• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Fjármál Pistlar

Sjötíu og fimm milljónir, takk

Björn Friðgeir skrifaði þann 16. júlí, 2014 | 11 ummæli

adidasEftir langar og strangar samningaviðræður sem hafa án efa staðið yfir í að minnsta kosti ár, ef ekki tvö er kominn sigurvegari í kapphlaupinu mikla um að fá að sníða treyjur á besta félagslið Englands.

Eftir að núverandi klæðskeri Manchester United, Nike, tilkynnti í síðustu viku að þeir hefðu ekki áhuga á að semja við United um þær upphæðir sem United krefðist lá fyrir að tvö fyrirtæki væru um hituna. Bandaríski nýgræðingurinn Warrior sem er þekkt fyrir… nýstárlegar…  treyjur sem þeir hafa verið að hanna fyrir Liverpool, og adidas.

Það var því mörgum ánægjuefni að á mánudag var tilkynnt að það væri adidas sem hefði hlotið hnossið. Það hefur verið ljóst í langan tíma, allt frá því að samningurinn við Nike var ekki framlengdur í fyrra að Edward Woodward ætlaði sér stóra hluti í þessum málum og tölurnar sem slúðrað hefur verið um hafa verið stjarnfræðilegar.

Lokaniðurstaðan er samt þannig að án þess að hafa haldið utan um allt slúðrið þá er varla að hún hafi verið nefnd í alvöru hingað til. Adidas mun næstu tíu árin borga Manchester United að lágmarki 75 milljónir punda á ári fyrir réttinn til að framleiða keppnis og æfingabúninga liðsins. Það er þreföld sú upphæð sem Nike hefur verið að borga fyrir samninginn sem nú er á síðasta ári.

Taflan yfir hæstu búningasamninga heims lítur þá svona út

Lið Upphæð á ári Gildir til
Manchester United 75m 2025
Real Madrid 31m 2020
Arsenal 30m 2019
Barcelona 26,3m ?
Liverpool 25m 2015
Bayern München 22m 2020
Chelsea 20m 2018
Manchester City 12m

Eitthvað tillit þarf að taka til þess að mismunandi er hvað samningarnir fela í sér í aukagreiðslum fyrir sölu eða réttindi til markaðssetningar og eru einhverjar raddir um að með samningnum við adidas sé United að gefa frá sér tekjuþáttöku og markaðssetningarmöguleika en samningar annarra félaga en það hef ég þó hvergi séð frá traustum heimildum.

Þegar litið er til þess að samningurinn við Chevrolet sem við erum að sjá fyrstu merkin um núna gefur félaginu 53 milljónir punda á ári og 17 milljón punda samningurinn við AON um auglýsingar á æfingabúningum og nafnið á Carrington, þá er klúbburinn að fá litlar 145 milljónir punda á ári.

Nissin Cup NoodlesFyrir utan þetta eru svo ótal litlir samningar við fyrirtæki hér og þar í heiminum sem hver um sig gefur allt að 2 milljónum punda á ári, svo sem eins og við núðlufyrirækið Nissin sem var einmitt tilkynntur í dag. Allir að kaupa Nissin núðlur!

Þetta sýnir enn og sannar að frá markaðssjónarhorni er Manchester United óumdeilanlega stærsta knattspyrnufélag heims. Það má hugsa til þess hvort að samningur þessi hefði verið gerður ef David Moyes væri enn við stjórnvölinn og ég efast ekki um að líkurnar væru ansi minni. Ráðning Louis van Gaal hefur nefnilega ekki bara hresst skap stuðningsmanna heldur og annarra!

Það sem er hvað gleðilegast við þennan samning er að nú er framtíð félagsins loksins tryggð eftir níu ár af óvissu um áhrif skuldanna sem Glazer-fjölskyldan hlóð á félagið. Vaxtagreiðslur hafa farið frá því að vera um 75 milljónir punda á ári niður í 20 milljónir punda og eru vel viðráðanlegar. Það breytir þó aldrei því að félaginu hefur blætt síðustu níu ár sem sást í því sem gerðist síðasta ár.

1985 treyjan
1985 treyjan þykir með þeim flottari.

Nú er hins vegar þetta fjárhagslega öflugasta félag heims loksins farinn að njóta þess en ekki eigendurnir og veskið farið á loft. Það er hins vegar of seint fyrir Meistaradeild næsta árs.

Önnur skemmtileg afleiðing þessa samnings er sú að United mun á ný fara að spila í adidas búningum. Það fór ekki milli mála að viðbrögð margra eldri stuðningsmanna var gleði enda þykir þeim mörgum að adidas búningar níunda áratugarins hafi verið mun flottari en Nike búningar síðustu ára.

Efnisorð: Adidas AON Chevrolet 11

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Ísak Agnarsson says

    16. júlí, 2014 at 20:49

    good news !!

    0
  2. 2

    Robbi Mich says

    17. júlí, 2014 at 07:26

    Blendnar tilfinningar. Ég segi já takk við þessum búningadíl, því smá klink í kassann er af hinu góða, en ég geri það með óbragð í munni því ég GJÖRSAMLEGA HATA adidas. Ég er fanatískur Nike aðdáandi og þetta er því hálfgerð martröð fyrir mig. Liggur við að ég biðji um Warrior …. ;)

    0
  3. 3

    DMS says

    17. júlí, 2014 at 10:29

    Nei guð minn góður, ekki Warrior.

    Ég fíla Adidas….svona fyrir utan spítt-einkennisgallana sem annar hver low life, handrukkari og dópisti klæðist.

    0
  4. 4

    Krummi says

    17. júlí, 2014 at 12:32

    Drullusama hvaða merki er á búningunum, bara „take the money and run“!

    0
  5. 5

    Ingvar says

    17. júlí, 2014 at 23:18

    Frábærar fréttir, Love adidas :)

    All
    Day
    I
    Dream
    About
    Sex

    0
  6. 6

    jonny says

    20. júlí, 2014 at 12:55

    er ekki leikur í dag strákar? ??

    20 júlí ???

    http://www.braywanderers.ie/

    endilega svara

    0
  7. 7

    Hjörvar Ingi Haraldsson says

    20. júlí, 2014 at 13:11

    Nokkuð viss að næsti leikur sé gegn LA Galaxy og að hann sé 23.júlí

    0
  8. 8

    jonny says

    20. júlí, 2014 at 13:24

    hjörvar kíktu á síðuna hjá þeim þar stendur að þeir seu ða fara keppa við united
    ??

    0
  9. 9

    Atli says

    20. júlí, 2014 at 13:46

    Er þetta ekki bara leikur hjá varaliðinu eða eithvað álika?

    0
  10. 10

    Hjörvar Ingi Haraldsson says

    20. júlí, 2014 at 17:02

    http://www.braywanderers.ie/home/latest-news/united-youngsters-must-be-extra-special-for-van-gall-starting-against-bray/

    Varaliðið

    0
  11. 11

    Björn Friðgeir says

    20. júlí, 2014 at 22:20

    21 leikmaður fékk að spreyta sig í 0-1 tapi gegn Bray, Offisjal síðan er með stutta frétt:

    http://www.manutd.com/en/Players-And-Staff/Reserves/Reserves-News/2014/Jul/bray-wanderers-v-manchester-united-reserves-friendly.aspx

    0

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Magnús Þór um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Arni um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Bjarni um Önnur ferð til Sevilla!
  • Egill um Real Betis 0:1 Manchester United
  • Helgi P um United 0 – 0 Southampton

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2023 · Keyrt á WordPress