• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Reading á Old Trafford

ellioman skrifaði þann 15. mars, 2013 | 8 ummæli

Við erum komin vel á veg með seinni hluta tímabilsins. Það eru tíu deildarleikir eftir, þrjátíu stig í boði og stjóralausa liðið Reading að koma í heimsókn á Old Trafford. Þetta verður síðasti leikurinn fyrir landsleikjafrí og spilar United ekki næst fyrr en þrítugasta mars, gegn Sunderland á útivelli.

Reading rak stjórann sinn, Brian McDermott, á dögunum og leitar að eftirmanni hans sem þýðir að Eamonn Dolan mun sjá um stjórn liðsins á morgun. Reading deilir neðsta sæti deildarinnar með QPR, bæði lið með tuttugu og þrjú stig og markahlutfallið -21. Reading hafa nú tapað 5 leikjum í röð í öllum keppnum (deildin + FA bikarinn) en síðustu 6 deildarleikir Reading hafa endað með einu jafntefli, einum sigri og svo fjóra tapleiki í röð. Svo til að bæta gráu ofan á svart fyrir Reading, þá hafa síðustu sex útileikir liðsins endað með 5 töpum og einum sigri. En þrátt fyrir slæma frammistöðu í síðustu fimm leikjum þá var Reading búið að vinna 6 af síðustu átta leikjum í öllum keppnum fyrir það. Varla þarf ég að minna ykkur á leik liðanna á Madejski Stadium 1. desember, sem endaði 4-3 fyrir United þar sem öll mörkin voru skoruð á fyrstu 35 mínútunum? Reading eru semsagt sýnd veiði en alls ekki gefin!

United er hins vegar í mun betri málum þrátt fyrir frekar ömurlega tvo leiki í röð, þar sem liðið datt út úr meistaradeildinni og neyðist til að spila aftur gegn Chelsea eftir jafntefli í FA bikarnum. Í deildinni er United búið að vinna fimm leiki í röð og á Old Trafford er liðið búið að sigra í sex í röð. Ef þið eruð eitthvað niðurdregin eftir síðustu viku, hafið þetta í huga:

  • Í síðustu 19 deildarleikjum hefur United unnið 16, gert 2 jafntefli og tapað einu sinni
  • Í síðustu 19 heimaleikjum í deildinni hefur United sigrað 17, gert eitt jafntefli og tapað einum (Helv. Spurs!)

Líkurnar benda því sterklega til þess að United sigri á morgun og virðast verðmálasíðurnar vera á sama máli. Besti stuðulinn sem ég gat fundið á United sigur, var 1.18 og á Reading sigur er settur stuðullinn 20.0.

En burtséð frá allri tölfræði og stuðlum þá vonast ég einfaldlega til að sjá United koma sterkt til baka, spila vel, skora mörk og nýta leikinn til að gleyma vonbrigðum síðustu viku. Liðið þarf á því að halda. Í gegnum árin hefur United oft refsað liðum sem þeir mæta eftir vonbrigði Evrópukeppna. Á síðasta tímabili voru það vesalings Wolves sem urðu tvisvar fyrir barðinu á brjáluðu United liði. Töpuðu 4-1 á Old Trafford eftir að United tapaði gegn Basel í meistaradeildinni og svo var það 0-5 burst þegar United datt út úr UEFA Cup eftir tap gegn Athletic Bilbao.

City mætir Everton í hádeginu á Goodison Park þann sama dag sem þýðir að þegar United mætir Reading, fáum við að vita hvort Manchester City hafi minnkað muninn niður í níu stig eða hvort United fær tækifæri til að auka muninn. Mín spá er sú að United komi ferskt til leiks og að við fáum að sjá markatölu í svipuðum gír og gegn Norwich. Ég segi því 4-0 fyrir United.

Meiðsli/Veikindi/Leikbönn:

Það var lítið fréttnæmt sem kom fram á blaðamannafundinum í dag en það merkilegasta var að Phil Jones og Nani munu báðir missa af leiknum á morgun. Ferguson sagði að Phil Jones muni byrja að æfa með liðinu í næstu viku og sem þýðir vonandi að hann verði tilbúinn fyrir næsta leik. Meiðslin á Nani eru sem betur fer ekki eins slæm, eins og fyrst var talið, og er talið að hann verði orðinn leikfær eftir leikinn gegn Sunderland.

United

  • Phil Jones => Meiðsli (ökkli)
  • Nani => Meiðsli (Aftanlæris tognun)
  • Paul Scholes => Meiðsli (hné)
  • Darren Fletcher => Veikindi (sáraristilbólga)

Reading

  • Pavel Pogrebnyak => Leikbann
  • Jason Roberts => Meiðsli (mjöðm)
  • Adam Federici => Meiðsli (ökkli)
  • Jimmy Kebe => Meiðsli(nári)
Lykilmaður Reading


United stuðningsmaðurinn Adam Le Fondre er sá sem ég tel vera hættulegasta leikmann Reading á morgun. Drengurinn er búinn að spila 27 leiki, kominn með tíu mörk úr 47 skotum og eina stoðsendingu. Þar á meðal tvö mörk gegn Chelsea í lok janúar (seinna markið er sérlega glæsilegt). Le Fondre var valinn besti leikmaður janúarmánaðar í deildinni og þegar United mætti Reading í FA bikarnum fyrir stuttu, nefndi Ferguson hann sérstaklega.

Líklegt byrjunarlið

De Gea

Rafael Smalling Ferdinand Evra

Carrick Anderson

Welbeck Rooney Young

Van Persie

Helstu keppinautar…
  • Lau 16.03 – Manchester City mætir Everton á Goodison Park
  • Sun 17.03 – Tottenham mætir Fulham á White Hart Lane
  • Sun 17.03 – Chelsea mætir West Ham á Stamford Bridge
  • Lau 16.03 – Arsenal mætir Swansea á Liberty Stadium
Skemmtilegar staðreyndir
  • Samkvæmt whoscored.com, þá er United með næstbesta sendingarhlutfall allra liða í deildinni, 85.7%. Í efsta sæti sitja Arsenal með 86.2%. Reading eru lægstir á þessum lista með 69% sendingarhlutfall.
  • Af öllum liðum í deildinni þá er Reading minnst með boltann, eða 39.7%. United er í fjórða sæti með 56.5%.
  • United hefur skorað 19 mörk úr föstum leikatriðum sem er sex fleiri en næstu lið, Norwich/Stoke
  • Á þessu ári hefur Reading náð að skora í ellefu af tólf leikjum sínum.
Í öðrum fréttum

ROM tók skemmtilegt viðtal við Reading stuðningsmann.

De Gea var í fyrsta skipti valinn í spænska landsliðið sem mætir Finnum og Frökkum.

Roy Hodgson valdi Rio aftur í landsliðshóp Englands, sem mætir San Marinó og Serbíu í undankeppni HM, eftir að hafa verið hent út vegna „Footballing reasons“ á sínum tíma. Ferguson sagði á fréttamannafundinum að valið hefði komið honum mjög á óvart og að hann sé ekki viss um að það væri best fyrir Ferdinand.

Að lokum

Verið dugleg að koma með athugasemdir hér og á Twitter. Muna að nota #Djöflarnir á Twitter og elta Rauðu Djöflana. Þessar leikskýrslur skrifa sig ekki sjálfar og þykir mér bæði gaman og gagnlegt að sjá hvað ykkur þykir eftirtektarvert á meðan leiknum stendur.

Efnisorð: Reading Upphitun 8

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Sveinbjorn says

    15. mars, 2013 at 17:22

    Ætla ad yta undir ykkur og vona ad thid gerid oftar svona massivar upphitunanir og skyrslur med thvi ad hrosa ykkur fyrir thetta. Er ykkur ævinlega thakklatur fyrir thessa sidu.

    Hros.

    0
  2. 2

    Einar j says

    15. mars, 2013 at 18:13

    Sammála síðasta ræðumanni, bíð alltaf spenntur eftir upphitununum fyrir leiki og hef ekki ennþá orðið fyrir vonbrigðum :)

    0
  3. 3

    Elvar Már says

    15. mars, 2013 at 18:26

    Glæsileg upphitun,einsog áður á þessari frábæru síðu. Sammála líklegu byrjunarliði,og treysti á skyldusigur á morgun. 5-0! Glory Glory!

    0
  4. 4

    Tony says

    15. mars, 2013 at 18:37

    snilldar upphitun hja þér! vonandi að við sjáum liðið flengja reading væri ekki leiðinlegt að sjá van persie setjann og stoppa þessa eyðimörk

    Verðum að fá young inn í þetta á lokakaflanum

    0
  5. 5

    Egill Guðjohnsen says

    15. mars, 2013 at 19:41

    Er nokkuð viss um að Rafael og Evra hvíla á mrg. Væri til í að sjá Kagawa í holunni og Rooney fremstan. RVP þarf sko hvíld!

    0
  6. 6

    DMS says

    16. mars, 2013 at 10:27

    Er þetta ekki flottur leikur fyrir RvP til að finna markaskóna aftur? Ég trúi ekki öðru en að Ferguson sé búinn að gíra alla sína leikmenn fyrir þennan leik, fara inn í landsleikjahléið með öflugan sigur að baki eftir vonbrigðaviku.

    0
  7. 7

    Björn Friðgeir says

    16. mars, 2013 at 14:38

    Everton!

    Nú verður sko ekkert hvílt á móti Reading. Tvær vikur í næsta leik, skítt með þessa landsleiki. Vinna og vinna sannfærandi!

    0
  8. 8

    Pétur says

    16. mars, 2013 at 14:39

    Djöfull elska ég Moyes!

    0

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Magnús Þór um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Arni um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Bjarni um Önnur ferð til Sevilla!
  • Egill um Real Betis 0:1 Manchester United
  • Helgi P um United 0 – 0 Southampton

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2023 · Keyrt á WordPress