• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Meistaradeild Evrópu

Bayer Leverkusen koma í heimsókn

Magnús Þór skrifaði þann 16. september, 2013 | 4 ummæli

Manchester United - Bayer LeverkusenÞá er komið að fyrsta meistaradeildarleik David Moyes sem stjóri Manchester United. Hann stjórnaði Everton í umspili um sæti í riðlakeppninni 2005-06 en tapaði báðum leikjunum gegn Villarreal 2-1, samtals 4-2. United hafa oft átt auðveldari riðla í þessari keppni og á Ferguson að hafa sagt að þetta sé erfiðasti riðill United til þessa. Þó þetta séu ekki stærstu og bestu lið sinna deilda fyrir utan Shakhtar Donetsk sem reyndar hafa misst töluvert af leikmönnum í sumar, Fernandinho til City og Henrikh Mkhitaryan til Dortmund bera þar hæst. Real Sociedad voru ef ég man rétt ríflega 30 stigum á eftir meisturum Barcelona í spænsku deildinni síðasta tímabil en spænsk lið eru mjög teknísk og geta reynst okkur erfið.

Bayer Leverkusen hafa ekki verið rosalega áberandi undanfarin ár en margir muna eflaust eftir 2001-02 tímabilinu þar sem þeir náðu frekar svekkjandi þrennu, voru í 2. sæti í bundesligunni, meistaradeild og bikar. Það sama tímabil vorum við slegnir út af þeim í undanúrslitum meistaradeildarinnar, 2-2 jafntefli á Old Trafford og 1-1 jafntefli á þeirra heimavelli.

Þá að okkur liði, Phil Jones verður ekki með vegna meiðsla og Rafael líklega einnig. Ég ætla að spá United annað kvöld svona:

utd vs leverkusen spá

Efnisorð: Bayer Leverkusen Meistaradeild Upphitun 4

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Bambo says

    16. september, 2013 at 21:09

    Ég ætla að spá því að Moyes taki smá Ferguson meistarardeildar uppstillingu á liðið í þessum leik.
    Ætla að spá:
    De Gea
    Smalling, Evans, Vidic, Evra
    Valencia/Zaha , Carrick, Fellaini, Nani
    Welbeck, Rooney

    held að þetta verði rólegur leikur, Van Persie kemur inná og skorar sigurmarkið í 1-0 sigri

    0
  2. 2

    Valdi Á. says

    17. september, 2013 at 00:39

    Welbeck er meiddur sem opnar vonandi dyrnar fyrir Zaha. Efast samt um að hann verði í liðinu. Hef farið á tvo leiki með Leverkusen vegna þess að hluta af fjölskyldunni býr þar. Alltaf stemmning á vellinum þótt hann sé nú lítill. Þetta verður erfiður leikur eins og sjá má á töflunni í Bundesligunni eftir 5 leiki. Dortmund 15 stig, B. Munchen 13 stig og Leverkusen fylgir fast á eftir með 12 stig.

    United tekur þetta 2-0, smá bjartsýni skaðar ekki.

    0
  3. 3

    Pétur says

    17. september, 2013 at 11:27

    á welbeck að vera eitthvað meiddur? vona að chicarito spili þennan leik
    ég væri til í að sjá þetta lið:
    De Gea
    Fabio Vidic Smalling Evra
    Valencia Carrick Fellaini Kagawa
    Rooney
    Chicarito

    gott að eiga RVP sem tromp á bekknum, vil svo að sjálfsögðu sjá Zaha koma inná

    0
  4. 4

    Atli says

    17. september, 2013 at 15:50

    Kagawa og Fellaini fá byrjunarliðssæti.

    De Gea

    Fabio Evans Vidic Evra

    Carrick
    Fellaini

    Valencia Nani
    Kagawa

    Rooney

    0

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Magnús Þór um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Arni um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Bjarni um Önnur ferð til Sevilla!
  • Egill um Real Betis 0:1 Manchester United
  • Helgi P um United 0 – 0 Southampton

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2023 · Keyrt á WordPress