Eftir vonbrigðin um síðustu helgi fáum við strax annan deildarleik á heimavelli. Tímabilið heldur áfram og næsti andstæðingur er Bournemouth. Manchester United er þrátt fyrir allt enn í 2. sæti og það mjög verðskuldað eftir spilamennskuna í vetur. Nú þarf liðið bara að sýna aftur hvað það getur á heimavelli og vinna þennan leik.
Chelsea er eina liðið af topppakkanum sem á þriðjudagsleik í þessari 17. umferð. Þeir mæta þá Huddersfield á útivelli. Toppliðið í Manchester City á útileik gegn Swansea City, Liverpool á heimaleik gegn WBA, Arsenal á útileik gegn nágrönnum sínum í West Ham United og Tottenham fær Brighton & Hove Albion í heimsókn. Á blaði ættu öll toppliðin að vinna sína leiki en við höfum nýleg dæmi um að þessir leikir fara ekki alltaf eftir gamla, góða blaðinu.
Leikurinn gegn Bournemouth hefst kl. 20:00, dómarinn í leiknum verður Graham Scott.
Dregið í Meistaradeildinni
Vikan hófst þó á því að dregið var í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Okkar menn hefðu getað fengið ansi snúin einvígi í Juventus, Bayern Munchen eða Real Madrid. Andstæðingurinn sem kom upp úr pottinum var þó Sevilla og verður það að teljast nokkuð vel sloppið, þótt auðvitað borgi sig ekki að vanmeta nokkurt lið á þessu stigi keppninnar.
Sevilla v Man. United#UCLdraw pic.twitter.com/Ob01xyRa4G
— ★ #UCLdraw ★ (@ChampionsLeague) December 11, 2017
Fyrri leikurinn verður spilaður á Estadio Ramón Sánchez Pizjuán í Sevilla miðvikudaginn 21. febrúar nk. en seinni leikurinn fer fram þriðjudaginn 13. mars, að sjálfsögðu á Old Trafford. Báðir leikirnir verða spilaðir klukkan 19:45 að íslenskum tíma.
Það verða fleiri áhugaverðar viðureignir í 16-liða úrslitunum, sérstaklega þá viðureign PSG og Real Madrid, Chelsea gegn Barcelona og Tottenham gegn Juventus. Þrjú af ensku liðunum ættu að teljast í kjörstöðu til að komast áfram og svo er spurning hvað Chelsea og Spurs gera í sínum leikjum.
En aftur að þessum leik
Ef Chelsea vinnur ekki sinn leik með 10 marka mun eða meira þá verður Manchester United áfram í 2. sæti deildarinnar þegar þessi leikur gegn Bournemouth hefst. Þegar liðið sýndi varfærna frammistöðu gegn Liverpool fyrr á tímabilinu þá fylgdu fleiri ósannfærandi frammistöður í kjölfarið. Það myndi skipta miklu máli að nýta þennan leik í að komast aftur á beinu brautina með sannfærandi sigri í markaleik.
Heimaleikur Manchester United gegn Bournemouth á síðasta tímabili var einn af þessum kunnuglegu leikjum þess tímabils þar sem Manchester United átti urmul af dauðafærum, markmaður andstæðingsins átt leik lífsins og leikurinn endaði svo með jafntefli. Í þetta skiptið var það 1-1 jafntefli, Marcos Rojo með mark United en Joshua King jafnaði fyrir Bournemouth. Zlatan fékk svo vítaspyrnu til að koma United yfir í seinni hálfleik en Boruc varði vítið. Zlatan fékk svo bann eftir leikinn fyrir að fara með olnbogann í Mings eftir að sá síðarnefndi hafði traðkað á hausnum á Svíanum.
Manchester United hefur unnið aðra heimaleiki sem liðið hefur spilað við Bournemouth, alls 5 talsins. Markatalan í þessum 6 leikjum er 16-2 fyrir Manchester United.
Paul Pogba tekur út annan leikinn af þremur í leikbanni sínu eftir rauða spjaldið gegn Arsenal. Michael Carrick er enn frá vegna veikinda og Eric Bailly sömuleiðis vegna meiðsla. Þá eru þeir Marouane Fellaini og Marcos Rojo tæpir fyrir leikinn. Það munar heilmikið um þessa fimm leikmenn, sérstaklega þá Pogba og Fellaini. En leikmennirnir sem eru í boði ættu að vera alveg nógu góðir til að klára þennan leik.
Eftir leikinn gegn Manchester City hefur skapast heilmikil umræða um Lukaku og hvort hann ætti að missa sæti sitt í liðinu. Vissulega væri hægt að nota leikjaálag sem afsökun til að hvíla manninn. Zlatan er sömuleiðis kominn til baka og mætti alveg fá leik og leik í byrjunarliðinu. Fyrir framherja getur sjálfstraust skipt miklu máli og að því leyti gæti verið skynsamlegt að gefa Lukaku annan byrjunarliðsleik, sýna honum að hann hafi traustið og taka hann þá frekar fyrr út af ef það þarf að hvíla hann.
Hvað segja lesendur síðunnar, er málið að hvíla Lukaku?
Annar leikmaður sem hefur poppað upp í umræðunni er Henrikh Mkhitaryan. Hann var síðast í byrjunarliði United 5. nóvember, þegar liðið tapaði fyrir Chelsea í London. Eftir það hefur hann aðeins spilað í 19 mínútur, þegar hann kom inn á sem varamaður gegn Brighton. Hann hefur jafnvel ekki einu sinni verið á bekknum hjá Mourinho. Er kominn tími á að ná í hann aftur úr frystikistunni? Hann stóð ekki undir væntingum í meiðslunum hjá Pogba og steig ekki upp þegar liðið þurfti á honum að halda. En liðið þarf á hópnum að halda í þessari desembertörn, hann hlýtur að fá tækifæri til að sýna aftur hvað í hann er spunnið. Hvort sem það kemur í þessum leik eða öðrum í desember.
Það verður erfitt að spá fyrir um byrjunarlið í þessum leik, þetta er jafngóð ágiskun og hver önnur:
Bournemouth
Bournemouth endaði síðasta tímabil í 9. sæti með 46 stig, í sama pakka og Southampton, West Brom og West Ham. Þessi lokastaða var ekki síst góðum lokaspretti að þakka, þar sem liðið vann 3 og gerði 2 jafntefli í síðustu 5 umferðunum. Í sumar gerði félagið svo áhugaverð kaup í þeim Nathan Aké, Asmir Begovic og gamla brýninu Jermaine Defoe.
En það skilaði sér ekki í góðri byrjun fyrir Bournemouth, sem tapaði 6 af fyrstu 8 leikjum tímabilsins og liðið vermdi fallsæti í 8 af fyrstu 10 umferðunum. Liðið hefur þó sýnt seiglu og náð að snúa þessu við, í síðustu 8 umferðum hefur liðið aðeins tapað 2 leikjum en á móti unnið 3 og gert 3 jafntefli. Það hefur skilað liðinu upp í 14. sæti deildarinnar.
Framherjarnir Defoe og Callum Wilson eru markahæstir hjá Bournemouth í deildinni, báðir með 3 mörk. Wilson skoraði sín 3 mörk öll í sama leiknum, 4-0 sigri á Huddersfield. Defoe skoraði 2 af sínum mörkum í síðasta leik, í 3-3 jafntefli gegn Crystal Palace. Á eftir þeim koma Joshua King og Andrew Surman með 2 mörk hvor. Surman er þar að auki stoðsendingahæsti leikmaður liðsins, með 4 stoðsendingar. Jordon Ibe er þar næstur, með 3 stoðsendingar. Alls hefur Bournemouth skorað 15 mörk í deildinni, en fengið á sig 19.
Bournemouth hefur náð í nákvæmlega sama stigafjölda á útivelli og heimavelli í vetur, með 2 sigra, 2 jafntefli og 4 töp á hvorum vígstöðvum. Af toppliðunum sex hefur Bournemouth þegar mætt Manchester City, Chelsea, Arsenal og Tottenham og tapað öllum þeim leikjum. Sigurleikir liðsins hafa á móti komið gegn Brighton, Newcastle, Huddersfield og Stoke. Bestu úrslit liðsins á tímabilinu til þessa má líklega telja jafntefli gegn Leicester City en það kom á heimavelli. Þetta lið ætti ekki að verða nein fyrirstaða. En það segir auðvitað ekki alltaf allt.
Hausatraðkarinn Tyrone Mings verður ekki með liðinu í þessum leik en hann hefur ekki spilað síðan í september vegna meiðsla. Að auki eru Adam Federici og Brad Smith meiddir hjá Bournemouth en þar er um að ræða þriðja markmann og varaskeifu svo þeirra er ekki mikið saknað.
Bournemouth hefur aðallega verið að stilla upp í 4-4-1-1 á tímabilinu. Eddie Howe gæti valið að rótera liðinu, gætum fengið að sjá eitthvað í þessa áttina á Old Trafford:
Áfram og upp á við
Skarkalinn sem átti sér stað eftir leik Manchesterliðanna var svosem ekki til fyrirmyndar, menn eiga ekki að nota handalögmál til að útkljá deilumál og helst að láta það vera að grýta flöskum í annað fólk. Það má þó segja að það hafi verið ákveðinn karakter að neita að leyfa leikmönnum Manchester City að komast upp með fagnaðarlæti sem voru til þess fallin að gera lítið úr andstæðingnum. Vissulega má benda á að leikmenn United hefðu betur sýnt meira af þessum karakter og þessari baráttu inni á vellinum.
Það er vonandi að liðið taki þessa orku og nýti hana á jákvæðan hátt til uppbyggingar, frekar en að láta hana brjóta sig niður.
Björn Friðgeir says
Hvíla Lukaku. Algerlega. Svo er bara að vona að Fellaini verði góður.
Erlingur says
Zlatan í starting með Lukaku og sýna smá pung og sækja á heimavelli. Ef menn þora ekki að spila með 2 frammi á móti svona andstæðingi á heimavelli og það er sagt án vanvirðingar við Bournem, þá gerum við það aldrei. :)
Audunn says
Sá sem þetta skrifaði hefur annaðhvort ekki fylgst vel með í vetur eða með tunguna svo langt á kafi í rassinum á Móra að hann sér ekki sólina fyrir honum.
„Manchester United er þrátt fyrir allt enn í 2. sæti og það mjög verðskuldað eftir spilamennskuna í vetur“
En hvað um það.
Núna snýst deildin um að halda topp 4 og helst ná 2.sætinu, til að það takist þá þurfa nokkrir hlutir að ganga upp sem og liðið að bæta sinn leik.
City og Liverpool eru að spila besta boltann í deildinni eins og er, United má ekkki misstíga sig þá er ég hræddur um að Liverpool skríði upp fyrir okkur í deildinni.
Svo er Chelsea ekki langt undan og Arsenal alltaf þetta óútreiknanlega lið, maður veit aldrei hvað þeim dettur í huga að gera, þannig að þetta verður klárlega hörku barátta um næstu þrjú sæti á eftir City.
En þetta er leikur sem á að vinnast nokkuð þægilega, það er ekki hægt annað en að vera bjartsýnn á að það takist.
Ég trúi ekki öðru en að leikmenn og þjálfarar vilji nú sýna stuðningsmönnum alvöru frammistöðu og alvöru fótbolta eftir vonbrigðin gegn City um daginn.
Það er hvergi betra að svara fyrir sig en á vellinum sjálfum og oft er gott að það líði ekki langur tími á milli leikja þegar úrslitin hafa verið slæm og leikur liðsins í molum.
Nú er tækifærið til að rífa sig upp og mæta brjálaðir til leiks.
Sigurjón Arthur Friðjónsson, SAF says
„Sá sem þetta skrifaði hefur annaðhvort ekki fylgst vel með í vetur eða með tunguna svo langt á kafi í rassinum á Móra að hann sér ekki sólina fyrir honum.“
Tek það fram að ég er ekkert sérstaklega sammála Halldóri varðandi spilamennsku liðsins en mér finnst orðalagið hér að ofan (Auðunn) algjörlega út úr kú !
kv,
SAF
Runólfur Trausti says
Það þarf nú að vera með tunguna helvíti langt upp í rassgatinu á Klopp til að halda því fram að Liverpool spili besta boltan í deildinni.
Skemmtilegur er hann en það er ástæða fyrir því að Liverpool er 5 stigum á eftir og 9 mörkum verri markatölu en Man United.
Að því sögðu er erfitt að bera United við City en ef við berum United saman við United síðustu ár þá er liðið ljósárum framar. Betur má ef duga skal en titill (FA/Deildarbikarinn) + 2. sætið (Svo lengi sem liðið er ekki 15 stigum á eftir City) + 8 liða úrslit er ásættanlegt að mínu mati miðað við tímabilið hingað til (og þá aðallega hvað United hefur verið lengi án Pogba).
Halldór Marteins says
Þessi lína var nú aðallega hugsuð sem áminning um að það hafa alls ekki allir leikir Manchester United á tímabilinu verið jafn slappir og sá gegn City. Raunar hafa flestir þeirra verið góðir, enda er liðið í 2. sæti deildarinnar.
Mér finnst það verðskuldað. Liðið hefur spilað góða vörn í flestum leikjum, með besta markmann heims þar fyrir aftan, oft náð prýðissprettum í sóknarleiknum (sérstaklega þegar Pogba hefur verið með) og unnið seiglusigra líka inn á milli.
Á þessu stigi tímabils finnst mér liðin fyrir neðan ekki eiga það meira skilið en United að vera í 2. sætinu. Svo verður bara að koma í ljós hvernig restin af tímabilinu spilast.