Við á ritstjórn Rauðu djöflanna höfum ákveðið að endurvekja þennan gamla lið á síðunni. Leikmaður mánaðarins var í fríi á síðasta tímabili en hefur ákveðið að snúa aftur.
Ritstjórn hefur tilnefnt fjóra leikmenn sem hafa staðið uppúr að okkar mati.
Varnarmennirnir Matteo Darmian, Luke Shaw og Chris Smalling hafa staðið sig frábærlega hingað til og verið mjög traustir. Svo hafa þeir Shaw og Darmian verið duglegir að sækja upp kantana.
Spánverjinn geðþekki Juan Mata er einnig tilnefndur en hann hefur verið manna duglegastur að búa til færi fyrir samherja sína.
[poll id=“14″]