Þetta var hrikalegt. Ég nenni ekki að eyða einni sekúndu í að skrifa um þennan leik. Í staðinn geta menn velt eftirfarandi fyrir sér:
Tryggvi Páll skrifaði þann | 18 ummæli
Þetta var hrikalegt. Ég nenni ekki að eyða einni sekúndu í að skrifa um þennan leik. Í staðinn geta menn velt eftirfarandi fyrir sér:
Tryggvi Páll skrifaði þann | 7 ummæli
Liðin eru kominn og United liðið er svona:
Lindegaard
Rafael Smalling Ferdinand Evra
Valencia Carrick Giggs Young
Chicharito RvP
Bekkur: Johnstone, Jones, Anderson, Welbeck, Scholes, Cleverley, Fletcher
De Gea þurfti víst að láta draga úr sér tönn skv. MUTV og er því ekki í hópnum. Giggs er væntanlega á miðjunni sem kemur nokkuð á óvart. Hann hefur þó lagt það í vana sinn að skora á Carrow Road. Annars bara hefðbundið lið miðað við meiðsli og annað. Lesa meira
Tryggvi Páll skrifaði þann | 3 ummæli
Næsti leikur á dagskrá er á Carrow Road þar sem okkar menn mæta til leiks næstkomandi laugardagseftirmiðdegi. Byrjum á andstæðingum okkar á morgun. Norwich kom upp úr 1.deildinni í fyrra og náði undraverðum árangri með þennan afar „ómerkilega “ hóp sem liðið býr yfir. Þetta er mikið til samansafn leikmanna sem hafa spilað í neðri deildum Englands og því ljóst að Paul Lambert náði að kreista afskaplega mikinn safa úr þessari pínulitlu appelsínu, ef þið skiljið hvert ég er að fara. Nú er hinsvegar enginn Paul Lambert til staðar heldur einungis Chris nokkur Hougton. Hann var rekinn frá Newcastle fyrir þá einu sök að hann var ekki nógu stórt og fínt nafn í knattspyrnuheiminum. Menn bjuggst ekki við miklu frá honum þetta tímabilið og flestir ef ekki allir sem spáðu þessu Norwich liði lóðbeina leið niður í 1. deild. Ég er einn af þeim og hef akkúrat enga trú á þessu Norwich liði og ég stend ennþá fyllilega við spá mína um að liðið falli um deild og endi í 20. sæti þegar öll stigin hafa verið talin. Lesa meira
Enn einn háspennuleikurinn hjá Manchester United á þessu tímabili, að þessu sinni gegn Aston Villa á Villa Park í Birmingham. Villa þurfti nauðsynlega á stigum að halda því liðin fyrir neðan náðu jafnteflum fyrr í dag, fyrir utan QPR sem tapaði enn einum leikum. Villa eiga líka erfiða leiki framundan gegn Man City og Arsenal þannig að það var mikilvægt fyrir þá að koma grimmir til leiks og reyna að hirða einhver stig. Stigin voru ekki síður mikilvæg fyrir United þar sem Man City og Chelsea eiga ansi erfiða leiki fyrir höndum á morgun gegn Tottenham og Liverpool, töpuð stig þar geta sett rauðu djöflana í góða stöðu. Lesa meira
Liðið gegn Aston Villa hefur verið gert opinbert.
De Gea
Rafael Ferdinand Smalling Evra
Carrick Scholes
Valencia Rooney Young
Van Persie
Varamenn: Anderson, Lindegaard, Hernandez, Welbeck, Cleverley, Fletcher, Buttner
Næstum því eins og ég spáði, nema Scholes kemur inn fyrir Cleverley, sem kemur síður en svo á óvart.
ÁFRAM UNITED!
Vertu með í Fantasy leiknum okkar!