denver

Hm. Vitlaus Denver. En við þekkjum lagið.

Í kvöld mætum við svo AS Roma í fyrsta leik Guinness International Champions Cup, enn einni tilrauninni til að gera fótbolta vinsælan í Bandaríkjunum með að flytja inn vinsæl lið. Og selja nokkrar treyjur. Leikið verður á Íþróttavörubúðarvellinum í Denver, 76 þúsund manna velli í 1600 metra hæð. Skv. alnetinu er enn hægt að fá miða á leikinn, en það er víst of seint að koma sér til Denver. Eftir að hafa rústað meðalslöku liði LA Galaxy sem hefði gefið einhverjum hugmyndir um að skreppa á næsta leik, má búast við erfiðari raun í kvöld. Lesa meira

Efnisorð: Kevin Strootman Mehdi Benatia Roma Tour 2014 Upphitun Wilfried Zaha 7
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress