• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska bikarkeppnin

Bikarslagur í London á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 17. febrúar, 2019 | 1 ummæli

Fimmtu umferð bikarsins lýkur á morgun þegar okkar menn halda á Stamford Bridge og takast á við Chelsea. Stórleikur umferðarinnar og því færður á mánudag, aðkomustuðningsmönnum til mikillar gleði enda varla hægt að komast aftur til Manchester um kvöldið ef leikurinn fer í framlengingu.

Eftir erfiðan seinni hálfleik gegn PSG á þriðjudaginn verður þetta prófraun fyrir Ole Gunnar að vinna án Jesse Lingard og Anthony Martial sem hafa verið lykilmenn í góðu gengi liðsins undir stjórn hans. Þrátt fyrir að Tahith Chong og Angel Gomes verði í hóp er óvarlegt að ætla annað en að Alexis Sánchez og Romelu Lukaku komi inn í liðið en það verði síðan að mestu óbreytt.

1
De Gea
23
Shaw
2
Lindelöf
3
Bailly
18
Young
6
Pogba
31
Matić
21
Herrera
7
Alexis
10
Rashford
9
Lukaku

Chelsea er sært dýr um þessar mundir, 6-0 tapið gegn City um síðustu helgi hlýtur að sitja í þeim, og naumur sigur í  Malmö í vikunni er ekki öflugasta svarið við þeirri niðurlægingu. Ég veit ekki hvað Sarri getur gert á morgun til að breyta liðinu og spái því óbreyttu frá City leiknum. Það verður spennandi að vita hvort honum dettur einhvern tímann í hug að leyfa Jorginho að fá frí og láta Kanté spila í sinni bestu stöðu, en ég vona að minnsta kosti að það verði ekki á morgun. Higuain hefur verið að koma þokkalega inn í liðið, skoraði tvö á móti Huddersfield fyrir hálfum mánuði og var einna skástur Chelsea manna móti City.

Kepa
Marcos Alonso
David Luiz
Rüdiger
Azpilicueta
Barkley
Jorginho
Kanté
Hazard
Higuain
Pedro

Þetta verður sem sé hörkuleikur á morgun þar sem bæði lið þurfa sigur, ekki bara til að komast áfram í bikarnum heldur til að sanna að slæm úrslit undanfarið séu undantekning. Leikurinn hefst kl 19:30!

1

Reader Interactions

Comments

  1. Heiðar says

    18. febrúar, 2019 at 15:34

    Virkilega mikilvægur leikur. Það er eitt að hefna ófaranna frá því í úrslitum FA Cup í fyrra, annað er sú staðreynd að ef þessi leikur tapast losnar ákveðið spennuflæði í stuðningsmönnum sem fylgir því að eiga mögleika á bikar (meistaradeildin svo sannarlega kraftaverki háð í þeim efnum). Vissulega er mikið í húfi varðandi að enda í topp fjórum en það að keppa um titil gerir alltaf mikið fyrir stuðningsmenn.
    Ég vona að Lukaku verði hafður í sama hlutverki og í útileiknum gegn Arsenal. Það gafst ótrúlega vel.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress