• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska deildarbikarkeppnin

Úrslit í augnsýn

Ragnar Auðun Árnason skrifaði þann 31. janúar, 2023 | Engin ummæli

United mætir Nottingham Forest á morgun, miðvikudaginn 1. febrúar á Old Trafford, í seinni leik undanúrslita enska deildarbikarsins. United sigraði fyrri leik liðanna 3-0 þar sem Rashford, Weghorst og Bruno skoruðu í talsvert þægilegum sigri. Leikurinn á morgun ætti því þannig séð að vera formsatriði, þriggja marka tap á heimavelli er bara hreinlega ekki í boði. Með sigri í einvíginu mun United mæta Newcastle í úrslitum á Wembley og í boði hinn margrómaði Carabao Cup, þann 26. febrúar.

Næsti leikur United er gegn Crystal Palace næsta laugardag og gæti vel verið að Erik Ten Hag myndi hvíla nokkra lykilmenn. Undirritaður hefur þó nokkrum  sinnum spáð því að Ten Hag muni hvíla leikmenn en svo ákveður hann sjaldan að gera það. Í leiknum gegn Reading síðustu helgi bættist við á meiðslalista United þegar Christian Eriksen lenti í hrottalegri tæklingu frá Andy Carroll og verður frá í nokkra mánuði. Ég mun spá því að Ten Hag leyfi sér að hvíla Casemiro hvort sem það er að taka hann snemma útaf eða byrja honum ekki.

 

Liðin

United:

Ég mun spá því að við fáum McFred miðju enda fullkominn til þess að drepa leiki og 0-0 væri alveg fínt, McTominay er þó eitthvað tæpur en McFred miðjan er samt spá mín. Kannski fáum við að sjá byrjunarliðsleik frá Kobbie Mainoo en samt ólíklegt. Þá langar mig að spá því að Sancho byrji þó að mér finnist það ólíklegt en ætla og að Rashford hvíli. Luke Shaw er þá búinn að vera með smá flensu þannig hann fær örugglega áframhaldandi hvíld.

1
De Gea
12
Malacia
5
Maguire
2
Lindelöf
29
Wan-Bissaka
17
Fred
39
McTominay
25
Sancho
8
Fernandes
21
Antony
27
Weghorst

 

Forest:

Ég veit ekkert hvernig Forest mun stilla upp, hvort þeir ætli að reyna að sækja til sigurs eða hvort þeir fari inn í þetta með hugan frekar við deildina og hvíli lykilleikmenn. Morgan Gibbs-White þeirra sprækasti maður er meiddur skv. Fotmotb og verður a.m.k. ekki með.

13
Hennessy
32
Lodi
30
Boly
4
Worrall
24
Aurier
5
Mangala
23
Freuler
22
Yates
14
Lingard
20
Johnson
39
Wood

 

 

0

Reader Interactions

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • sófinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Helgi P um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress