• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Leikur í gær, leikur á morgun – Chelsea á Old Trafford

Björn Friðgeir skrifaði þann 27. desember, 2015 | 6 ummæli

Manchester United - ChelseaLeikmenn og þjálfari United fá ekki langan tíma til að sleikja sárin og reyna að stoppa í götin eftir tapið sæma í gær. Englandsmeistarar Chelsea koma í heimsókn á Old Trafford á morgun og hugsa sér gott til góðarinnar að bæta við í verstu tapgöngu United í áratugi.

En það er ekki liðið í efsta sæti sem er að koma á morgun, það er liðið í 15. sæti. Eftir góðan sigur gegn Sunderland í fyrsta leik eftir brottrekstur Mourinho tók Guus Hiddink við og fór með Chelsea til Watford í gær og þurfti að hafa mikið fyrir 2-2 jafntefli þó að Oscar hefði svo sóað víti að hætti John Terry sem hefði tryggt þeim sigur.

Chelsea er því ekki í mikið betri stöðu en United, en ólíkt United eru þeir þó að skora mörkin.

Diego Costa verður fjarverandi á morgun vegna fimmta gula spjaldsins vetrarins, sem hann fékk í gær. Eden Hazard kom hins vegar inn á og er líklegt að hann sé klár. Eini maður Chelsea sem er þá á meiðslalistanum er Radamel Falcao. Líklegt Chelsea lið er þá

Courtois
Azpilicueta
Terry
Cahill
Ivanovic
Matić
Fàbregas
Willian
Oscar
Hazard
Rémy

Það er eiginlega að bera í bakkafullan lækinn að fjalla eitthvað meira um frammistöðu okkar manna undanfarið, ég smelli mér því beint í liðið sem ég býst við að sjá á morgun.

1
De Gea
17
Blind
12
Smalling
4
Jones
18
young
31
Bastian
28
Schneiderlin
7
Memphis
10
Rooney
8
Mata
9
Martial

Rooney var frískari þegar hann kom inná en hann hefur verið í margar vikur ef ekki mánuði, og Schweinsteiger kemur til baka úr banni. Ef Schneiderlin kemur ekki inn í liðið þá hlýtur eitthvað mikið að vera að í leik hans á æfingum. Matteo Darmian er að öllum líkindum tilbúinn eftir meiðsli, en óvíst hvort honum verður treyst fyrir byrjunarliðssæti í fyrsta leik

Síðan hafa menn verið að gera því skóna að Jesse Lingard sé líka tilbúinn að snúa tilbaka en hann fer ekki lengra en á bekkinn.

En það er þegar þetta er skrifað, um 24 tímum fyrir leik, enn allsendis óvíst hvort Louis van Gaal stjórni liðinu á morgun. Fréttir í morgun hermdu að hann hefði ekki sést koma á Carrington og að Giggs hefði stjórnað æfingunni.Nú síðdegis bárust þó fréttir að hann væri kominn á Lowry hótelið með leikmönnum eins og venja er daginn fyrir leik

https://twitter.com/samuelluckhurst/status/681173736406532097

Allt annað en sigur á morgun hlýtur samt að þýða endalok hans sem stjóra Manchester United og jafnvel sigur gæti ekki verið nóg. Þessi leikur fer því fram í andrúmslofti mikillar óvissu, eitthvað sem enginn vildi sjá þegar Chelsea er á leiðinni.

Leikurinn er á morgun, mánudag, kl 17:30

 

Efnisorð: Chelsea Upphitun 6

Reader Interactions

Comments

  1. Karl Garðars says

    27. desember, 2015 at 22:22

    Jæja, núna kemur í ljós hvort leikmennirnir trúi á LVG og verkefnið eða ekki.
    Þó allt væri með feldu hjá okkar mönnum yrði ég fyrir leik alveg sáttur með stórmeistara jafnteflið.
    Eeeen…. Ég sé tvennt í stöðunni:
    1. Leikmenn mæta algjörlega andlausir og skít tapa þessum leik sem verður til þess að LVG segir af sér í samráði við stjórnina.
    2. Leikmenn mæta dýrvitlausir í þennan leik og gefa sitt allra besta sem sýnir að mér finnst traust þeirra á stjóranum. Hvort það dugi okkar meiðslahrjáða liði, á móti ómeiddu feikna fínu Chelsea liði sem er komið alveg út í horn frammistöðulega séð, veit ég ekki.
    Þetta verður skemmtilegur leikur svo mikið er víst! :)

  2. gudmundurhelgi says

    28. desember, 2015 at 00:44

    Ég spái öruggum sigri.

  3. Lurgurinn says

    28. desember, 2015 at 12:37

    Ég ætla rétt ađ vona ađ strákarnir mæti brjálađir til leiks og trođi sokk uppì mig. Þó ég sé búinn ađ gefa þađ út ađ ég vilji sjá breytingar þá leggst ég aldrei svo lágt ađ óska liđinu mínu tapi.
    Ætla ekkert ađ jinxa þetta međ neinni „sigur spá“ en ætla ađ spá samt skemmtilegum leik.
    GG MAN UTD!!

  4. Hilmar says

    28. desember, 2015 at 13:25

    Þess ber að geta að Fabregas ferðaðist ekki með liðinu til Manchester.
    Spurningin er bara hvort það er gott eða slæmt.
    Núna förum við í gang, 3-1 rooney*2 og Smalling

    Síðan væri gaman ef þið ritstjórarnir mynduð henda í lista yfir líkleg janúarkaup, ja eða ræða það í áramótapodcasti :)

  5. Bjarni Ellertsson says

    28. desember, 2015 at 13:37

    Ef leikurinn á móti Stoke var erfiður líkamlega, það sást langar leiðir, þá verður leikurinn í dag jafn erfiður ef ekki erfiðari, verðum undir í líkamlegum styrk og þá er það sem er eftir, andlegi þátturinn. Því miður hefur sá þáttur ekki verið til staðar í vetur eða síðustu mánuði hjá hvorugu liðinu og spái því stórmeistara jafntefli. Vonast eftir sigri að sjálfsögðu en sé það ekki í kortunum. En það styttist alltaf í sigurleik með hverjum leiknum, getum huggað okkur við það.

  6. Runar says

    28. desember, 2015 at 13:55

    Ég ætla mér bara ekki að horfa á þennan blessaða leik og fara bara þess í stað á völlinn og horfa á Arsenal taka á móti Bournemouth, fæ allavega að sjá nokkur mörk skoruð ;)

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress