Enska úrvalsdeildin

Manchester United 1:1 Arsenal

Enn eitt ógeðslega jafnteflið á Old Trafford. Enn og aftur yfirspilar United andstæðinga sína en geta bara ekki unnið leik fyrir sitt litla líf. Lokatölur á Old Trafford 1-1 í dag.

1
De Gea
36
Darmian
5
Rojo
4
Jones
25
Valencia
6
Pogba
16
Carrick
21
Herrera
9
Martial
19
Rashford
8
Mata

Bekkur: Romero, Blind (’63), Schneiderlin (’85), Lingard, Young, Memphis, Rooney (’62)

Lið Arsenal er svo svona skipað:

Cech, Jenkinson, Mustafi, Koscielny, Monreal, Coquelin, Elneny, Ramsey, Ozil, Walcott, Sanchez.
Lesa meira

Enska úrvalsdeildin

Arsenal kemur í heimsókn á Old Trafford

„It was 11 men against 11 children,“ voru orð sem Patrice nokkur Evra lét falla eftir að Manchester United valtaði yfir Arsenal í Meistaradeildinni árið 2009. Á þessum tíma var rígurinn milli Manchester United og Arsenal gríðarlegur.

Í raun allt frá komu Arsene Wenger í ensku úrvalsdeildina þá mátti búast við látum þegar liðin mættust. Síðustu ár Sir Alex Ferguson með United liðið voru leikirnir þó aðeins öðruvísi en United var í raun alltaf með yfirhöndina. Leikurinn á morgun verður eflaust allt, allt öðruvísi. Lesa meira

Yngri liðin

Hvað er í gangi í yngri liðum félagsins? 2016:4

STÓRU FRÉTTIRNAR hvað varðar yngri lið Manchester United eru þær að maðurinn sem breytir öllu í gull, Warren Joyce, er farinn til Wigan í Championship deildinni. Verður það stórt skarð að fylla en hefur hann unnið U23 ára deildina núna þrisvar á síðustu fjórum árum.

Hann er ekki stærsta nafnið í bransanum en hann er einn af þessum þjálfurum sem fer undir radarinn, gífurlega góður í sínu starfi sem milliliður fyrir unglingalið og aðallið. Þó svo að unglingalið United hafi kannski ekki verið að fjöldaframleiða leikmenn í aðalliðið undanfarin ár þá er félagið samt það félag á Englandi sem býr til flesta atvinnumenn í efstu eða næstu efstu deild. Daily Mail fjallaði meðal annars um málið á dögunum. Lesa meira