Jóhannes úr Kötlum beitti smá ritskoðun þegar hann ákvað að setja Hurðaskelli í ljóð sitt í stað Faldafeykis. Þess vegna þurfum við að hugsa aðeins útfyrir rammann þegar við hugsum um Ryan Giggs sem Giljagaur.
![Ryan Giggs © Getty Ryan Giggs](http://www.raududjoflarnir.is/wp-content/uploads/2012/12/Ryan+Giggs-150x150.jpg)
Hvað er hægt að segja um Ryan Giggs? Öll hugsanleg leikjamet fyrir United, 21 ár, 9 mánuðir og 11 dagar síðan hann lék sinn fyrsta leik og hann er enn að. 50% fleiri Englandsmeistaratitlar en næsti ekki-United maður á titlalistanum, einn besti kantmaður allra tíma. Allt afrek sem erfitt er að sjá að verði nokkurn tímann leikin eftir.
Það er því að bera í bakkafullan lækinn að mæra Giggs eitthvað meira hér, eða útlista hvers vegna við dáum manninn, en engu að síður vitum við öll að í honum býr jólasveinn, því gaurinn giljaði jú eina sem ekki hefði átt að vera.
Skildu eftir svar