Eftir vægast sagt svekkjandi frammistöðu og úrslit gegn Southampton á heimavelli um síðustu helgi er komið að öðrum heimaleik. Að þessu sinni mætum við Real Sociedad sem hafa ekki verið alltof sannfærandi í sinni deild og sitja nú í 12.sæti La Liga.
Danny Welbeck, Tom Cleverley, Nemanja Vidic og Rio Ferdinand eru tæpir vegna meiðsla en búist er við að einhverjir að þeim muni þó koma við sögu annað kvöld.
Nokkrar staðreyndir
Manchester United hafa aldrei mætt Real Sociedad í mótsleik
Real Sociedad eru án stiga í A-riðli eftir töp gegn Shakhtar og Leverkusen.
Manchester United hafa tapað síðustu 2 leikjum gegn spænskum liðum, 3-2 gegn Bilbao 11/12 og 2-1 gegn Real Madrid í alræmdum leik.
Reyndar hafa United einungis unnið 1 af síðustu 6 leikjum á heimavelli gegn spænskum liðum. Sá sigur var 1-0 sigur gegn Barcelona 2008 í undanúrslitum.
Samanlögð tölfræði yfir leiki gegn spænskum gestum er U:8 J:9 T:4
Wayne Rooney er markahæstur Breta í meistaradeildinni eftir að komast yfir Ryan Giggs í fyrstu umferðinni í ár. Robin van Persie hefur skorað 10 ár í röð í meistaradeildinni.
Pétur says
Ég vona svo iiinnnilega að Kagawa fái að spila þennan leik, er farinn að vorkenna manninum
Pillinn says
Já ég hef mjög lítið álit orðið á Moyes eftir að hann hefur ekki verið að nota Kagawa í upphafi þessa tímabils. Vill frekar vera með vonlausa leikmenn eins og Ashley Young og svo leikmenn sem ná ekki að taka aukaskrefið, eins og Cleverly og Anderson. Ég vil klárlega að Kagawa byrji þennan leik og mætti alveg spila honum á miðjunni ef hann vill ekki nota hann í holunni. Kagawa vantar leiki því alltaf þegar hann spilar þá stendur hann sig vel. Hann á ekki bara að vera eitthvað skraut á bekknum, hann er hörku playmaker.
Runólfur says
Solid 3-0 sigur.
Reikna með Kagawa, Hernandez og Anderson í startinu. Leiðinlegt að Clev sé meiddur – reiknaði með honum.
Gæti farið svo að Zaha fái mínútur.
Ps. Anderson skorar.
Stefán says
Hef ekkert á móti Moyes nema að Kagawa þarf að spila miklu meira
Rassgat says
Raunsætt mat.
Anderson skorar ekki, sérstaklega ekki á móti þessu liði. Hann er jú ekki í leikformi vegna þess að hann á ekki fast sæti og spilar sjaldan heilan leik (jafnvel sést hann ekki á velli).
Kostur er sá að Welbeck kemur ekki við sögu.
Býst við leiðinlegum bolta frá mínum mönnum með von um góð úrslit þó.
Með von að Moyes stilli upp sterku og skemmtilegu liði til sóknar í 90+ mín,
bjartsýnn býst ég við sigri sem og allir stuðningsmenn ManUtd !
Atli Þór says
Moyes lætur Giggs byrja… Er ég að missa af eithverju hjá Giggs eða? Því ég sé voða sjaldan eithvað gott koma frá honum sérstaklega þegar hann spir á miðjunni. Hann er hægur, lengi að hugsa, auðvelt að ýta í burtu og á ekki séns í miðjubaráttu almennt.