• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Félagaskipti Slúður

Morgan Schneiderlin í dag?

Ritstjórn skrifaði þann 13. júlí, 2015 | 5 ummæli

Við bíðum nú eftir mynd af Bastian Schweinsteiger í United treyjunni en síðla kvölds í gær bárust þær fréttir að Morgan Schneiderlin hefði einnig verið í læknisskoðun og að United væri nú loks að ganga frá 24m punda kaupum á honum frá Southampton. Þetta kemur væntanlega í ljós í dag og þá ætti hann að fara með liðinu í æfingarferðina til USA ásamt Matteo Darmian, Bastian Schweinsteiger og Memphis Depay.

Schneiderlin

Þetta væri magnaður endir á magnaðri helgi

Efnisorð: Morgan Schneiderlin 5

Reader Interactions

Comments

  1. Ási says

    13. júlí, 2015 at 10:16

    Eigum allt í einu nóg af miðjumönnum, ekki oft á síðustu árum sem við höfum haft það lúxusvandamál, tek því fagnandi.

    Svo er spurning hvernig goggunarröðin verði á miðjunni ef allir eru heilir, mun Fellaini vera mikið á bekknum? Eða Mata? Verður gaman að sjá hvernig Van Gaal fer að þessu.
    Væri til í allavega einn hafsent, myndi setja það í forgang, og þá væri Otamendi betri kostur myndi ég segja, heldur en Ramos, aðallega þar sem Otamendi er fjórum árum yngri og var kosinn besti varnarmaður La Liga á síðustu leiktíð.

  2. Björn Friðgeir says

    13. júlí, 2015 at 11:48

    Myndir á twitter (sjá hér til hliðar!) af Schweinsteiger og Schneiderlin að máta nýju United jakkafötin!

    Staðfest er rétt ókomið greinilega!

    United fer í loftið kl 13:40 að íslenskum, og David de Gea með.

  3. Bjarni Ellertsson says

    13. júlí, 2015 at 11:55

    Sammála, ekki veitir af góðum miðjumönnum þar sem hægt er að vera með mismunandi afbrigði í varnar og sóknarleik. Hef ekkert á móti Otamendi, er hrifinn af attitudinu í argentískum leikmönnum og vil hafa þá nokkra í liðinu. Hef trú að við eigum eftir að kaupa einn varnarmann og sóknarmann áður en mótið hefst.

  4. Björn Friðgeir says

    13. júlí, 2015 at 11:58

    M.v. frammistöðuna síðustu daga þá held ég að það verði ekkert mál að klára Otamendi þegar við viljum það (þeas þegar Ramos/De Gea málið verður útkljáð). Hann er enn í fríi og kæmi hvort sem er ekki strax til Bandaríkjanna.

    Svo er mig farið að gruna að Woody fái að kaupa stjörnustriker. Vona bara það verði ekki á kostnað Di María

  5. Bjarni Ellertsson says

    13. júlí, 2015 at 12:27

    Einmitt Björn, vona að Di Maria verði ekki seldur, Hann mun nýtast okkur í vetur í meistaradeildinni (geri kröfu á að komast þangað), þó svo hann hafi átt erfiða tíma í fyrra. Það hræðast flestir hraða hans og útsjónarsemi. Verst að hann fær ekki að taka þátt í undirbúningstímabilinu vegna meiðsla og að vera í fríi. En hann er þetta extra sem Utd hefur alltaf haft.

    Sjáum til hvað gerist næstu vikurnar en staðan á liðinu er góð í flestum stöðum. get ekki beðið eftir fyrsta æfingarleiknum.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress