• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Félagaskipti Opin umræða Slúður

Lokadagur félagaskiptagluggans

Ritstjórn skrifaði þann 1. febrúar, 2016 | 11 ummæli

23.00 Lok, lok og læs.

https://twitter.com/espnfc/status/694294240130633730

21.40 Munið það sem við sögðum um Omar Elabdellaoui áðan? Gleymið þið því, hann er ekki á leiðinni samkvæmt þessum blaðamanni BBC.

https://twitter.com/SajChowdhury/status/694270022974201856

21.35 Nick Powell hefur gengið til liðs við Steve Bruce hjá Hull City. Powell verður á láni út tímabilið.

Good luck to @NPowell25, who has joined Hull City on loan until the end of the season. #mufc pic.twitter.com/2hU2m0NaBJ

— Manchester United (@ManUtd) February 1, 2016

21.13. Kannski eitthvað? Umboðsmaður norska landsliðsmannsins Omar Elabdellaoui segir að United sé að reyna að næla í kappann. Hann er 24 ára hægri bakvörður sem getur einnig spilað á miðjunni. Ekki ókunnugur Manchester-borg enda alinn upp hjá City.

Agent confirms Man United interested in signing his client. A last minute effort. https://t.co/zQCGoXr6ls

— Sport Witness (@Sport_Witness) February 1, 2016


21.00 
Hér er blaðamaður BBC að staðfesta að United hafi reynt að næla í Debuchy.

#AFC rejected #MUFC loan for Debuchy pre-Bordeaux deal. Sanogo to #CAFC loan, Gnabry will go but not tonight – Champ loan window open longer

— David Ornstein (@David_Ornstein) February 1, 2016

18:50 Powell er mættur á KC leikvöllinn

Nick Powell has arrived at the KC to conclude his loan deal. #hcafc are waiting on medical of goalkeeper Dušan Kusiak.

— Matt Dean (@mattdeanbbc) February 1, 2016

17.30 Jose Mourinho var staddur á Wembley í dag til þess að styðja framboð Gianni Infantino til forseta FiFA. Að sjálfsögðu var Mourinho spurður um United-starfið:

Mourinho had nothing to say about Pep or #MUFC as he arrived to support @Gianni_2016 at Wembley pic.twitter.com/cZMbCr8gFF

— Paul Kelso (@pkelso) February 1, 2016

17.20 Steindautt.

16.05 Neibb, ekkert að gerast.

14.40 Auðvitað má ekki gleyma að United hefur nú þegar gert risasamning í þessum glugga en fyrir nokkrum dögum samdi félagið við indónesíska fyrirtækið You.C1000 um að vera opinber orkudrykkjaframleiðandi United í Indónesíu og víðar í Asíu. Woodward, maður.

https://twitter.com/piersbarber18/status/692855073181806593

13.45 Jæja, aftur að glugganum. Nick Powell er mjög líklega á leiðinni til Steve Bruce í Hull á láni út tímabilið.

Hull City "very close" to loan signing of Nick Powell from Manchester United #hcafc #MUFC #bbcfootball

— Ian Dennis (@Iandennisbbc) February 1, 2016

Og svo er þetta skemmtilegt tís frá blaðamanni Manchester Evening News. Það kæmi manni svo sem ekkert á óvart ef Woodward myndi hlaða í einhver 30 milljón punda kaup sem svar United við útspili City.

https://twitter.com/amckeeganmen/status/694154315678744577

13.40 Ansi margt til í þessu.

#mufc left behind again. Missed out on Guardiola twice. Ignored Mourinho twice. And overlooked Klopp when he was available. Cash over glory.

— Samuel Luckhurst (@samuelluckhurst) February 1, 2016


13.10 
Þar fór það. Stærsta frétt gluggans hingað til. Pep Guardiola tekur við City í sumar. Fjandinn hafi það.

City statement on Pep G and Pellegrini pic.twitter.com/NFnOdH6nva

— jamie jackson (@JamieJackson___) February 1, 2016

13.00 Nú á Arsenal að hafa hafnað lánstilboði frá United í Debuchy og er hann á leiðinni til Bordeaux.

Arsene Wenger turned down an offer from Manchester United for Mathieu Debuchy before sanctioning his loan to Bordeaux (L'Equipe) #AFC #MUFC

— Matt Spiro (@mattspiro) February 1, 2016

12.30 Blaðamaður BBC sem sér um að fjalla um Manchester United segist eiga í vændum rólegan dag.

Usual mass of rumours around @ManUtd but I am told to expect a quiet day, whatever that means.

— Simon Stone (@sistoney67) February 1, 2016

12.00 Lítið að frétta og því við hæfi að rifja upp þennan frábæra leik við Arsenal sem fór fram á þessum degi fyrir 11 árum.

Ég mun aldrei gleyma þessum leik. Mourinho var á sínu fyrsta tímabili með Chelsea og Arsenal var mjög öflugt á meðan okkar menn höfðu varla gert neitt af viti í 1-2 tímabil með menn eins og Djemba-Djemba og Liam Miller. Eftir að horft á þennan leik fannst manni þó kannski eins og Ferguson gæti snúið taflinu sér í vil eftir allt saman. Og markið hjá John O’Shea…vá



11.30 
Nú á Mathieu Debuchy að vera efstur á óskalista United. Hann hefur lítið fengið að spila hjá Arsenal og Arsene Wenger er búinn að gefa það út að hann megi fara á láni. Setjum þetta í ólíklega flokkinn. Afhverju ætti Arsenal að lána United hægri bakvörð?

Það er óhætt að taka undir þessi orð:

Bara ef LVG hefði haldið í menn eins og Rafael gætum við sleppt svona gríni #djöflarnir https://t.co/McFymjmuPo

— Daníel Freyr 🇺🇦 (@danielfj91) February 1, 2016

United going for Debuchy (and needing him) the flip-side of them just letting Arsenal have Silvestre in 2008.

— Miguel Delaney (@MiguelDelaney) February 1, 2016

11.00 Nú segir slúðrið að Barcelona sé að íhuga boð í Juan Mata og að United sé opið fyrir því að leyfa honum að fara. Í sumar.

#mufc Barca consider summer deal for Juan Mata. Understand meeting held between Barca & his reps recently in Spain https://t.co/B2ISwAu6sA

— Adam Crafton (@AdamCrafton_) February 1, 2016

10.30 Geisp. Voða lítið að frétta eins og við var að búast. Helsta slúðrið er í kringum Renato Sanchez, leikmann Benfica, en ekkert konkret samt. Það helsta í fréttum er líklega að í gær var dregið í 5. umferð FA-bikarsins. United heimsækir lið Shrewsbury sem er í bullandi fallbaráttu í C-deildinni. Svo á sá mikli meistari Darren Fletcher afmæli í dag, óskum honum til hamingju með það.

 07.00 Þetta hefur verið aaaaaansi hreint rólegur gluggi hjá okkar mönnum og það eru fáir sem búast við því að United muni bæta við sig einhverjum leikmönnum áður en að skellt er í lás klukkan 23 í kvöld. Blaðamenn Manchester Evening News vilja meina að mögulega sé bakvörður í sigtinu og einhverjir segja að United muni reyna að næla í Sadio Mane frá Southampton.

Við hér á Rauðu djöflunum búumst ekki við neinum flugeldum en mögulega gætu einhverjir leikmenn farið út á láni í dag, líklega Nick Powell. Við fylgjumst grannt með að venju og munum uppfæra þessa færslu fram eftir degi og þangað til glugginn lokar í kvöld.

Inn

Enginn enn sem komið er

Út

Victor Valdes Lán út tímabilið – Standard Liege
Ben Pearson Kaupverð óuppgefið – Preston North End
Liam Grimshaw Kaupverð óuppgefið – Preston North End
Sam Johnstone Lán út tímabilið – Preston North End
11

Reader Interactions

Comments

  1. Auðunn Atli says

    1. febrúar, 2016 at 08:05

    Samkvæmt pressunni þá hafa eigendur Man.Utd fyrirskipað niðurskurð hjá liðinu, annar niðurskurðurinn í rétt tæpt ár.
    Það er eitthvað veri að spara aurinn enda þurfa þessir eigendur að fá sitt..

  2. Björn Friðgeir says

    1. febrúar, 2016 at 10:54

    Auðunn: Við erum með færslu reddí um þetta mál.Vildum heyra einhverja staðfesting en bara Express. En sú færsla er næsta ómyrk í máli um þetta.

  3. Björn Friðgeir says

    1. febrúar, 2016 at 12:22

    Þessum niðurskurðarorðróm er neitað af innanbúðarmanni
    http://www.manchestereveningnews.co.uk/sport/football/football-news/manchester-united-deny-glazers-ordered-10814858

    Ef þetta er samt rétt þá kemur það í ljós fyrr en síðar

  4. Auðunn Atli says

    1. febrúar, 2016 at 13:38

    Ég vonast til þess að þessar niðurskurðar fréttir séu ekki á rökum reistar.

  5. Björn Friðgeir says

    1. febrúar, 2016 at 15:18

    Hvern vil ég sjá sem næsta stjóra United? Í röð:
    1. Pochettino
    2. Pellegrini
    3. Mourinho
    …
    …
    …
    100. Ryan Giggs.
    …
    …
    1000. Sir Alex

  6. Rúnar Þór says

    1. febrúar, 2016 at 17:09

    vá hvað knattspyrnan hefur breyst frá Arsenal leiknum, þarna voru alvöru naglar og tæklingar og asi, nú má ekkert í dag

  7. Omar says

    1. febrúar, 2016 at 21:08

    Takk strákar fyrir að halda utan um þetta, veit ekki hvernig maður hefði getað fylgst með öllum þessum hreyfingum sem búnar eru að vera á hópnum í þessum glugga ef ekki hefði verið fyrir samantektina hjá ykkur sl. klukkutíma :) #dauðiglugginn
    GG

  8. Tryggvi Páll says

    1. febrúar, 2016 at 21:13

    Takk, þetta hefur verið mikil vinna enda brjálað að gera.

  9. Óli says

    1. febrúar, 2016 at 22:59

    Mér þætti Pellegini alveg áhugaverður kostur.

    En hvað gerist ef City og Bayern mætast í meistaradeildinni? Verður það ekkert vandræðalegt?

  10. Halldór Marteinsson says

    2. febrúar, 2016 at 00:28

    Pochettino er áhugaverð pæling, Vitiði hvað hann er með langan samning hjá Tottenham? Líklega tvennt gjörólíkt að reyna að fá hann eftir því hvort hann á langt eða stutt eftir af samningnum sínum

  11. Kjartan says

    2. febrúar, 2016 at 00:31

    Einkennilegur gluggi, ekki af því að keyptum engan leikmann, heldur vegna þess að Woodward klúðraði aldrei þessu vant engum félagsskiptum á seinustu stundu. Dragović hefði verið raunhæfur kostur, þá gæti Blind leyst af á miðju eða í vinstri bak.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress