• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Swansea á morgun

Magnús Þór skrifaði þann 22. desember, 2012 | 6 ummæli

Á morgun mætum við Walesverjunum í Swansea á útivelli. Þeir hafa átt nokkuð góðu gengi að fagna í deildinni í ár undir stjórn Michael Laudrup. Margir bjuggust við erfiðu gengi eftir brottför Brendan Rodgers en liðið spilaði í fyrra virkilega góðan fótbolta á spænska mátann. Michael Laudrup spilaði á sínum tíma fyrir bæði Barcelona og Real Madrid og hefur þjálfað Bröndby, Getafe, Spartak Moskvu og Mallorca. Swansea gerði sennilega bestu kaup tímabilsins þegar þeir fengu spænska snillingin Miguel Pérez Cuesta eða Michu eins og hann er betur þekktur en hann markahæstur í deildinni ásamt Robin van Persie sem hafa skorað 12 mörk hvor. Hann er ekki eini spánverjinn sem Laudrup hefur fengið til liðsins því einnig voru Chico Flores og Pablo Hernández verslaðir. Búast má við því að hraðir vængmenn heimamann geti valdið okkur vandræðum þá helst hinn eldsnöggi Nathan Dyer.

Einhverja hluta vegna erum við efstir í deildinni með 6 stiga forskot á City. Erum búnir að spila útileiki gegn Liverpool, Chelsea, City og erum með fullt hús þar í sennilega jafnerfiðustu leikjum tímabilsins. Varnarleikurinn er búinn að vera bölvaður höfuðverkur í vetur og skrifast það á hluta á mikið rót í varnarlínunni og það er fyrst núna sem að varnarmennirnir eru flestir fullir heilsu fyrir utan Jonny Evans. Michael Carrick hljóta að vera fyrsta val á miðjuna þessa dagana og jafnvel Anderson þegar hann er heill. Svo er sjálfvalið í framlínuna með þá van Persie og Rooney.

Leikurinn gæti orðið mjög erfiður ef við erum ekki vakandi í vörninni. Sókndjarft spil Swansea gæti hentað okkur vel ef við náum að beita skyndisóknum á þá. Nú þegar hópurinn er nánast allur heill er erfiðara að spá fyrir um uppstillingu en hér er mín spá:

De Gea

Jones Ferdinand Smalling Evra

Valencia Carrick Cleverley Young

Rooney

van Persie

Efnisorð: Swansea City Upphitun 6

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    DMS says

    22. desember, 2012 at 12:12

    Ég held það sé engin leið að við náum að fara í gegnum þennan leik án þess að fá á okkur mark. Það hefur þó ekki komið að sök á þessu tímabili þannig að ég ætla að vera bjartsýnn og spá 3-1 sigri okkar manna.

    0
  2. 2

    Almar says

    22. desember, 2012 at 12:43

    Þetta verður skemmtilegur leikur það er klárt mál þar sem Swansea hefur verið að spila flottann bolta í vetur og við erum með besta sóknarlið deildarinnar þannig að það koma mörk í þennann leik þetta endar 4-2 fyrir United. V.Persie með 2,Rooney og Cleverley

    0
  3. 3

    McNissi says

    22. desember, 2012 at 16:02

    Mér finnst þú djarfur Magnús að vera að spá fyrir um byrjunarlið þegar flestir eru heilir og þegar Sirinn er búinn að segjast ætla að rótera mikið liðinu um jólin :)

    Mér líst samt vel á þetta lið og er það bara nokkuð líklegt. Ég spái skemmtilegum markaleik þar sem De Gea mun bjarga okkur með heimsklassa markvörslum. Leikurinn endar 3-2 fyrir okkur eins og annarhver leikur þessa dagana!

    Vil samt sjá Chicha byrja vegna hraða hans sem gæti nýst vel í skyndisóknum.

    0
  4. 4

    Baldur Seljan says

    22. desember, 2012 at 17:23

    Djöfull er að sjá dómgæslu i ensku úrvalsdeildinni. Carlton cole fær bull rautt spjald og Barry brýtur greinilega á varnarmanni Reading þegar sigurmarkið á sér stað á 92 min. Hætt að vera fyndið þegar dómarar eru að gera svona stór mistök trekk í trekk, eiga að hafa spilað leikinn til að geta dæmt um svona atriði . Það er ekki bara nóg að vera með einhver dómarapróf og vita ekkert um það hvernig leikurinn er spilaður. Skammarlegt.

    0
  5. 5

    úlli says

    23. desember, 2012 at 01:09

    Af hverju í andskotanum ætti þetta að vera aukaspyrna á Barry. Varnarmaðurinn stendur bara eins og keila þarna og Barry fer í boltann. Hins vegar var þetta mark ótrúlega mikil vonbrigði.

    0
  6. 6

    McNissi says

    23. desember, 2012 at 02:29

    Sá ekki þetta atvik með Cole en ég sá City leikinn og þegar þeir skora markið hélt ég strax að þetta væri aukaspyrna, að Barry hafi klifrað uppá bakið á varnarmanninum.
    Hinsvegar eftir nokkrar endursýningar þá sést greinilega að varnarmaðurinn reynir aldrei að fara í boltann heldur stoppar hann, bakkar smá og beygir sig örlítið niður og bíður eftir að fá Barry í bakið. Þetta er einfaldlega klár heigulháttur í varnarmanninum að ráðast ekki að boltanum og skalla hann í burtu, mjög svekkjandi mistök sem gáfu City sigurinn eftir hetjulega baráttu í leiknum.

    0

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Magnús Þór um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Arni um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Bjarni um Önnur ferð til Sevilla!
  • Egill um Real Betis 0:1 Manchester United
  • Helgi P um United 0 – 0 Southampton

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2023 · Keyrt á WordPress