• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Æfingaleikir

Manchester United 2:1 Valencia

Björn Friðgeir skrifaði þann 13. ágúst, 2014 | 9 ummæli

Frá fréttaritara okkar á Old Trafford
#453533808 / gettyimages.com

Old Trafford var nokkuð þéttsetinn í gærkvöld þegar United tók á móti Valencia í fyrsta leik Louis van Gaal á Old Trafford sem stjóri United og síðasta æfingaleik áður en alvaran byrjar á laugardagsmorgun. Efsta hæð Sir Alex Ferguson stúkunnar sem og efri hæðir hornstúkanna voru þó lokaðar.

Liðið sem hóf leikinn var svona:

de Gea

Smalling Jones Blackett

Young Fletcher Herrera James

Mata

Chicharito Rooney

Það var strax ljóst að um æfingaleik var að ræða, stemmingin á vellinum nær engin og Valencia var mjög sátt við að sitja til baka og látt United sækja. Það var fréttaritaranum nokkuð í hag, þar sem ég sat í austurstúkunni, gamla Warwick Road End, fyrir aftan markið sem United sótti á. Það var eitt af fáu áhugaverðu við fyrri hálfleikinn að sjá þannig vel beitingu 3-4-1-2 uppstillingarinnar. Það verður að segjast að hún var verulega sljó, bæði hvað hvað hraða og bit varðar. Það vantaði verulega uppá að miðjumennirnir 3 væru að skila færum uppá sóknarmenn, hættulegustu færin komu þegar stungið var upp á kantmenn. Nokkrar þolanlegar fyrirgjafir skiluðu sér þannig, sem voru skárri en fyrirgjafatilraunirnar í fyrra þar sem kantmennirnir, (les: Young) voru komnir að endamörkum og því hættulegri. Ekkert kom þó úr þessu nema að í eitt skiptið fékk Rooney Valencia mann í sig og dæmt var víti. Ofan úr stúku virtist þetta augljóst en var víst ekki. Rooney tók sem oft áður lélegt víti og smellti honum í stöng að þessu sinni.

Sama lið hóf seinni hálfleik, og Valencia menn voru aðeins beittari.

Fyrri skiptingapakki United var Michael Keane, Cleverley, Kagawa og Lingard og eftir það hresstust Valencia nokkuð. Mistök Jones gáfu færi sem ekkert varð úr en misheppnuð sending Cleverley gaf færi og jöfnunarmark.

Síðan komu Fellaini og Januzaj inná og þá var loksins kominn miðjumaður sem spilaði vel. Það var fagnað í hvert sinn sem Fellaini kom við boltann og þaðan sem ég sat gat ég ekki betur skilið en þetta væru háðsfögn en ekki til að yfirgnæfa baul, sem þó heyrðist aðeins. En þetta sýndi bara vel að í hvert skipti sem Fellaini snerti boltann þá skilaði hann honum vel frá sér, hvort sem var stutt eða langt. Það var því alveg fullkomlega sanngjarnt að hann fengi laun þessa þegar varnarmistök Valencia í einnarmínútu uppbótartíma skildu hann eftir á auðum sjó og auðvelt sigurmark var raunin.

Það er erfitt að sjá fyrir sér annað en nokkuð streð framundan ef þetta á að vera liðið sem á að spila í vetur. Varnarlínan er kannske þokkaleg, en ekki meira, og má ekki við neinum meiðslum, en Jonny Evans er einmitt meiddur nú og líklega ekki með á laugardaginn. Tyler Blackett er reyndar prýðisleikmaður, líklega besti leikmaður United í leiknum og á svo sannarlega að vera í hóp í vetur. Hann var góður til varna, öruggur á boltanum og gat hvort sem er dreift spilinu vel eða sótt fram. Sama var ekki hægt að segja um Reece Jones. Hann var í vinstri kantverðinum fyrir meiddan Luke Shaw og olli því ekki. Þokkalegur til varna, en reyndi of lítið framávið. Gat stundum elt stungur en of lítið kom út úr því. Jesse Lingard kom síðan í stöðuna og er einfaldlega ekki kantvörður frekar en Robin van Persie, á ekkert í varnarhlutverkið.  Leiðinlegt að sjá menn spilaða í stöðum sem þeir valda ekki, þegar vitað er að um flotta leikmenn er að ræða.

Enginn þeirra Herrera, Fletcher eða Cleverley var nógu skapandi á miðjunni sem var það sem olli bitleysinu. Fellaini reyndi mun meira og gerði það betur.

Frammi voru Chicharito og Rooney slakir og sérstaklega var þetta mjög lélegur leikur hjá Rooney. Adnan spilaði í senternum fyrir Hernandez og sást lítið.

Niðurstaðan er einföld. Okkur vantar haffsent, vinstri kantvörð, vara-hægrikantvörð, miðjumann og helst kantmann. Miðað við slúður gærdagsins eiga þeir Marcus Rojo vinstrii miðvörður, vinstri kantvörður), Danny Blind (vinstri kantvörður, vinstri miðvörður og afturliggjandi miðja) og Angel Di María (kant- og miðjumaður) að leysa allar þessar stöður.

Rojo er kominn í bann hjá Porto fyrir að reyna að þvinga fram skipti og hlýtur þvi að vera eitthvað til í því, Hann er víst flottur varnarmaður en á það til að missa sig í brotum eða gleyma sér í leiknum og spila út úr stöðu og gleyma að dekka. Spurning hvor Van Gaal geti slípað það af honum.

Do absolutely see the sense in Man Utd moving for Marcos Rojo: athletic, good size, mobile, intelligent, left footed, ideal for a back 3

— Tor-Kristian Karlsen (@karlsentk) August 12, 2014


Di María spilaði ekki bara kant hjá Real í fyrra heldur líka inni á miðjunni. Hann er klárlega frábær leikmaður og myndi henta mjög vel í 4-3-3 þegar Van Gaal treystir liðinu til þess.

Eftir leikinn var svo tilkynnt að Wayne Rooney er nýr fyrirliði Manchester United og Darren Fletcher er varafyrirliði. Frábært fyrir Fletcher sem er sannur leiðtogi og á eftir að vera ómissandi fyrir hópinn. Um Rooney eru skiptari skoðanir og ég dreg enga dul á það að ég er einn af þeim sem hefðu heldur kosið að sjá Robin van Persie. En núna er bara að sjá hvernig Rooney stendur undir þessu. Hann þarf a.m.k. að spila mun betur en í gær til að halda sæti sínu í liðinu.

Efnisorð: Darren Fletcher Leikskýrslur Marouane Fellaini Valencia CF 9

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Halldór Marteinsson says

    13. ágúst, 2014 at 08:16

    Missti fréttaritari af fyrsta markinu?

    0
  2. 2

    Þorvaldur says

    13. ágúst, 2014 at 08:31

    Hvað markið hans Fletchers varðar, þó að það hafi ekki verið merkilegt þá skal ég alveg samþykkja nokkur svona mörk, „a-la lampard“ í vetur.

    Rojo er örvfættur og yrði (ef að verður) að öllum líkindum keyptur í vinstri kantvörð og vinstri hafsent. Hann spilar (spilaði?) með Sporting. Veit ekki hvort að Van Gaal vill þá báða eða bara annan þeirra, skil persónulega ekki af hverju hann ætti að kaupa báða, nema til að nota Blind á miðjunni og hafa möguleikann á að nota hann í vörn og á kanti.

    0
  3. 3

    Grímur Már says

    13. ágúst, 2014 at 11:10

    Veit einhver um link á mörkin?

    0
  4. 4

    werk says

    13. ágúst, 2014 at 11:35

    Youtube@ Grímur Már:

    0
  5. 5

    Björn Friðgeir says

    13. ágúst, 2014 at 11:58

    Fréttaritari hreinlega gleymdi marki Fletchers. Það er svona að skrifa þetta eftir minni daginn eftir. En helv. var gaman að sjá drenginn skora!

    0
  6. 6

    Ingólfur says

    13. ágúst, 2014 at 12:24

    @ Björn Friðgeir:
    Frá mér séð hefur fréttaritari misst af fleiru en þessu marki. Óþarflega svartsýnn og allt önnur sýn en ég fékk,bæði hvað frammistöðu nokkurra leikmanna varðar sem og leikinn sjálfan í gær.

    0
  7. 7

    Björn Friðgeir says

    13. ágúst, 2014 at 13:18

    Ef allir væru alltaf sammála og hefðu rétt fyrir sér þyrftm við ekki kommentakerfi!
    Hvað fannst þér um leikinn, Ingólfur?

    0
  8. 8

    Jóhann Már says

    13. ágúst, 2014 at 17:13

    Hversu hratt vex eiginlega hárið á þessum manni?

    http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=170465

    http://www1.skysports.com/football/live/match/324512/report

    0
  9. 9

    Björn Friðgeir says

    13. ágúst, 2014 at 17:15

    Þetta var bara fléttun þarna í sumar, sést á bestu myndunum af því

    0

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Magnús Þór um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Arni um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Bjarni um Önnur ferð til Sevilla!
  • Egill um Real Betis 0:1 Manchester United
  • Helgi P um United 0 – 0 Southampton

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2023 · Keyrt á WordPress