Í dag fór fram fyrsta viðureign Manchester United á því herrans ári 2020 en hún var af dýrari gerðinni. Erkifjendurnir í Arsenal tóku á móti Rauðu djöflunum á Emirates vellinum en Ole Gunnar Solskjær gerði örfáar breytingar frá leiknum gegn Burnley um síðustu helgi.
Á bekknum voru þeir Romero, Mata, Greenwood, Jones, Young, Pereira og Williams
Mikel Arteta stillti upp liði sínu ekki ósvipað og gegn Chelsea
Bekkurinn : Ceballos, Holding, Nelson, Guendouzi, Willock og Saka.
Fyrri hálfleikur
Leikurinn fór ágætlega af stað en strax á upphafsmínútunni átti Rashford auðvelt skot sem Bernd Leno greip. Mínútu síðar komst Daniel James upp vinstri kantinn bakvið Kolasinac sem neyddist til að brjóta á þeim velska og uppskar gult spjald fyrir vikið. Ekkert kom þó úr aukaspyrnunni annað en skyndisókn fyrir heimamenn sem endaði með því að Nemanja Matic braut á Lacazette. Fjörug byrjun og eflaust góður leikur framundan.
En á 8. mínútu dróg til tíðinda þegar Aubameyang fékk boltann á vinstri vængnum sem kom boltanum á Kolasinac sem renndi boltanum út í teig þar sem Nicholas Pepe var einn og óvaldaður og setti boltann í fjærhornið. 1-0 fyrir heimamenn strax á upphafsmínútunum og þeir virtust bara ætla að gefa í eftir markið. Næsti tíu mínútna kafli einkenndist þó af miðjumoði og engu öðru en hálffærum.
Heimamenn fengu þó ágætisfæri eftir um hálftíma leik, fyrst komst Lacazette í frábært færi þegar hann lét Maguire líta út fyrir að vera ódýrasta varnarmann heims en skot hans rataði í innkast. Síðan komst Torreira í skotfæri en skot hans rétt framhjá. Arsenal virtust mun líklegri til að bæta við en United að jafna. Pepe fékk líka gott skotfæri eftir mistök hjá de Gea þegar sá spænski hreinsaði frá markinu sínu beint á fílabeinsstrendinginn en skot hans í stöngina.
Þá var komið að hornspyrnu hjá heimamönnum þar sem Lacazette fleytti boltanum áfram og de Gea sló boltann í bakið á Lindelöf og beint fyrir fætur Sokratis. Grikkinn þakkaði nýársgjöfina vel og hamraði tuðrunni í þaknetið og tvöfaldið forystu Arsenal.
Rétt undir lok fyrri hálfleiks krækti James í aðra aukaspyrnu við hornið á vítateignum en út fyrirgjöfinni fékk Maguire dauðafrían skalla en beint í hendurnar á Leno í markinu. 2-0 í hálfleik og ljóst að Ole Gunnar þurfti almennilega að vekja menn, þá sérstaklega Matic, Fred og Lingard sem allir áttu dapran fyrri hálfleik.
Síðari hálfleikur
Fyrsta alvöru færi United í síðari hálfleik kom á 54. Mínútu þegar Daniel James átti lúmskt skot milli lappanna á varnarmanni Arsenal en auðvelt fyrir Leno þótt skotið hafið verið alveg út við stöngina. United var mun meira með boltann þessar upphafsmínútur hálfleiksins en það hefur ekki verið góður fyrirboði fram til þessa á leiktíðinni.
Áður en klukkustund var liðin ákvað Solskjær að gera tvöfalda breytingu og kippti Jesse Lingard og Daniel James útaf en í þeirra stað komu þeir Mason Greenwood og Andreas Pereira. Þeir voru ekki lengi að láta að sér kveða en enginn annar en Nemanja Matic fékk að dansa hægan vals fyrir framan vítateig heimamanna og kom boltanum á Pereira sem var fyrir aftan varnarlínu Arsenal og átti skot sem endaði í hliðarnetinu.
Í kjölfarið fylgdu betri sóknir hjá United en það sem liðið bauð upp á í fyrri hálfleik. Engu að síður voru heimamenn alltaf hættulegir með skyndisóknum sínum. Næsta færi United kom stuttu síðar þegar Martial lék á hvern varnarmanninn á fætur öðrum og setti boltann út í teig en þar barst hann til Rashford sem ákvað að snúa sjálfur og skjóta himinhátt yfir markið.
Næsta færi kom úr innkasti þegar Martial fleytti boltanum með hælnum í hlaupaleið fyrir Greenwood en laust skot hans var ekki mikið að valda Leno vandræðum. United hélt áfram pressunni en voru langt frá því að vera beittir. Í veikri von um að laga stöðuna sendi Solskjær Juan Mata inn á í stað Matic þegar um tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Mata átti nú eina sturlaða sendingu inn fyrir vörn Arsenal sem rataði á Rashford en Leno var fljótur út úr markinu og lokaði vel á hann. Í sömu sókn fengu þó United aukaspyrnu rétt fyrir utan d-bogann sem Pereira og Fred gerðu sig líklega til að taka. Fred tók spyrnuna og sú var aldrei nálægt því að vera mark nema hugsanlega í amerískum fótbolta. Eftir það flautaði Kavanagh til leiksloka og þessum 90 mínútna hrylling loksins lokið.
Það verður áhugavert að sjá hvernig Solskjær útskýrir þetta getuleysi og skort á áræðni en leikmenn United mættu varla til leiks nema þá kannski Martial sem var eini ljósi punkturinn enda spólaði hann sig í gegnum vörn heimamanna í ófá skipti þó ekkert hafi orðið úr því.
Varnarleikur liðsins var mjög dapur, Matic náði ekki að hlífa vörninni að neinu leyti og var seinn í flestum sínum aðgerðum og pressaði ekki með liðinu. Svipað með elskulegan Lingard sem virðist algjörlega með hausinn á allt öðrum stað, skiljanlega, en sendingar hans og ákvarðanataka var langt undir frá því að teljast ásættanlegt.
Fred var mistækur en þó duglegur að vanda en kórónaði frammistöðu liðsins með þessari aukaspyrnu undir lok leiks. Sóknartríóið náði ekkert að nýta sér sprengikraft sinn og vörn Arsenal leit betur út en hún hefur gert allt tímabilið fram að þessu. Ferlegt að hugsa til þess hversu illa okkur tekst að nýta það þegar önnur lið misstíga sig í baráttunni um meistaradeildarsæti en Chelsea situr sem áður í 4. sætin fimm stigum á undan United í sætinu á eftir.
Næsti leikur er ekki síður erfiður en þá taka Úlfarnir á móti okkur en leikurinn fer fram n.k. laugardag kl 17:30.
Sigurður E Guðbrandsson says
Poga fer í janúar sem er bara fínnt, þá þarf ekki að vera að spá í þessum gosa meira.
Tómas says
Hörmungar fyrri hálfleikur! Eiginlega bara vandræðalegt. Á eftir í öllu, engin sköpun. Hræðilegur varnarleikur.
Maður sér ekki miklar lausnir á bekknum. Ole þarf að hrista vel upp í þeim í hálfleik.
Karl Garðars says
Þvílíkir andlausu haugaletingjar.
Þetta endar í 8-0 með þessum aumingjaskap.
Til hvers er Shaw bara inni á?
Audunn says
Að staðan skuli ekki vera 6-0 í hálfleik er nánast kraftaverk.
Miðjan hjá Manchester United er með því versta sem maður hefur séð ever.
Það skiptir engu máli hvaða sóknarmenn eru til staðar ef þeir fá ekkert til að vinna úr.
Ole verður að bregðast við í hálfleik og koma með einhverjar lausnir.
Þetta er algjörlega skelfileg frammistaða.
gummi says
Ég get ekki horft meira á þetta lið meðan þessi trúður er að stjórna þessu liði
Joi says
Út með Lindgard og Matic.
Helgi P says
Eru þið hættir með podkostinn
Friðrik Már Ævarsson says
Nei en það hefur reynt erfitt að koma mönnum saman til að taka upp djöflavarp. Stendur til að taka upp sem fyrst.
Audunn says
Ole Gunnar þarf að útskýra þennan svakalega óstöðugleika liðsins og hvernig hann ætlar að taka á honum.
Einn leikinn er liðið mjög gott en þann næsta eins og lið sem hefur aldrei spilað saman.
Nú eru tveir miðjumenn frá fram í Mars og þeir sem eru heilir eru bara alls ekkert sérstaklega góðir leikmenn. Þannig að vandamál Manchester United eru mörg og út um allt.
Tveir miðjumenn og tía er það sem liðið þarf núna strax.
Mata og Lingard geta farið í staðinn ásamt Rojo og Jones.
MSD says
Þessi leikur var skelfing. Miðjan er engin hjá okkur. Hún er léleg að styðja við sóknarmennina og léleg í að covera fyrir framan vörnina. Við náum 1-2 góðum leikjum og svo kemur drullan alltaf aftur og alltaf er það sama vandamálið, miðjan.
Lingard, 0 assist og 0 goals árið 2019. Nú hefur komið í ljós að hann hefur átt erfitt utan vallar því það voru veikindi í fjölskyldunni og hann þurfti að sjá um einhverja ættingja, ég hef ekki farið út í að setja mig of mikið inn í það. Flest venjulegt fólk myndi kalla þetta bara lífið, það hendir í þig allskonar hindrunum. Að auki tapaði J-Lingz fatalínan hans peningum, sennilega af því hann gat ekki sinnt henni nógu mikið eða hvað?
Bottom line, gaurinn er ekki nógu góður fyrir Man Utd ef liðið ætlar sér að slást á toppnum. Hann skapar ekkert og er skelfileg tía. Matic er of hægur og svifaseinn, ítalska deildin væri fín fyrir hann. Einnig myndi ég vilja sjá okkur bjóða hann til Mourinho í skiptum fyrir Eriksen. Það er svakalegt bromance á milli Móra og Matic. Mata er toppnáungi en orðinn of svifaseinn líka fyrir okkur, því miður.
Við erum 2-0 undir og ekki mættir til leiks, Ole situr sem fastast og fylgist með. Hvar er peppið? Hvar er leiðsögnin til leikmannanna? Ég veit að það er ekki hægt að taka leikhlé en væri ekki nær að standa upp og reyna að breyta einhverju með köllum inn á völlinn? „Shaw, taktu hausinn úr rassgatinu á þér!“
Svo þetta mál með Pogba. Guð minn góður. Pogba þetta og Pogba hitt. Er hann með? Hvar er hann? Af hverju er hann ekki með? Hvenær kemur hann aftur? Hann er frá í nokkrar vikur út af „discomfort“ í ökklanum var svarið frá Óla. Svo næsta svar eftir leik var að honum var ráðlagt að fara í aðgerð af „fólkinu sínu“ og sennilega spilar hann ekkert í janúar. Enn hentugt, akkúrat sjáanlegur aftur þegar glugginn lokast þá? Snákurinn Raiola er sennilega kominn með puttana í málin. Það á ekki að stunda viðskipti við þann mann, alltof mikið vesen og distractions sem fylgja því. Ég er fylgjandi sölu á honum bara til að losna við öll þessi vandamál, trúi ekki öðru en stjórinn verði líka feginn að geta einbeitt sér að liðinu fremur en að svara spurningum um Pogba. Ég geri mér grein fyrir hæfileikum Pogba þegar hann er upp á sitt besta en því miður fyrir okkur þá munu þeir aldrei verða eins miklir og við vonum ef hann vill sjálfur fara annað.
Er ekki bara málið að gefa Gomes séns í tíunni og Gardner á miðjunni fyrir Matic? Getur þetta versnað eitthvað?
Karl Garðars says
Amen!
JOG says
MSD: Amen. Ég hef engu við þetta að bæta.
Audunn says
Já þetta er rétt MSD.
Tölfræði miðjumanna Man.Utd er afskaplega slæm og Ole og hans lið virðast ekki eiga nein svör við því.
Þá er ég aðeins að tala um þessa menn sem eru að spila á miðri miðjunni okkar sem eru þá Lingard, Pogba, Matic, Scott McT, Pereira og Fred.
Þessir menn hafa samtals skorað 4 mörk (Scott McT 3 og Pereira 1) og gefið 6 stoðsendingar (Pereira 3, Pogba 2, Scott McT 1)
Við erum að tala um 6 leikmenn Man.Utd, þetta er náttl engan vegin nógu gott og ef Ole sér þetta ekki þá má guð vita hvað hann er að spá.
Við þurfum 25 mörk frá þessum mönnum yfir eitt tímabil og svona 30 stoðsendingar.
Til samanburðar þá hafa Maddison, Tielemans og Ndidi skorað 11 mörk og gefið 7 stoðsendingar, bara þeir þrír hjá Leicester.
Hjá Chelsea hafa Mason Mount, Willian og Kanté skorað 12 mörk og gefið 7 stoðsendingar. Ég nenni ekki að skoða hvernig þetta er hjá liðum eins og Liverpool og City .
Ég heyrði áhugavert comment frá Rio og RVP á BT Sport í gær, Rio sagði frá því að þegar Ferguson keypti RVP þá boðaði hann nokkra lykil leikmenn eins og Giggs, Rooney, Scholsy, Carrick og Rio á fund og sagði þeim og sýndi á myndböndum hvernig þeir ættu að finna RVP.
Hvaða sendingar inn á hvaða svæði myndu skila mörkum, hann myndi skora þau, þeir yrðu að senda inn á þessi svæði.. Einfalt mál. Og ef menn fyndu ekki þessi svæði þá yrðu þeir settir á bekkinn…. PUKTUR.
Hann raðaði inn mörkum þetta tímabilið.
Hvað Pogba varðar þá er Ole nánast að gera sig að fífli í beinni. Ég næ ekki þessu leikriti í kringum hann.
Óskar G Óskarsson says
Solskjaer segir að föruneyti pogba hafi ákveðið að hann fari i aðgerð.
Er þetta bara ákvörðun sem Raiola getur tekið?
Þarf félagið ekki að taka þessa ákvörðun?
Þetta er orðið óþolandi kjaftæði með pogba.
Hann er buinn að koma illa fram við united, nu a united bara að henda honum uppí stúku ef ekkert lið er tilbuið að borga 130m+ i jan.
Þannig að hann verður alveg örugglega ekki i franska hópnum a EM
Heiðar says
Ole Gunnar virkar á löngum köflum eins og vandræðalegur fjölmiðlafulltrúi fyrirtækis sem er með allt niðrum sig. Svarar mun jákvæðara en staðan gefur til kynna, lýgur (eins og allt bendir til að sé verið að gera vegna Pogba) og heilt yfir reynir að fegra eitthvað sem ekki er hægt að afsaka.
Það eru vissulega of margir slakir leikmenn í hópnum en Ole er ekki að ná að virkja mannskapinn sem skildi, það er nokkuð ljóst.
Erlingur says
Setja Lingard í holuna, og hann mun blómstra
Óskar G Óskarsson says
Biddu og hvar er lingard buinn að vera að spila?
Sindri Guðjónsson says
Ég er ekki United maður, bara að lesa þráðinn… Mér fannst nokkuð bratt að ráða Ole í eins stóran klúbb og United þegar hann var ráðinn. Hann hefur ekki ferilskrá sem stjóri til að réttlæta það. Fer maður úr norska boltanum í topp 6 klúbb í Premier League? Hann hefur ekki þjálfað eða stýrt neinu öðru liði en Molde. Mér fannst eins og stuðningsmenn United í kringum mig hefðu blindan púnkt gagnvart honum, þar sem hann var góður leikmaður fyrir liðið og of mikla trú. Mér finnst annars þokkalega af sér vikið að vera í 5. sæti að teknu tilliti til alls, en ekki að vera með uþb 50% árangur (8 sigrar, 7 jafntefli, 6 töp).
MSD says
@Sindri Guðjónsson – reyndar stýrði Ole líka Cardiff. Þeir féllu…
Núna eru fregnir um að Inter, Juve og fleiri félög séu komin í viðræður við Eriksen. Við ætlum sennilega að láta hann eiga sig því hann er ekki 19 ára og hefur nú þegar sannað sig í EPL. Hann er nota bene jafn gamall og Jesse fokking Lingard, okkar „stórefnilegi“ leikmaður sem virðist aldrei eldast og aldrei hætta að vera efnilegur þar sem hann er jú uppalinn leikmaður!
Maður er orðinn svo þreyttur á þessu kjaftæði alltaf. Ég held að Heiðar hér að ofan hafi hitt naglann á höfuðið þegar hann lýsti Ole og viðtölum hans eins og vandræðalegum fjölmiðlafulltrúa sem þarf að fegra hlutina. Spurning hvort að næsta jobbið hans verði ekki bara hjá Samherja.
Varðandi miðvarðarparið okkar. Þá finnst mér Maguire ágætis varnarmaður en hann er stór og seinn. Lindelof finnst mér á tímum of linur og slakur í loftinu. Þeir mega eiga það báðir tveir að þeir eru ágætir með boltann í fæturna, en mér finnst að miðvarðarpar verði að bæta hvorn annan upp. Ef við ætlum að spila með Maguire, stóran, sterkan og heldur svifaseinan miðvörð, þá verði partnerinn hans að vera mjög snöggur. Ég hef oft velt fyrir mér hvort AWB væri ekki bara flottur miðvörður þar sem hann er mjög sterkur varnarlega, góður tæklari og snöggur. En hans veikleiki er einmitt sóknarhlutverkið í bakvarðarstöðunni.
Sindri Guðjónsson says
Ég er vitlaus en það kemur mér samt á óvart að hafa gleymt þessu með Cardiff. Shit.
Helgi P says
Við þurfum að fá topp stjóra og það strax þá gættum við náð þessu 4sæti
Audunn says
Já við gætum kallað Ole fjölmiðlafulltrúann hér eftir 😃😃
Ole er að sjálfsögðu draumur eiganda og Woodward, hann er næs gæji sem segir réttu hlutina fyrir þá.
Allt er svo æðislegt og frábært og bara spurning um smá meiri tíma.. svona korter ca.
Korter í dag, korter eftir viku og tvær, korter eftir tvo mánuði og tvö ár.
Og alveg sama hvað eigendur og stjórnendur henda í hann það er allt æðislegt. Þótt þeir myndu kaupa Bebe aftur. Þá yrði Ole mjög ánægður og þakklátur.. svona eins og honum fannst Matic og Fred standa sig mjög vel gegn Arsenal… Annaðhvort veit hann ekki betur eða hann hefur engar skoðanir.. nema þá að hann sjái leikina allt öðruvísi en flestir aðrir.
Hvað varðar miðvarðar mál liðsins þá er það ekki sem er forgangsmál að mér finnst.
Ég hef trú á að annaðhvort Eric Bailly eða Tuanzebe geti myndað sterkt par með Maguire.
Ég held að eitt af vandamálunum Maguire sé Linderlof. Hann er svo mikið all over the place að það er örugglega erfitt að mynda par með honum og treysta.
Forgangsmál Manchester United í dag eru tveir alvöru miðjumenn, sexa og átta eins og kallast og ein tía.. þessar þrjár stöður eru í algjörum forgangi.
Þessir menn eru til þarna úti. Það er bara að sækja þá núna.. ekki seinna en eftir hádegi á morgun.
Birgir says
Maguire er sæmilegur hafsent, og nýtur sín ágætlega þegar liðið liggur aftarlega. Veikleikar hans voru augljósir hjá Leicester. Að borga metfé fyrir meðalmenni er mér ráðgáta.
Birgir says
Annars fer þetta grínlaust að verða spurning um að kalla Dean Henderson til baka úr láni. Sá hefur staðið sig í vetur.
gummi says
Maguire er að verða þvíligt flopp kaup þetta er leikmaður sem er kannski 25 miljóna kr virði hann er búinn að vera ómurlegur á tímabilinu
Audunn says
Er algjörlega ósammála því að Maguire sé eitthvað flopp, auðvita eru 80 milj pund helv mikill peningur en svona er nú bara markaðurinn í dag.
Ég veit ekki hvern United hefði átt að kaupa í staðinn annan en De Ligt en sá leikmaður var aldrei að fara að koma til United.
Skil heldur ekki afhverju United ætti að kalla Henderson tilbaka, hann er aldrei að fara að henda De Gea út úr byrjunarliðinu þótt De Gea hafi gert nokkur mistök.
Henderson er að fá mikla reynslu þar sem hann er og er hjá mjög góðum þjálfara. Flott að hafa strákinn þarna og safna allri þessari reynslu
MSD says
United eru reyndar ekkert með mjög slæmt varnarrecord ef tekið er mið af mörkum fengin á sig. Erum með einu marki meira fengin á okkur en Man City og betra record heldur en Chelsea, United búnir að fá 5 mörkum færra á sig en þeir.
Sammála Auðunn. Það er helvítis markaskorunin sem er aðal vandamálið og skortur á sköpun frá miðjunni. Ég held að Maguire sé mjög flottur leiðtogi og muni reynast okkur vel. Við viljum einmitt leikmenn sem eru með hausinn í lagi og vilja spila fyrir okkur eins og hann.