• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Tour 2015

Æfingaleikir

Myndasyrpa frá Chicago

Sigurjón skrifaði þann 1. ágúst, 2015 | 3 ummæli

Ég tók þá skyndiákvörðun að henda mér til Chicago, frá New York, í þeim tilgangi að sjá okkar menn spila gegn PSG. Þetta var kannski ekki alveg það skynsamlegasta sem mér gat dottið í hug þar sem ég var að vinna til miðnættis á þriðjudeginum og átti svo að vera mættur aftur á föstudeginum. Ég hafði því 48 tíma til að keyra til Chicago og til baka, samtals 2600km. Lesa meira

Efnisorð: Tour 2015 3
Æfingaleikir

Manchester United 0:2 Paris Saint-Germain

Runólfur Trausti skrifaði þann 29. júlí, 2015 | 14 ummæli

Það var ekkert verið að flækja hlutina. Sama byrjunarlið og síðast nema Schweinsteiger kom inn fyrir Schneiderlin

De Gea
Shaw
Blind
Jones
Darmian
Carrick
Bastian
Young
Memphis
Mata
Rooney

Leikurinn fór fram á Soldier Field í Chicago, búist var við að hann yrði þéttsetinn, sem var raunin. Og við hjá Rauðu Djöflunum vorum meira að segja með okkar eigin mann á vellinum en fréttaritari okkar í Bandaríkjunum keyrði alla leið frá New York til að sjá leikinn. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur PSG Tour 2015 14
Æfingaleikir

Manchester United 3:1 Barcelona

Tryggvi Páll skrifaði þann 25. júlí, 2015 | 10 ummæli

Það er aldrei leiðinlegt að vinna Barcelona!

Liðið sem byrjaði var svona

De Gea
Shaw
Blind
Jones
Darmian
Carrick
Schneiderlin
Young
Memphis
Mata
Rooney

David de Gea kom inn í byrjunarliðið en annars var það óbreytt frá hinum leikjunum á undirbúningstímabilinu.

United var ekki lengi að koma sér yfir. Eftir ágæta sókn United  á vann liðið horn á 7. mínútu. Það var mjög gaman að sjá Ashley Young skrúfa alveg yndislega bolta inn í teiginn þar sem Wayne Rooney var alveg einn og lítið mál fyrir hann að skalla boltann í netið. Lesa meira

Efnisorð: Barcelona Tour 2015 10
Æfingaleikir

San Jose 1:3 Manchester United.

Björn Friðgeir skrifaði þann 22. júlí, 2015 | 8 ummæli

Eins og Van Gaal lofaði hóf sama byrjunarlið og síðast leik:

Johnstone
Shaw
Blind
Jones
Darmian
Schneiderlin
Carrick
Young
Memphis
Mata
Rooney

Fyrsta færið kom strax á 4 mín, Memphis með fína rispu og skot utan teigs sem markmaður varði, Rooney hirti boltann og sóknin endað á skoti Mata í hliðarnetið. Skömmu seinna kom annað þokkalegt færi, Memphis gaf fyrir, boltinn fór milli fóta Rooney, Memphis var óviðbúinn og vörn blokkaði og kom í horn.

Annars var þetta frekar dræmur leikur. United var alls ekki nógu beitt framávið og Rooney var næsta ósýnilegur. Darmian og Shaw virtust í fínu formi og Schneiderlin sýndi að hann getur átt mjög fínar sendingar. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur San Jose Earthquakes Tour 2015 8
Æfingaleikir Slúður

San Jose Earthquakes í nótt

Björn Friðgeir skrifaði þann 21. júlí, 2015 | 4 ummæli

United hópurinn hélt til San Jose í Kaliforníu í gær. Þar mæta þeir San Jose Earthquakes í leik kl 8 að kvöld að staðartíma, eða klukkan 3 á miðvikudagsmorgun að íslenskum tíma (það er loksins búið að leiðrétta það í leikjadagatalinu sem við notum).

San Jose Earthquakes er MLS lið sem rakið getur sögu sína til 1994. Hefur reyndar gegnt ýmsum nöfnum en árið 1999 tók félagið upp Earthquakes nafnið sem ýmsir munu kannast við frá uppgangstímum NASL deildarinnar á áttunda áratugnum, ekki síst vegna þessa Lesa meira

Efnisorð: San Jose Earthquakes Tour 2015 Upphitun 4
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • sófinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Helgi P um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress