Þetta er held ég í fyrsta skipti sem ég er fenginn til að skrifa tvær upphitanir í röð og það er gaman að velta fyrir sér er hversu mikið síðasti fótboltaleikur hefur áhrif á hugarfar manns þegar það kemur að því að hugsa til þess næsta.
Fyrir leikinn gegn Derby hafði United tapað 0-1 gegn Southampton í alveg afskaplega daufum leik sem Bjössi lýsti svona:
Þetta var hreint skelfilegur leikur af hálfu United. Allt það slæma sem við höfum verið að sjá í leikjum síðustu mánuða var kýrskýrt. Það er enginn hraði í leik liðsins, það skapast nær engin færi, og það er eins og miðjan geti ekkert gert til að skapa framávið.
Það að skrifa upphitun eftir slíka frammistöðu er alveg afskaplega erfitt því eins og með leikmenn liðsins þá þarf að peppa mann upp til að koma sér í gírinn. Og rétt eins og það hefur reynst Van Gaal erfitt að koma leikmönnum í rétt hugarfar þá hafa frammistöður liðsins, á þessu tímabili, lítið hjálpað manni til að sjá vonarglætu um betri tíð. En svo kemur sigurleikur. Ekki bara sigur heldur náði United að skora meira en eitt mark í sigurleik. Ha í alvörunni? Jújú, United skoraði heil þrjú mörk í sama leiknum og komst áfram næstu umferð FA bikarkeppninnar. Það hefur engin áhrif á mig þó það hafi verið lið í neðri deild, United skoraði mörk og vann fótboltaleik. Allt í einu er ánægjutilfinningin komin aftur og ritstíflan horfin á braut. United er komið til baka. Allt er í blússandi siglingu og þeir sem kvarta eru bara bullumkollar (smá ýkjur en það er bara gaman).
Þetta sýnir einfaldlega hvað þetta er búið að vera mikil rússibanaferð síðan Ferguson hætti sem stjóri. Því miður virðist alltaf eitthvað gerast, þegar ég er byrjaður að hafa smá trú á liðinu aftur, sem nær að skemma þessa góðu tilfinningu mína. Í þetta skiptið var það Manchester City sem gerði það með tilkynningu um að Pellegrini yfirgefi liðið í sumar og að Pep Guardiola verði næsti stjóri liðsins. Fuuuuuuu!
City statement on Pep G and Pellegrini pic.twitter.com/NFnOdH6nva
— jamie jackson (@JamieJackson___) February 1, 2016
Það þýðir bara að Elvar ætlar að púlla Ed Woodward á þetta og horfa ekki lengra en einn leik fram í tímann. Ekki meir, enda algjör óþarfi. Hvað finnum við þar? Stoke City á Old Trafford.
Stoke City
Þegar ég byrjaði að skrifa uppkastið að þessari upphitun ritaði ég um hvað Stoke væru að eiga alveg dúndurtímabil og að Mark Hughes sé að standa sig afskaplega vel með fyrrum leiðinlegasta lið deildarinnar. Svo leit ég aðeins nánar á formið á þeim og það virðist vera að eftir 2-0 sigurleik þeirra á United annan í jólum, þá hafa hlutirnir dalað og ekki hægt að segja annað en að janúar hafi verið ansi slappur mánuður fyrir þá. Þeir hafa spilað níu leiki síðan þeir unnu okkur, þrír sigurleikir, fjórir tapleikir, eitt jafntefli og svo duttu þeir út gegn Liverpool í vítaspyrnukeppni núna um daginn.
Talan fjórir virðist vera galdratalan þegar bera á saman United og Stoke þessa stundina. Stoke eru í níunda sæti deildarinnar, fjórum sætum neðar en United, með 33 stig, fjórum stigum á eftir United, búnir að skora 24 mörk, fjórum færri en United og fá á sig 25 mörk, fjórum fleiri en United. Eins og ég nefndi áðan þá endaði fyrri leikur liðanna á þessu tímabilinu með 2-0 sigri Stoke á tímapunkti þar sem mál manna var að Van yrði látinn fjúka ef United myndi tapa þeim leik. Mörkin tvö voru skoruð á á alveg skelfilegum 5-6 mínútu kafla þar sem Memphis ákvað að það væri góð hugmynd að skalla boltann 15-20 metra aftur til David De Gea og svo úr misheppnaðri aukaspyrnu náði Arnotovic boltanum og skoraði alveg gullfallegt mark. Því miður voru Stoke svo líklegri að skora þriðja markið en United að minnka muninn. United hefur því harma að hefna fyrir þennan leik. En þó Stoke sé búið að vinna 2 af fjórum síðustu leikjum gegn United þá hafa þeir aldrei unnið úrvalsdeildarleik á Old Trafford (7 leikir) og hefur United unnið 11 af síðustu 15 leikjum liðanna.
Meiðslastaðan hjá Stoke er þannig að fimm eru á meiðslalistanum og munar þá helst um Ryan Shawcross og Charlie Adam hjá þeim. Á listanum er einnig Arnautovic sem er án efa einn af þeirra mikilvægustu leikmönnum en Physioroom segir að hann muni geta spilað gegn United og ég hef ekki fundið neinar fréttir um meiðsli hans þannig að ég geri fastlega ráð fyrir honum í byrjunarliði Mark Hughes. Annars er það svo sannarlega skarð fyrir skyldi hjá Stoke City.
Talandi um leikmannamál Stoke, þá voru þeirí gær að gera sín stærstu kaup í sögu félagsins er þeir borguðu 18 milljónir punda fyrir miðjumanninn Giannelli Imbula frá Porto. Fyrra metið þeirra var 12 milljónir fyrir Shaqiri núna í ágúst. Alex Shaw orðaði ágætlega hvað þessi nýi sjónvarpsréttarsamningur er að fara gera fyrir deildina:
Stoke spending £18m before new TV deal kicks in! Next season going to be mad/exciting. You'll get mid-range teams spending £25m+ on a player
— Alex Shaw (@AlexShawESPN) February 1, 2016
United
Van Gaal sagði fyrir leikinn að hann vilji sjá jafn góða frammistöðu gegn Stoke og leikmennirnir sýndu gegn Derby. Ég get vel tekið undir það. United átti fínan leik en að sjálfsögðu ákvað liðið á tímabili að hætta hugsa og það leyfði Derby að jafna leikinn um tíma. Lítið hefur breyst í meiðslamálum síðan liðið spilaði síðast, United er enn í þriðja sæti yfir flest meiðsli samkvæmt Physioroom með sjö á meiðslalistanum (Shaw, Valencia, Rojo, Jones, Darmian, Young og Schweinsteiger) og þar af fjórir varnarmenn og 2 varavarnarmenn! Sem er að sjálfsögðu alveg grátleg staða sem virðist gerast fyrir liðið okkar á hverju tímabili.
Eins og staðan er núna þá erum við ekki lengur í meistaradeildinni eða Capital One bikarkeppninni og í gríðarlegri baráttu um fjórða deildarsætið og FA bikarnum. Í FA bikarkeppninni vorum við heppnir er við drógumst gegn Shrewsbury Town. Í deildarkeppninni erum við fimm stigum á eftir Tottenham og tíu stigum frá topp sætinu þegar 15 leikir eru eftir. United má því alls ekki við því að tapa fleiri stigum og þurfum við nauðsynlega á þremur stigum að halda.
Býst ekki við miklum breytingum á liðinu sem spilaði gegn Derby. Svona leit það út:
Á meðan United glímir við Stoke þá mætir Southampton á Emirates völlinn gegn Arsenal, Leicester City mætir Liverpool og svo heimsækja leikmenn Pep, nei sorrí Pellegrini, Sunderland á meðan Tottenham á erfiðan útileik gegn Norwich City.
Skildu eftir svar