• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Sir Alex Ferguson

Enska úrvalsdeildin Stjórinn

Sir Alex Ferguson kveður Old Trafford á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 11. maí, 2013 | 10 ummæli

Bjóstu við venjulegri upphitun? Nei. Auðvitað ekki.

Fyrsta mál á dagskrá: Búið að birta lagalistann sem spilaður verður á Old Trafford fyrir leik og í hléi á morgun.

Ýttu á play og svo getum við haldið áfram

Hvílíkur lúxus! Tveir leikir eftir af tímabilinu, við vitum hvað er í vændum og fáum að kveðja… tja? kónginn? Ég ólst upp við að það hefði bara verið einn kóngur á Old Trafford og hann hét Denis Law. Svo kom Eric Cantona og um tíma var hann kóngurinn, áður en við áttuðum okkur á að hann var eitthvað meira og varð ‘Le Dieu’. Lesa meira

Efnisorð: Sir Alex Ferguson Swansea City 10
Pistlar Stjórinn

David Moyes er nýr knattspyrnustjóri Manchester United.

Tryggvi Páll skrifaði þann 9. maí, 2013 | 19 ummæli

Það er orðið opinbert, David Moyes er arftaki Sir Alex Ferguson sem knattspyrnustjóri Manchester United og mun hann taka við stjórnartaumunum að tímabili loknu. Ég segi þetta aftur: David Moyes er arftaki Sir Alex Ferguson sem knattspyrnustjóri Manchester United. Takið ykkur smástund í að melta þetta.

Fljótlega eftir að staðfesting barst um að Sir Alex myndi setjast í helgan stein komu helst þrír menn til greina, David Moyes, Jose Mourinho og Jurgen Klopp. Fljótlega uppúr hádegi í gær varð það þó alltaf skýrara og skýrara að það yrði David Moyes sem myndi taka við keflinu. Rétt áður en tilkynning barst þess efnis að Moyes væri nýr stjóri United virðist fréttadeild United aðeins hafa farið framúr sjálfri sér og birti hún tengil yfir á Facebook-síðu félagsins þar sem Moyes var boðinn velkominn og aðdáendur gátu skilið eftir skilaboð til hans. Fljótlega eftir það birti Twitter-síða Everton þetta: Lesa meira

Efnisorð: David Moyes Sir Alex Ferguson 19
Pistlar Stjórinn

Sir Alex Ferguson hættir sem framkvæmdastjóri Manchester United

Tryggvi Páll skrifaði þann 8. maí, 2013 | 27 ummæli

Maður vissi að þessi dagur mundi einn daginn renna upp. Hvar byrjar maður?

Í gær fór orðrómur á stað um að Sir Alex Ferguson myndi stíga niður sem knattspyrnustjóri Manchester United við lok tímabilsins og rétt í þessu var það staðfest af liðinu í yfirlýsingu. Maður á bágt með að trúa þessu. Fyrstu viðbrögð mín og flestra sem ég fylgist með á Twitter voru svipuð, menn höfðu enga trú á því að orðrómurinn væri sannur en eftir því sem leið á kvöldið breyttist hljóðið örlítið, kannski var eitthvað sannleikskorn í þessu. Vísbendingarnar hafa nefnilega birst okkur smám saman síðustu tímabil en við höfum auðvitað ekki tekið eftir þeim, eða kannski bara hunsað þær, enda tilhugsunin um Manchester United án Sir Alex Ferguson eitthvað sem maður hefur bægt frá sér þó að reynsla og skynsemi segi manni að ekkert endist að eilífu, sama hversu gott það er. Lesa meira

Efnisorð: Sir Alex Ferguson 27
Lesefni

Englandsmeistararnir lesa

ellioman skrifaði þann 25. apríl, 2013 | 3 ummæli

Vannst titillinn í rútunni á leiðinni frá Sunderland á síðasta leikdeginum í fyrra?

Ef ekki, þá eru hér 10 lykilstundir leiktíðarinnar

Þori að veðja að einhver hefur hjálpað Robbie Savage með þetta yfirlit yfir taktík United á tímabilinu

Alex Ferguson: Stórmeistari og söngur honum til heiðurs

BBC fer yfir titlana 20

Og sá góði rauðliði Rob Smyth líka á Guardian

Fimm punktar úr leiknum gegn Villa Lesa meira

Efnisorð: Meistarar Sir Alex Ferguson 3
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress