Þær fréttir berast nú í morgunsárið að Zenit frá Pétursborg í Rússlandi sé á eftir Nani og hafi boðið 25 milljónir punda í piltinn. Það eru eflaust skiptar skoðanir um Nani en það er engin spurning að maðurinn hefur reynst liðinu mikilvægur og bjargað því upp á sitt einsdæmi, trekk í trekk. Þegar Nani er að spila á 100% afli þá er hann einn besti maður deildarinnar, engin spurning. Löstur hans er hinsvegar stöðuleiki, við erum ekki að sjá hans rétta andlit nema í kannski 30% leikja, restina af tímanum er hann svo sem að spila ágætlega, en virkar samt hálf bitlaus miðað við þann Nani sem við viljum alltaf sjá. Oft er hann svo að taka stórkostlega vondar ákvarðanir á mikilvægum tímapunktum, til dæmis í lok leikja þar sem Man Utd þarf á marki að halda.
25 milljónir hljómar ekki sem mikill peningur fyrir mann eins og Nani, svona miðað við hvernig leikmannamarkaðurinn hefur verið í sumar. Hann hefur verið tregur að skrifa undir þá samninga sem honum hafa verið boðnir og það er hættulegur leikur þegar Ferguson er hinum megin við borðið, sá gamli hefur afskaplega litla þolinmæði gagnvart stælum. Það er hinsvegar óþarfi að láta eins og samingur Nani renni út eftir hádegi á morgun, hann er ennþá samningsbundinn Man Utd til ársins 2014 og því engin ástæða til að selja hann á einhverjum afslætti. Selja hann hinsvegar á góðu verði og kaupa síðan Moutinho eða Rodriguez frá Porto? Jájá, það gæti alveg virkað!