• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska deildarbikarkeppnin

Undanúrslit deildarbikars á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 21. janúar, 2014 | 6 ummæli

Manchester United - SunderlandÞá er komið að því sem gæti hugsanlega orðið eini ljósi punkturinn á leiktíðinni. Sunderland kemur í heimsókn á Old Trafford og með því að vinna með tveggja marka mun, nú eða eitt núll og halda út framlenginguna getur United tryggt sæti sitt í úrslitaleiknum. Sá leikur yrði reyndar gegn City…

En það skiptir engu. Liðið þarfnast sárlega á öllum sigrum að halda til að lappa upp á laskaðan móralinn. Einhvern tímann hefðum við skutlað hálfu varaliðinu inná og ekki haft áhyggjur, nú mun hálft varaliðið þurfa að spila hvort eð er.

Liðinu spái ég svona

De Gea

Rafael Evans Jones Evra

Carrick Fletcher

Valencia Kagawa Januzaj

Welbeck

Annars er það auðvitað stórlega ólíklegt að Kagawa fái að spila, spurning hvort Hernandez og Welbeck verði báðir settir inn til að reyna að skora.

Síðan Sunderland unnu okkur rústuðu þeir Fulham 4-1 á útivelli og gerðu 2-2 jafntefli við Southampton. Þannig að það eru líklega fáir spenntir fyrir leiknum á morgun…

Annars hefur slúðrið verið óvenju öflugt síðstu 24 tímana. Nær öll blöð gera því nú skóna að United sé við það að gera tilboð í Juan Mata og talað um 40 milljónir punda í því samhengi. Ég býst því við að tilboðið hljóði uppá 10m punda og Anders Lindegaard…

Einnig átti miðvörðurinn Dante allt í einu að vera frágengin kaup frá Bayern München, en það var svo borið til baka en Dante segir samt United hafa áhuga. Dante er stór og sterkur strákur, þrítugur reynslubolti sem væri vissulega ákveðin lausn fyrir kjúklingana og gamalmennin sem vörnin hjá okkur virðist allt í einu vera orðin.

Þetta kemur allt í ljós næstu 9 daga, en í millitíðinni þurfum við að vinna eins og einn undanúrslitaleik!

Efnisorð: Sunderland Upphitun 6

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Bjarni says

    22. janúar, 2014 at 10:30

    Tökum þetta 3-1, ekki spurning :)

    0
  2. 2

    TN says

    22. janúar, 2014 at 14:50

    Jones á heima í hafsentinum og vonandi sannar hann það í kvöld !

    0
  3. 3

    DMS says

    22. janúar, 2014 at 15:24

    Mér líst virkilega vel á þetta byrjunarlið. Skil ekkert í Moyes að hafa ekki byrjað með Kagawa í holunni gegn Chelsea eftir að leikur liðsins breyttist mikið til hins betra á móti Swansea þegar hann var færður þangað og Januzaj á vinstri vænginn.

    Nú er bara að drullast til að rífa sig í gang og klára þetta Sunderland lið.

    Ps: Má Juan Mata spila í deildarbikarnum?….þ.e.a.s. ef svo færi að hann gangi til liðs við okkur…..og ef svo færi að við myndum komast í úrslitaleikinn? Kannski einum of mörg ef?

    0
  4. 4

    Keane says

    22. janúar, 2014 at 16:24

    Varðandi Mata, hann er cup-tied því miður.. Væri helvíti stórt skref áfram að ná að landa honum.
    Sigur í kvöld er algjört möst!

    0
  5. 5

    Keane says

    22. janúar, 2014 at 17:04

    http://fotbolti.net/news/22-01-2014/chelsea-hafnar-tilbodinu-i-mata-selja-hann-ekki-innan-englands

    0
  6. 6

    DMS says

    22. janúar, 2014 at 18:51

    @ Keane:
    Í hvaða frétt ert þú að reyna að linka?

    http://fotbolti.net/news/22-01-2014/ballague-allt-fragengid-og-mata-fer-til-united

    0

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Magnús Þór um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Arni um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Bjarni um Önnur ferð til Sevilla!
  • Egill um Real Betis 0:1 Manchester United
  • Helgi P um United 0 – 0 Southampton

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2023 · Keyrt á WordPress