• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Everton á Goodison Park

Sigurjón skrifaði þann 19. apríl, 2014 | 3 ummæli

Á morgun gerir United sér ferð til Liverpool til að spila við Everton á Goodison Park. Þetta verður í 188 skipti sem þessi lið mætast en þau spiluðu sinn fyrsta leik gegn hvort öðru árið 1892. Everton er sem stendur í 5 sæti deildarinnar, 9 stigum á undan United, en okkar menn eiga leik til góða þannig að ef United vinnur á morgun þá gæti verið smááááááááááá vonarglæta á því að stela fimmta sætinu á síðustu stundu.

Verkefnið verður klárlega erfitt, Everton hafa auðvitað verið að spila vel í allan vetur, en United verið að sækja  í sig veðrið í unanförnum leikjum, sérstaklega eftir að Mata var settur í holuna sína með Kagawa sér við hlið. Moyes hlýtur að halda sig við það plan enda skilaði það liðinu 4 mörkum bæði gegn Newcastle og Aston Villa. Fyrir utan meiðsli Robin Van Persie, Evans og Rafael eru allir aðrir heilir þannig að það verður forvitnilegt að sjá hver fær að spreyta sig á hægri kantinum, ég væri alveg til í að sjá Nani en mér þykir líklegra að Valencia verði mættur þar.

Hér er allavega mín spá:

De Gea

Smalling Jones Vidic Evra

Carrick Fellaini

Valencia  Mata  Kagawa

Rooney

Það er ljóst að Moyes þarf á góðum úrslitum að halda. Þetta hefur auðvitað verið neyðarlegt tímabil fyrir hann, sérstaklega gagnvart Everton. Ekki aðeins hefur Everton spilað betur undir stjórn Roberto Martínez heldur sóttu bítlarnir 3 stig á Old Trafford fyrr í vetur, þá í fyrsta skipti í tugi ára (minnir mig). Þetta er því gott tækifæri fyrir Davíð að glíma við stóru Everton grýluna að fylgt hefur honum í allan vetur.

Leikurinn byrjar klukkan 15:10 og mun herra Mark Clattenburg dæma leikinn.

Efnisorð: Everton Upphitun 3

Reader Interactions

Comments

  1. Elías Kristjánsson says

    20. apríl, 2014 at 09:05

    Everton 1-3 ManUtd. Eins og segir að ofan við erum að komast í gírinn.

  2. Ingvar says

    20. apríl, 2014 at 13:34

    3-0 fyrir þá bláu, megum ekki láta blekkjast en við höfum verið að spila við arfaslök lið uppá síðkastið og þegar við spilum við alvöru lið þá gerum við í brók.

    Já og eitt en #moyesout eftir leik

  3. Hanni says

    20. apríl, 2014 at 13:51

    Koma svo: De Gea, Evra, Jones, Vidic, Smalling, Carrick, Fletcher, Kagawa, Mata, Valencia, Hernandez

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress