• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Halldór Marteins

Félagaskipti

Lisandro Martínez er orðinn leikmaður Manchester United

Halldór Marteins skrifaði þann 17. júlí, 2022 | 8 ummæli

Manchester United hefur staðfest kaup á argentínska leikmanninum Lisandro Martínez frá Ajax. Lágvaxinn en áræðinn leikmaður með góðan vinstri fót sem getur spilað bæði í vörninni og á miðju.

https://twitter.com/manutd/status/1548669013273747457?s=21&t=CG3NceIpLtFMYAFjQdcUrw

Talað er um að verðið sé tæplega 46 milljón pund, þ.e. 55 milljón evrur, með þeim möguleika að verðið geti hækkað um 10 milljón evrur í framtíðinni ef vel gengur hjá leikmanninum. Eitt merki um þá trú sem bæði Ajax og Ten Hag hafa á þessum snjalla leikmanni er að hann er nú orðinn þriðji dýrasti leikmaður sem Ajax selur frá upphafi, á eftir Frenkie de Jong og Matthijs de Ligt. Lesa meira

Efnisorð: Lisandro Martínez 8
Æfingaleikir

Sigur í fyrsta leik æfingatímabilsins

Halldór Marteins skrifaði þann 12. júlí, 2022 | 7 ummæli

Fyrsti leikur æfingatímabilsins var spilaður í Tælandi í dag og hófst leikur klukkan 13:00 að íslenskum tíma. Manchester United vann mjög góðan sigur á erkifjendunum þar sem liðið spilaði löngum stundum frábæran fótbolta. Liverpool notaði sitt sterkasta lið ekki fyrr en síðasta hálftímann en fundu ekki leiðina í mark Manchester United.

Gott að byrja sumarleikina svona vel og gaman að fá fljúgandi start fyrir Erik ten Hag. Lesa meira

Efnisorð: Anthony Martial Facundo Pellistri Fred Jadon Sancho Tyrell Malacia 7
Opin umræða

Mánuður af sumarfríi

Halldór Marteins skrifaði þann 23. júní, 2022 | 20 ummæli

Fyrir akkúrat einum mánuði síðan spilaði Manchester United síðasta leik tímabilsins og fór liðið eftir það í langþráð sumarleyfi. Daginn eftir kom nýi stjóri liðsins, Hollendingurinn Erik ten Hag, inn á skrifstofuna og hóf sín störf. Nú styttist í að æfingar hefjist aftur og liðið haldi síðan í æfingaferðalag á framandi slóðir, venju samkvæmt. Þessi pistill er hugsaður sem létt yfirferð á því sem hefur verið í gangi síðasta mánuðinn og vettvangur til að ræða það nýjasta og ferskasta í slúðrinu. Lesa meira

20
Stjórinn

Nýr stjóri tekinn við

Halldór Marteins skrifaði þann 25. maí, 2022 | 15 ummæli

Manchester United beið ekki lengi með að fá nýja knattspyrnustjóra liðsins inn. Strax daginn eftir síðasta leik á þessu versta tímabili í lengri tíma var Erik ten Hag mættur á Old Trafford til að heilsa upp á gjörsamlega alla hjá félaginu, skoða sig um og halda einn góðan blaðamannafund. Auk þess hófst dagurinn á að MUtv birti viðtal við kappann. Samfélagsmiðlar voru undirlagðir af fréttum um Ten Hag og félaga. Fréttamiðlar tóku það sömuleiðis upp, jafnvel svo mikið að minna fór fyrir fréttum af fögnuði Manchester City sem keyrði um borgina í rútu fyrir framan mismikið af fólki. Enda skiljanlegt, við vitum öll hvert er stóra félagið í Manchester-borg. Lesa meira

Efnisorð: Erik ten Hag 15
Enska úrvalsdeildin

Brighton & Hove Albion 4:0 Manchester United

Halldór Marteins skrifaði þann 7. maí, 2022 | 13 ummæli

Frá því Sir Alex Ferguson, besti knattspyrnustjóri allra tíma, lagði stjórafrakkann á hilluna í maí 2013 hefur Manchester United spilað allnokkra leiki sem koma til greina sem sigurvegarar í þeim vafasama flokki verstu frammistöður United eftir að Fergie hætti. Í dag fengum við sterka tilnefningu, einn af of mörgum kandídötum frá þessu tímabili, í þann þrotaflokk. Það var nákvæmlega ekkert ósanngjarnt við þetta rúst. Stærra tap hefði ekki verið ósanngjarnt. Leikmenn Manchester United eru andlega komnir í sumarfrí fyrir löngu og það sést. Lesa meira

13
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Interim pages omitted …
  • Page 37
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress