• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska bikarkeppnin

Arsenal heimsækir Old Trafford

ellioman skrifaði þann 8. mars, 2015 | 3 ummæli

Þá er komið að því gott fólk. Á morgun hefst fjörið og með orðinu „fjörinu“ á ég við að United fer í gegnum erfiðasta leikjaprógramm tímabilsins þar sem það kemur í ljós hvort liðið fær að spila í meistaradeildinni á næsta tímabili og hvort Van Gaal nær að vinna sinn fyrsta titil (af vonandi mörgum). Allt þetta hefst með heimsókn Arsenal á Old Trafford í stórleik sjöttu umferðar FA bikarsins.

Svona lítur þetta annars út fyrir okkar menn næstu sjö vikurnar:

Það eru sjö lið eftir í FA bikarkeppninni, Aston Villa, Liverpool, Blackburn, Bradford City, Reading og svo United og Arsenal. Villa er komin áfram í næstu umferð en Bradford gegn Reading og Liverpool gegn Blackburn enduðu báðir með 0-0 jafntefli. Bradford/Reading leikurinn spilast 16. mars en það er ekki komið í ljós hvenær Liverpool/Blackburn spilast og verður fróðlegt að sjá hvernig það endar því Liverpool mætir Swansea 16.mars, United 22.mars og Arsenal 4.apríl og gæti leikur þarna inn á milli haft áhrif á þeirra baráttu um 3/4 sætið. Ef United nær að komast áfram í næstu umferð mun þetta leikjaprógram fyrir ofan breytast eitthvað þar sem umferðin verður spiluð á sama tíma og United á að mæta Chelsea á Stamford Bridge í apríl. En nóg um þetta leikjaprógramm og færum okkur yfir í leik morgundagsins.

Upphitunin

Byrjum þetta á einni spurningu: Eru Arsenal okkar erkifjendur í FA bikarnum?

Fjórtán sinnum hafa liðin mæst í þessari bikarkeppni, United unnið sjö, Arsenal fimm + eina vítaspyrnukeppni. Átján sinnum hafa bæði lið tekið þátt í úrslitaleik bikarkeppninnar, ellefu sinnum hafa þau unnið hann og sjö sinnum hafa þau tapað. Sumsé hnífjafnt sérstaklega ef við tökum frammistöðu liðanna í deildinni á þessu tímabili (Arsenal 3.sæti 58 stig / United 4.sæti 57 stig). Það sem Arsenal hefur samt framyfir United fyrir þennan leik er að liðið er ríkjandi bikarmeistari, eftir að hafa unnið Hull 3-2 og eyðilagt eftirlætis heimasíðu flestra stuðningsmanna annarra liða (sincearsenallastwonatrophy.co.uk), en United hefur ekki unnið bikarinn í heil ellefu ár!

Enginn leikmaður United hefur unnið bikarinn með liðinu og aðeins Van Persie og Mata hafa unnið bikarinn, en þá með Arsenal & Chelsea. Þetta er svo sannarlega eitthvað sem þarf að bæta úr og eigum við ansi góðan möguleika á því þetta árið. Það er því ekki hægt að hafa það meira viðeigandi en að slá út ríkjandi meistara á leið okkar að bikarnum, sérstaklega eftir þessa leiðindaumræður um auðvelda leið United að 8 liða úrslitunum (tvíeggjað sverð þar sem tap myndi einungis ýta frekar undir þær umræður). Fyrir áhugasama þá hafa viðureignir United og Arsenal farið svona:

Liðin eru einnig ansi sambærileg þegar við lítum á form liðanna. Þótt manni líði ekki þannig þessa dagana þá er United samt á ágætis róli, í síðustu sjö leikjum hefur liðið unnið fimm, gert eitt jafntefli og tapað einum. United skoraði a.m.k. eitt mark í þessum sjö leikjum, 13 í heildina og fengið á sig fimm. Aðalvandamál liðsins hefur verið frammistaða liðsins á útivelli (Heima: 14 leikir – 34 stig Úti: 14 leikir – 19 stig) og því er maður nokkuð kátur að sjá þennan leik spilaðan á Old Trafford.

Arsenal á sama tíma hefur unnið 4 leiki, gert 1 jafntefli og tapað tveimur í síðustu sjö. Þeir skoruðu 11 mörk og fengu 9 mörk á sig. Útivallarframmistaða Arsenal hefur verið þó skárri en United (Heima: 13 leikir – 30 stig Úti: 15 leikir – 24 stig). En við skulum hafa í huga að í þessum sjö leikjum mættu þeir Liverpool, Southampton, City og Tottenham þannig að það við skulum taka létt í þennan samanburð þar sem erfiðustu andstæðingar United voru West Ham og Swansea.

Í gær fengum við fréttir af því að Evans hafi fengið sex leikja bann fyrir að hafa hrækt á/að Papiss Cisse í leiknum gegn Newcastle á miðvikudaginn. Sem betur fer er Luke Shaw eini varnarmaður United á meiðslalistanum og samkvæmt PhysioRoom gæti hann spilað á morgun.

Svona vil ég sjá liðið á morgun:

1
De Gea
5
Rojo
12
Smalling
4
Jones
25
Valencia
17
Blind
16
Carrick
18
Young
21
Herrera
7
Di Maria
10
Rooney

Áhugaverð tölfræði

  • United hefur unnið 70% af síðustu 20 heimaleikjum, gert jafntefli í 5% þeirra og tapað fjórðungi, heilum átta leikjum.
  • Í þessum 20 leikjum hefur United haldið hreinu í sex og unnið þá alla.
  • En í fjórum þeirra hefur United ekki skorað og tapað öllum, sumsé engin 0-0 jafntefli.
  • Í síðustu 20 útileikjum hefur Arsenal hins vegar unnið helming, gert jafntefli í 15% og tapað 35% þeirra.
  • Arsenal hefur haldið hreinu í 7 af síðustu 20 útileikjum og unnið þá alla.
  • Og í fjórum af þessum 20 leikjum hefur Arsenal ekki skorað og eins og hin staðreyndin sýnir, tapaö öllum, engin markalaus jafntefli þar heldur.

Tilvitnanir

Van Gaal

I want to get always the goals that we have set. And the goals that we have set is the first four. And a title is fantastic, what is important for the club when you win the FA Cup you are not in the Champions League but you have won the title. A title. So, for the players, it is fantastic, for the manager, it is fantastic, but our goal is to reach in our first year together a place in the Champions League.

It’s a game between two teams of 11 players, United and Arsenal are placed third and fourth in the league, so it’s almost like a final, I think. We have the support of our fans but Arsenal shall bring a lot of fans too. Also, Arsenal and United are now in third and fourth place, so it is a big event with two good teams. I hope we can give a fantastic match for the fans. I think if we beat them it is a big blow for them, but if they beat us it is a big blow for us. It is very important game, not only for the FA Cup but also for the rat race.

Rooney

„We have an FA Cup quarter-final against Arsenal on Monday and that is massive for us, we haven’t been to a final for a few years, we want to try to win that game and we are looking forward to that. Of course, I think it is a massive trophy. It is a trophy that, growing up as a youngster, I used to love watching and I was fortunate enough to see Everton lift the FA Cup in 1995 when I was nine years old. It is something which I would love to do and hopefully it can be this year.“

Fellaini

„We always keep going and scored in the last minute, the spirit was good, we continued [probing] and that is important. We have showed it [the spirit] already a lot of times now and we have to continue like that, we have a big game on Monday, so it is good for the confidence. It will be a challenge. Monday is a massive game. We have to win it in one game because playing at Arsenal would be difficult. The FA Cup is a special competition, a big trophy in England. I lost a final. I played in a semi-final. This season, I can win [it].“

Að lokum

Hér er smá upphitunarvídeó frá BBC sem ætti að koma ykkur í gírinn

Efnisorð: Arsenal Upphitun 3

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Audunn Sigurdsson says

    8. mars, 2015 at 13:40

    Frábær upphitun og takk fyrir hana.
    Hlakka mikið til leiksins á morgun, hann gæti verið lykillinn af því sem koma skal.
    Sigur mun veita liðinu aukið sjálfstraust en tap yrðu skref tilbaka.
    Eitt vil ég hinsvegar benda á að þegar þetta er skrifað þá er leikur Liverpool og Blackburn ekki hafinn og Liverpool því ekki komið áfram eins og sagt er í þessari upphitun.
    Það er hinsvegar nánast pottþétt að Liverpool klári það dæmi auðveldlega.

    0
  2. 2

    ellioman says

    8. mars, 2015 at 16:09

    Heyrðu það er bara alveg hárrétt hjá þér! Ég skrifaði upphitunina með því hugarfari að hún yrði birt í kvöld en ákvað bara að bomba henni í loftið fyrr og steingleymdi þessu.

    En þar sem við erum sammála um að líkurnar eru 99% á að Liverpool komist áfram, þá bara bara leyfum við þessu að standa :)

    0
  3. 3

    ellioman says

    8. mars, 2015 at 17:58

    Frábært jinx hjá okkur! Blackburn náði bara jafntefli á Anfield. Nú skal ég lagfæra greinina :)

    0

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Magnús Þór um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Arni um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Bjarni um Önnur ferð til Sevilla!
  • Egill um Real Betis 0:1 Manchester United
  • Helgi P um United 0 – 0 Southampton

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2023 · Keyrt á WordPress