• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Leikmaður mánaðarins

Leikmaður janúarmánaðar?

Sigurjón skrifaði þann 4. febrúar, 2013 | 11 ummæli

Fyrsti mánuður ársins búinn og komið að því að kjósa besta leikmanninn í janúar. United spilaði 7 leiki í janúar, sigraði 5 leiki (þar á meðal Liverpool!) og gerði svo tvö jafntefli. Góður árangur hjá okkar mönnum og sérstaklega ánægjulegt að sjá vörnina vera bæta leik sinn en United fékk aðeins 6 mörk á sig í janúar, sem er bæting um 5 mörk frá því í desember. Nokkrir koma til greina að þessu og stefnir þetta því allt í spennandi kosningu.

Leikir United:

  • 1. janúar | Wigan Athletic 0-4 Manchester United | Enska deildin
  • 5. janúar | West Ham United 2-2 Manchester United | FA bikarinn
  • 13. janúar | Manchester United 2-1 Liverpool | Enska deildin
  • 16. janúar | Manchester United 1-0 West Ham United | FA bikarinn
  • 20. janúar | Tottenham Hotspur 1-1 Manchester United | Enska deildin
  • 26. janúar | Manchester United 4-1 Fulham | FA bikarinn
  • 30. janúar | Manchester United 2-1 Southampton | Enska deildin

Kosning:

[poll id="4"]
Uppfært (4. feb kl 16:45):
Menn hafa bent á að Rooney ætti skilið að vera tilnefndur líka, eftir að hafa átt tvo góða leiki í lok mánaðarins. Ég bið alla sem vilja kjósa hann að gera það með athugasemd við þessa grein. Slík atkvæði verða tekin góð og gild!

11

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Runólfur says

    4. febrúar, 2013 at 02:09

    Ætti Rooney ekki að vera þarna? Spilaði jú fáa leiki en stóð sig frábærlega í þeim leikjum sem hann spilaði.

    0
  2. 2

    ásgeir says

    4. febrúar, 2013 at 09:26

    fyrsti sem mér datt í hug var rooney. hann stóð sig mjög vel í öllum þeim leikjum sem hann tók þátt í og ef ég man rétt þá er hann búinn að skora 7 mörk í síðustu 8 leikjum. hef enga hugmynd annars hvern ég mun kjósa annan en rooney

    0
  3. 3

    Sigurbjörn says

    4. febrúar, 2013 at 13:32

    Fyrst Rooney var ekki valkostur, þá setti ég mitt atkvæði á Evra

    0
  4. 4

    Stefan says

    4. febrúar, 2013 at 13:36

    Klárlega Evra myndi ég segja, hann er búinn að vera svakalegur

    0
  5. 5

    Egill Guðjohnsen says

    4. febrúar, 2013 at 13:47

    Enginn Rooney??? Hann á skilið sæti þarna að mínu mati!!

    0
  6. 6

    Jói says

    4. febrúar, 2013 at 13:53

    van Persie fyrir að halda okkur inní bikarnum

    0
  7. 7

    F.E.V says

    4. febrúar, 2013 at 15:44

    Kláaááárlega evra óþekkjanlegur þessi leikmaður ! sama snillingur og maður dýrkaði hér fyrir nokkrum árum!

    van persie hefur átt betri mánuði en samt algjör snillingur

    0
  8. 8

    Sigurjón says

    4. febrúar, 2013 at 16:46

    Ef til vill voru það mistök að leyfa Rooney kallinum ekki að vera með í þessum félagsskap, hann hinsvegar spilaði ekkert fyrr en í seinni leiknum gegn West Ham, skoraði reyndar þar mark í annars frekar slökum leik, kom inn á gegn Tottenham en gerði lítið sem ekkert þar. Eftir það átti hann tvo fína leiki gegn Fulham í bikar og Southampton í deild. Auðvitað var hann svo sprækur í leiknum um helgina gegn Fulham, sem datt reyndar á 1 febrúar.

    Þannig að 3 leikir spilaðir (+ einu sinni skipt inn á) og skorar í þeim leikjum samtals 4 mörk, jú jú, hann hefði í raun átt að vera með þarna.

    Þeir sem vilja kjósa Rooney eru bara hvattir til að gera það bara með kommenti!

    0
  9. 9

    Grímur says

    4. febrúar, 2013 at 17:25

    Klárlega Rooney!

    0
  10. 10

    McNissi says

    4. febrúar, 2013 at 19:33

    Ég skil að sóknarmenn hafi verið kosnir hérna fyrr á seasoninu þegar mörkin flæddu í leikjum. En janúar mánuður var fannst mér mánuður varnarinnar.
    Mitt atkvæði fær Carrick. Ef einhvern vantar á þennan lista þá er það De Gea….

    0
  11. 11

    Friðrik says

    5. febrúar, 2013 at 11:35

    Welbeck og Jones á listanum ? hvað gerðu þeir í Janúar ?? ætti frekar að vera De Gea og Rooney í staðinn.

    0

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Magnús Þór um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Arni um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Bjarni um Önnur ferð til Sevilla!
  • Egill um Real Betis 0:1 Manchester United
  • Helgi P um United 0 – 0 Southampton

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2023 · Keyrt á WordPress