• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Wolves

Enska úrvalsdeildin

Manchester United 1:1 Wolverhampton Wanderers

Magnús Þór skrifaði þann 22. september, 2018 | 16 ummæli

Auðvitað þarf þetta fjandans lið alltaf að taka tvö skref áfram og eitt afturábak. Eftir fyrri hálfleik sem var skítsæmilegur leiddi United 1:0 eftir mark frá Fred sem Pogba lagði upp með frábærri sendingu. Úlfarnir voru samt liðið sem fékk færin og kom því mark United svolítið gegn gangi leiksins. En við kvörtum ekki ekkert yfir því.

Seinni hálfleikurinn fór svo sem ágætlega af stað en innst inni vissi maður hálfpartinn að United myndi klúðra þessu einhvern veginn því að liðið er gjörsamlega ófært um að eiga góðan seinni hálfleik. Það mark kom vissulega Moutinho sem var alveg óvaldaður setti boltann viðstöðulaust í samskeytin, alveg óverjandi fyrir De Gea. Mourinho gerði þrjár skiptingar í seinni hálfleiknum en þeir Martial, Mata og Andreas Pereira kom inn fyrir Fred, Alexis og Jesse Lingard. United fór í háu sendingarnar framávið síðustu mínúturnar en það skilaði engum árangri og áttu gestirnir betri færi til að vinna leikinn með skyndisóknum en De Gea bjargaði í rauninni stiginu í dag. Lesa meira

Efnisorð: Enska úrvalsdeildin Leikskýrsla Wolves 16
Enska úrvalsdeildin

Úlfar í leikhús draumanna

Magnús Þór skrifaði þann 21. september, 2018 | Engin ummæli

Minni á Djöflavarp vikunnar frá því gærkvöldi.

Eftir þrjá ágæta útisigra í röð er loksins komið að heimaleik. Liðið sem mætir á Old Trafford er Wolverhampton Wanderers sem er held ég eina liðið sem er reglulega þýtt yfir á íslensku en yfirleitt er liðið kallað Úlfarnir. Þessir Úlfar enduðu einmitt í 1. sæti Championship deildarinnar sem er við hæfi þar sem að liðið er talsvert betra en Cardiff og Fulham sem fylgdu Úlfunum upp í úrvalsdeild. Liðið hefur farið þokkalega af stað en liðið hefur gert jafntefli við Everton og Man City, tapað fyrir Leicester og unnið 1:0 sigra gegn West Ham og Burnley ásamt því að sigra Sheffield Wednesday í Carabao bikarnum. Úlfarnir eru í 9.sæti deildarinnar  stigi á eftir United sem er í 8.sæti. Lesa meira

Efnisorð: Enska úrvalsdeildin Upphitun Wolves 0
Djöflavarpið

Djöflavarpið 62. þáttur – Watford, Young Boys og Wolves

Magnús Þór skrifaði þann 20. september, 2018 | 1 ummæli

Maggi, Halldór og Björn settust niður og ræddu sigrana gegn Watford í úrvalsdeildinni og Young Boys í Meistaradeild Evrópu. Einnig var farið yfir sigra kvennaliðsins í fyrstu tveim leikjum sínum í deildarkeppni og aðeins rætt um leikina framundan.

Við viljum endilega fá ykkar álit þannig að virk þáttaka í athugasemdarkerfinu er vel þegin.

Ef við viljið senda okkur spurningar þá er það hægt á Facebook síðu Rauðu djöflanna. Lesa meira

Efnisorð: Enska úrvalsdeildin Kvennaboltinn Meistaradeild Evrópu Watford Wolves Young Boys 1
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress