• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska bikarkeppnin

West Ham í FA bikarnum

Magnús Þór skrifaði þann 4. janúar, 2013 | 6 ummæli

Þá hefðjum við þáttöku okkur í aðalbikarkeppninni á Englandi. Frammistaða liðisins í þessari keppni hefur valdið vonbrigðum undanfarin ár. Sennilega hefur verið hægt að óska sér auðveldari andstæðings í þessari umferð til að geta spilað yngri mönnunum, reyndar kemur 8 daga pása þannig að ekki er ólíklegt að United stilli upp þokkalega sterku liði.

West Ham hefur gengið þokkalega í deildinni eftir að hafa komið upp úr Championship-deildinni í vor. Þeir eru sem stendur í 11.sæti deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 17:15 og fer fram á Upton Park.

  • Manchester United hefur unnið þessa keppni 11 sinnum, 1909,1948,1963,1977,1983,1985,1990,1994,1996,1999,2004. Ekkert lið hefur unnið oftar.
  • Sir Alex Ferguson hefur stýrt Man Utd til sigurs 5 sinnum eða oftast allra stjóra félagsins.
  • Sigurinn í keppninni 1990 er talinn hafa bjargað starfi Ferguson á sínum tíma.
  • Einu núverandi leikmenn liðsins sem unnu FA bikarinn síðast eru Ryan Giggs, Paul Scholes og Rio Ferdinand.
  • David de Gea, Rafael (og Fabio), Danny Welbeck voru á fermingaraldri síðast þegur United vann þennan bikar. Nick Powell var 10 ára.

Líklegt byrjunarlið:

Lindegaard

Jones Smalling Vidic Büttner

Welbeck Fletcher Scholes Young

Kagawa

Hernández

Efnisorð: Upphitun West Ham United 6

Reader Interactions

Comments

  1. Magnús Þór says

    4. janúar, 2013 at 12:00

    Ég setti þetta svona upp af því að það er búið að tala um að hvíla Evra og Carrick. Það er ekki ólíklegt að Cleverley spili í staðinn fyrir Fletcher.

  2. Kristjan says

    4. janúar, 2013 at 20:52

    Þú gleymdir Van Persie hann van bikarinn með Arsenal árið 2005 á móti United.

  3. Egill Guðjohnsen says

    5. janúar, 2013 at 00:04

    Hann mun spila sterkt lið og kæmi ekki á óvart ef RVP skildi spila og svo vill ég benda á að Rio hefur ekki unnið FA-Cup.

  4. Friðrik says

    5. janúar, 2013 at 02:27

    Já Rio hefur ekki unnið Fa bikarinn en Fletcher hefur hinsvegur unnið hann líka.

  5. siggi United maður says

    5. janúar, 2013 at 04:06

    Ég held að Ferguson gæti ekki verið meira sama um þennan FA cup. Hann er nú þegar búinn að vinna hann oftast allra United stjóra, og mun meira af peningum fæst fyrir Champions League og Premierleague. Það er flott og allt það að vinna FA cup, en ef þetta er spurning um að vinna deild og CL þá er Fa cup alltaf látið mæta afgangi.

  6. Magnús Þór says

    5. janúar, 2013 at 10:49

    Þetta er rétt, Rio var í liðinu sem vann 2004 en var náttúrulega í leikbanni eftir lyfjaprófsmálið.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress