• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Landsleikir Leikmenn

Leikmenn í landsliðsverkefnum

Tryggvi Páll skrifaði þann 7. september, 2013 | 2 ummæli

Okkar menn voru út um allan heim að spila knattspyrnu í gær fyrir landslið sín.

Danny Welbeck stóð upp úr er hann skoraði tvö glæsileg mörk gegn Moldavíu í gær. Hann nældi sér líka í gult spjald sem þýðir að hann mun ekki spila útileikinn erfiða gegn Úkraínu á þriðjudaginn og ætti því að vera sprækur fyrir næsta leik okkar. England vann 4-0 og er í ágætri stöðu.  Ashley Young, Michael Carrick, Tom Cleverley og Chris Smalling tóku ekki þátt í leiknum.

Fyrir utan landsleik Sviss og Íslands í gær var leikur Norður-Íra og Portúgala líklega leikur dagsins. Alls litu þrjú rauð spjöld dagsins ljós og N-Írar komumst í 2-1. Jonny Evans spilaði leikinn fyrir N-Íra og lagði m.a. upp seinna mark þeirra. Nani kom inn af bekknum fyrir Portúgal og var sprækur, enda breyttist leikur Portúgala við það og unnu þeir á endanum 2-4 þar sem Ronaldo skoraði þrennu.

Fellaini spilaði fyrir Belga í 2-0 sigri á Skotum og nældi sér í gult spjald.

Patrice Evra spilaði í markalausu jafntefli Frakka og Geogíu-manna og Robin van Persie bjargaði einu stigi fyrir Hollendinga þegar hann skoraði jöfnunarmark á 94. mínútu í 2-2 jafntefli gegn Eistum.

Shinji Kagawa spilaði svo 75 mínútur í vináttuleik gegn Guatemala og var allt í öllu og átti stóran þátt í fyrstu tveimur mörkum Japana.

2

Reader Interactions

Comments

  1. DMS says

    7. september, 2013 at 11:43

    Hvaða stöðu er Fellaini að spila fyrir Belga? Er hann notaður þar sem AMC eða DM?

  2. Stefan says

    7. september, 2013 at 12:40

    frábært :) Gott að heyra góðar fréttir

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress