• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Aston Villa

Enska úrvalsdeildin

Aston Villa á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 21. apríl, 2013 | 15 ummæli

Spennan er farinn að aukast. Enn eru sex stig í það að Manchester United tryggi sér Englandsmeistaratitilinn og á morgun kemur Aston Villa í heimsókn á Old Trafford og United ef allt væri með felldu ætti United að ná þar helmingnum af þeim stigum sem þarf.

En okkar menn hafa ekki beinlínis verið sannfærandi upp á síðkastið. Það er engin ástæða til að örvænta um niðurstöðuna í lok tímabilsins, en það er ekki hægt að segja að United sé að storma í átt að titlinum. Það er afskaplega þreytt að draga það upp að lliðið hefur ekki verið samt við sig frá Real Madrid leiknum, en sú er engu að síður raunin. Það er hægt að grafa upp nokkrar ástæður fyrir því. Robin van Persie hefur dregið verulega úr markaskorun, Rooney hefur ekki verið svipur hjá sjón síðustu vikur og miðjan okkar er síður en svo stabíl og auðveljanleg. Hver svo sem ástæðan er þá hafa varla valist tveir ‘venjulegir’ miðjumenn saman í miðjunni nýlega. Giggs spilaði þar á móti City, Rooney á móti Stoke og Jones á móti West Ham. Cleverley og Anderson hafa ekki sést í síðan móti Chelsea í bikarnum (Cleverly) og Sunderland (Anderson) um síðustu mánaðamót. Kantvandræðin halda áfram, Nani hefur verið meiddur allt tímabilið meira eða minna og ekkert náð sér á strik og núna er Young meiddur út tímabilið. Semsagt, allt við það sama þar fyrir leikinn á morgun. Lesa meira

Efnisorð: Aston Villa Christian Benteke Upphitun 15
Enska úrvalsdeildin

Aston Villa 2:3 Manchester United

Sigurjón skrifaði þann 10. nóvember, 2012 | 12 ummæli

Enn einn háspennuleikurinn hjá Manchester United á þessu tímabili, að þessu sinni gegn Aston Villa á Villa Park í Birmingham. Villa þurfti nauðsynlega á stigum að halda því liðin fyrir neðan náðu jafnteflum fyrr í dag, fyrir utan QPR sem tapaði enn einum leikum. Villa eiga líka erfiða leiki framundan gegn Man City og Arsenal þannig að það var mikilvægt fyrir þá að koma grimmir til leiks og reyna að hirða einhver stig. Stigin voru ekki síður mikilvæg fyrir United þar sem Man City og Chelsea eiga ansi erfiða leiki fyrir höndum á morgun gegn Tottenham og Liverpool, töpuð stig þar geta sett rauðu djöflana í góða stöðu. Lesa meira

Efnisorð: Aston Villa Leikskýrslur 12
Enska úrvalsdeildin

Byrjunarliðið gegn Aston Villa

Sigurjón skrifaði þann 10. nóvember, 2012 | 6 ummæli

Liðið gegn Aston Villa hefur verið gert opinbert.

De Gea

Rafael Ferdinand Smalling Evra

Carrick Scholes

Valencia Rooney Young

Van Persie

Varamenn: Anderson, Lindegaard, Hernandez, Welbeck, Cleverley, Fletcher, Buttner

Næstum því eins og ég spáði, nema Scholes kemur inn fyrir Cleverley, sem kemur síður en svo á óvart.

ÁFRAM UNITED!

Efnisorð: Aston Villa Liðsuppstilling 6
Enska úrvalsdeildin

Aston Villa á Villa Park

Sigurjón skrifaði þann 9. nóvember, 2012 | 8 ummæli

Á morgun ætla leikmenn United að skutlast til Birmingham til að spila við Aston Villa á Villa Park. Verður þetta síðasti leikur dagsins á morgun og byrjar klukkan 17:30. United hefur farið í gegnum ansi þétta dagskrá undanfarið, dagskrá sem ég persónulega missti mest megnis af vegna fellibylsins Sandy en hún tók af mér rafmagnið í heila viku hér í New York. Ég veit því lítið um hvernig spilamennska liðsins hefur verið síðan í deildarleiknum við Chelsea. Úrslitin hafa verið þó verið góð, sigur gegn Chelsea og Arsenal. Aston Villa hefur gengið hálf brösuglega það sem af er tímabilinu, eru í 17 sæti með aðeins 9 stig. Það eru mikil vonbrigði fyrir Villa aðdáendur en þetta er lið sem ætti aldrei að fara mikið neðar en um miðja deild. Lesa meira

Efnisorð: Aston Villa Upphitun 8
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress