• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska deildarbikarkeppnin

Skjórarnir heimsækja United

Ragnar Auðun Árnason skrifaði þann 31. október, 2023 | 7 ummæli

Manchester United tekur á móti Newcastle á morgun (miðvikudag) klukkan 20:15. Helgin var dapurleg fyrir United stuðningsmenn, 0-3 gegn City á heimavelli og spilamennskan lítur ekkert mikið betur út. Það þýðir þó ekkert að leggjast í volæði sem er þó það sem United liðið virðist hafa gert allt þetta tímabil. Bikarvörnin heldur áfram í orkudrykkjakeppninni Carabao cup, en 4.umferð býður upp á úrslitarimmuna frá keppninni í fyrra, þar sem United sigraði Newcastle 2-0. Newcastle byrjaði tímabilið fremur hægt en eftir 3 töp í 4 fyrstu leikjunum hóf liðið að rétta úr kútnum og hafa einungis tapað einum leik síðan þá. Það eru nokkrir af lykil leikmönnum Newcastle meiddir þ.á.m. Sven Botman, Alexander Isak, Harvey Barnes og þá er Sandro Tonali í keppnisbanni vegna veðmála. United ætti vonandi að geta nýtt sér  fjarveru Sven Botman en Jamal Lascelles sem kom með krafti inn í lið Newcastle eftir meiðsli Botman er farinn að sýna sínar gömlu mistæku hliðar. Meiðslakrísan hjá United er aðeins farin að skána en þó eru þeir leikmenn sem eru á meiðslalistanum eiginlega allir byrjunarliðsmenn: Casemiro, Martinez, Shaw, Wan-Bissaka og Malacia.

United liðið hefur verið heillum horfið á þessu tímabili, ákefðina og baráttuvilja virðist alveg vanta í leikmennina. Leikmenn hreyfa sig lítið án bolta til þess að opna svæði fyrir samherja sína, oft á tímum nenna þeir ekki að hlaupa til baka í vörn og svo virðist liðið slökkva á sér 6-7 sinnum í leik. Besti og eiginlega eini góði leikur United á tímabilinu var þó í Carabao cup gegn Crystal Palace þar sem liðið sigraði sannfærandi 3-0. Ég held að Erik Ten Hag gæti breytt liðinu talsvert eins og hann gerði gegn Crystal Palace, leikmenn eins og Mainoo, Mejbri, Garnacho eða Pellistri gætu mögulega byrjað leikinn. Þá er talsvert líklegt að Varane byrji leikinn fram yfir Jonny Evans og að Reguilon komi inn í liðið í stað Lindelöf.

 

Líkleg byrjunarlið

United:
Ég er algjörlega að giska á byrjunarlið, ég held að Ten Hag hvíli Rashford sem hefur verið slakur allt tímabilið og mögulega byrji Mainoo. Amrabat hefur verið tekinn snemma útaf tvo leiki í röð og það gæti vel verið að McTominay byrji í stað hans. Eins og ég sagði þó þetta er bara gisk og til gamans gert.

 

Newcastle

Ég tel að Eddie Howe stilli upp frekar sterku liði þar sem þetta er ein af keppnunum sem Newcastle á virkilegan séns á að vinna.

 

Dómari: Robert Jones

 

Að lokum

Ég bið ekkert um sérstaklega mikið úr þessum leik og miðað við spilamennsku þessara tveggja liða undafarið þá býst ég ekki við miklu. Ég bið þó um að United liðið fari að sýna betri hliðar og spili af einhverri sannfæringu, það er orðið talsvert þreytt að horfa upp á lið sem virðist stundum varla reyna. Fjölmiðlaathyglin á United hefur vægast sagt verið neikvæð á þessu tímabili, hvort það sé eignarhald liðsins, spilamennska, leikmenn í fýlu eða lögsóttir leikmenn. Undirritaður vill taka það fram að þó að hann finni fyrir ákveðinni þreytu á að horfa á liðið þá skrifar hann þreytuna ekki á Erik Ten Hag. Það er hál brekka að ætla alltaf að reka þjálfara, fá nýjan, standa sig vel í eitt tímabil, byrja tímabil illa, reka þjálfara og endurtaka. Ábyrgðin liggur líka hjá leikmönnum sem margir hverjir virðast stundum varla nenna að klæða sig í United treyjuna. Mesta ábyrgðin hvílir þó hjá eigendunum sem virðast ekki vilja reka félagið almennilega heldur frekar kaupa 80 milljóna punda leikmann í lok hvers leikmannaglugga eða reka þjálfara til þess að beina athyglinni eitthvert annað.

 

7

Reader Interactions

Comments

  1. Arni says

    31. október, 2023 at 19:19

    Leikmennirnir eru búnir að missa trúna á Ten Hag og það sést bara á spilamennskuni við gætum alveg verið búnir að tapa fleiri leikjum

  2. Egill says

    1. nóvember, 2023 at 21:07

    Er einhver Pollýana herna til í að útskýra fyrir mér hver leikstíll ETH er, og hvernig hann á eftir að fara að skila okkur árangri?
    Ekki nóg með að prímadonnurnar þarna séu ekki að nenna að leggja sig fram fyrir liðið, þá eru nýju gæjarnir hans ETH verri en þeir sem voru á undan. Versta stjóraráðning í sögu félagsins.

  3. Elís says

    1. nóvember, 2023 at 21:15

    Get ekki beðið eftir.

    Gott að detta úr deildarbikar því að þá getur liðið einbeit sér að deildinni kjaftæðis frösum

  4. Einar Ingi Einarsson says

    1. nóvember, 2023 at 21:19

    þetta er hræðilegt

  5. Egill says

    1. nóvember, 2023 at 21:40

    0-3 undir á Old Trafford og Martial er ennþá inná að slaka á.
    Það eru ekki leikmennirnir sem eru að henda ETH undir rútuna, hann er að stökkva þangað sjálfur.
    Núna loksins gerir hann skiptingu, ca 17 min of seint eins og svo oft áður.
    Sacked in the morning!

  6. Dór says

    1. nóvember, 2023 at 22:13

    En einn stórleikur hjá Ten Hag þvílíkur þjálfari sem við erum með meira af þessu takk

  7. BjörnK says

    1. nóvember, 2023 at 23:00

    Geggjuð frammistaða en hún var bara hjá Newcastle.
    Það sem ergir mest að þetta var auðvelt hjá Newc.
    Gamli Fergie er eflaust steinhissa og brjálaður yfir getuleysi liðsins.
    Hvað er eiginlega í gangi hjá þeim.?
    Stór spurning

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • sófinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Helgi P um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress