• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Félagaskipti Leikmenn Staðfest

Ander Herrera er leikmaður Manchester United (staðfest)

Ritstjórn skrifaði þann 26. júní, 2014 | 5 ummæli

Svona ímyndum við okkur að Ander taki þessum fréttum
Svona ímyndum við okkur að Ander taki þessum fréttum

Herrera og Bobby Charlton
Herrera og Bobby Charlton

Þegar allir blaðamenn á helstu blöðunum í Englandi koma með nákvæmlega sömu frétt á sama tíma er ljóst að eitthvað er að fara að gerast. Við sáum þetta gerast þegar David Moyes var rekinn og við sáum þetta gerast þegar Louis van Gaal var ráðinn. Við sáum þetta líka í gær þegar Twitter fylltist skyndilega af tístum frá þessum blaðamönnum um að United væri við það að kaupa Ander Herrera, 24 ára gamlan miðvallarleikmann Athletic Bilbao.

Í dag kom svo staðfestingin. Fyrst kom yfirlýsing Athletic Bilbao um að Herrrera hafi greitt klásúluupphæðina til spænska knattspyrnusambandsins. Honum var þakkað samstarfið en í spænsku útgáfunni lýsti Athletic yfir vonbrigðum með ákvörðun hans .

Og svo kom manutd.com með þetta

https://twitter.com/ManUtd/status/482191641072390144

Herrera hefur þetta að segja:

Það er draumur að skrifa undir hjá Manchester United. Það var einn af hápunktum ferilsins að spila á Old Trafford í Evrópudeildinni. Ég er kominn til United til að hjálpa félaginu að ná markmiðum sínum. Ég kom á þriðjudag og er spenntur yfir að búa nú í Manchester og get ekki beðið eftir að leika minn fyrsta leik í hinni frægu rauðu treyju United. Ég mun aldrei gleyma tíma mínum hjá Athletic Club og þakka stuðningsmönnum og starfsmönnum fyrir allan stuðning þeirra og fyrst og fremst óska mínum frábæru fyrrum samherjum alls hins besta í framtíðinni.

Herrera var reyndar of óþreyjufullur í dag og beið ekkert eftir opinberri yfirlýsingu United til að breyta Twittersíðunni sinni:

Twitter haus Ander Herrera

Ander Herrera eru því fyrstu kaup Louis van Gaal sem knattspyrnustjóri Manchester United og fyrstu kaup félagins á tímabilinu. Við skulum vona að fleiri leikmenn fari að detta inn nú þegar farið er að líða á HM.

Við munum fjalla betur um Herrera á næstu dögum en þangað til geta menn kíkt á þetta:

Velkominn á Old Trafford, Ander Herrera!

Efnisorð: Ander Herrera 5

Reader Interactions

Comments

  1. Hjörvar Ingi Haraldsson says

    26. júní, 2014 at 16:13

    Kaupin þetta sumar líta núna strax betur út en kaupin seinasta sumar :)

    Ég er allavega mjög jákvæður fyrir honum, en ég var reyndar líka jákvæður fyrir Fellaini ;)

  2. Karl Gardars says

    26. júní, 2014 at 17:33

    Þetta er keppnis!

  3. DMS says

    26. júní, 2014 at 19:59

    One down….next up, Luke Shaw.

  4. Krummi says

    27. júní, 2014 at 17:08

    Two down… Next up, Arturo Vidal. (verst hvað ég hef litla trú á því)

  5. jonny says

    28. júní, 2014 at 03:00

    http://thepeoplesperson.com/wp-content/uploads/2014/06/herreravsunited.png

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress