• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Lesefni

Djöfullegt lesefni: 2015:20

ellioman skrifaði þann 5. júní, 2015 | 3 ummæli

Rauðu djöflarnir

  • Tryggvi tók að sér það erfiða verkefni að útskýra fyrir okkur mögulega andstæðinga United í umspili meistaradeildarinnar.
  • Í þriðja hluta uppgjörs Rauðu Djöflanna (1. hluti, 2. hluti), svöruðum við spurningum um tímabilið sem var að ljúka.

United

  • Michael Carrick segir United eigi ekki að fagna 4. sætinu .
  • United var að auka skuldir sínar, Andy Green fer yfir afhverju það er hið besta mál:.
  • Það þarf enginn að vaka frameftir á lokadegi gluggans í haust.
  • Scott hjá ROM skrifar um stöðuna í varnarmálum United.
  • Moyes sagði Sky frá því að hann hafi reynt að krækja í Bale áður en hann fór til Real Madrid.

Leikmenn

  • Di Maria segir fjölmiðlum að hann verði hjá United á næsta tímabili.
  • Scott hjá ROM segir að United ætti að selja De Gea dýrt eða halda honum í eitt ár í viðbót.
  • The faithful MUFC skrifar um fimm hægri bakverði sem United er nú þegar líklega að skoða.
  • Valencia glímir við ökklameiðsl og mun því ekki taka þátt í Copa America.
  • Van Gaal og United voru ekki ánægðir að sjá Memphis Depay spila síðustu deildarleiki PSV.
  • Nemanja Vidic og Patrice Evra hafa átt ólík tímabil eftir að hafa yfirgefið United.
  • Er Schneiderlin rétti maðurinn til að taka við af Carrick?
  • Gerard Pique rifjar upp tímann sem hann var leikmaður Manchester United.
  • Gordon Hill segir að hann myndi selja Di Maria ef honum yrði boðnar 50m punda.
  • Chelsea hefur hafið viðræður við Mónakó um kaup á Falcao .
  • Fjölskyldan verður í  forgangi hjá Robin van Persie þegar hann tekur ákvörðun um framtíð sína.

Ýmislegt

  • Rio Ferdinand hefur lagt skóna á hilluna og þakkaði hann Alex Ferguson sérstaklega í tillkynningunni.
  • Van Gaal tók þátt í kveðjumyndbandi til Xavi.

Leikmannaslúður

  • Woodward hitti, að sögn MEN, umboðsmann Benzema í þessari viku.
  • Guardian greinir frá því að United sé að kanna möguleikann á því að kaupa Raheem Sterling og að leikmaðurinn sé mjög opinn fyrir því að vinna með Louis van Gaal.
  • Januzaj er á leið til Real Sociedad á lán.
  • United virðist sýna Dani Alves mikinn áhuga.
  • United ætlar að bjóða í Schneiderlin, leikmann Southampton.
  • Samkvæmt spænskum fjölmiðlum á United að hafa boðið 100m punda í Bale og Varane sem Real Madrid hafnaði.
  • De Gea á að hafa sagt liðsfélögum sínum hjá United að hann muni skrifa undir hjá Real Madrid.
  • Franskir fjölmiðlar hafa verið að orða Alexandre Lacazette, framherja Lyon við United og PSG.

Mynd vikunnar

Best away day of 2014/15? It has to be winning at Anfield! #mufc

A photo posted by Manchester United (@manchesterunited) on Jun 3, 2015 at 8:48am PDT

Lag vikunnar

Faith No More – „Motherfucker“

3

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Rauðhaus says

    5. júní, 2015 at 10:58

    Mér finnst sérstakt tilefni til þess að minnast meira á Rio Ferdinand á þessum tíma. Hann tilkynnti um það fyrir stuttu að skórnir væru komnir upp í hillu eftir magnaðan feril sem fáir geta toppað.

    Að mínu mati er Rio Ferdinand besti hafsent í sögu Man.Utd., svo mikið álit hef ég á honum. Þegar hann var upp á sitt besta var hann algjörlega stórkostlegur leikmaður. Öflugara miðvarðarpar en hann og Vidic man ég ekki eftir að haf séð, enda lagði það grunninn að þeim frábæra árangri að spila 3 úrslitaleiki í CL á 4 árum.
    Ég myndi glaður styðja það að Man.Utd. myndi borga 100 milljónir punda fyrir ungan Rio Ferdinand í dag.

    Hér eru tvær ágætar greinar sem birtust á dögunum um Rio:

    http://www.espnfc.com/club/manchester-united/360/blog/post/2474486/rio-ferdinand-was-a-manchester-united-great-andy-mitten

    http://www1.skysports.com/football/news/11096/9870797/rio-ferdinand-retires-former-man-utd-defender-was-one-of-the-greats

    Og hér er gott video af honum, fyrri parturinn inniheldur varnartilburði en seinni hlutinn fókusar meira á framúrskarandi boltatækni og sendingagetu:

    https://www.youtube.com/watch?v=rQONFGYr_10

    0
  2. 2

    óli says

    5. júní, 2015 at 22:22

    Vá hvað ég vona að það sé ekkert til í þessum Sterling-slúðri. Held að hann sé skilgreiningin á kettinum í sekknum.

    0
  3. 3

    ellioman says

    6. júní, 2015 at 12:55

    @Rauðhaus
    Takk fyrir þetta. Ég er alveg 100% sammála þér með gæði Rio. United var án efa með bestu vörn í heimi þegar hann og Vidic voru upp á sitt besta. Good times.

    0

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Magnús Þór um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Arni um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Bjarni um Önnur ferð til Sevilla!
  • Egill um Real Betis 0:1 Manchester United
  • Helgi P um United 0 – 0 Southampton

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2023 · Keyrt á WordPress