Eftir eitthvað stysta hlé eftir HM síðan 1966 leikur United sinn fyrsta leik á föstudaginn! Upphitun fyrir hann kemur á morgun og poddið verður á sínum stað síðla annað kvöld
Eins og fyrri ár spáðu ritstjórar fyrir um lokaniðurstöðu og allir spáðu City titlinum. Fjórir eru bjartsýnir og spá United öðru sæti, hinir þrír settu liðið í það þriðja
Aron Einar og félagar fá engan séns og munu falla með bravúr.
Friðrik Már
Þá hefst hið alræmda þriðja tímabil José Mourinho sem knattspyrnustjóri Manchester United og hafa tilburðir hans á liðnu undirbúningstímabili orðið til þess að margir spá því að hann verði fyrsti stjórinn í deildinni til að fjúka. Á fyrsta tímabilinu hans tókst honum vinna Evrópudeildina auk þess sem hann gerði liðið að bikarmeisturum en á síðasta tímabili hins vegar náði liðið öðru sæti í deild en skilaði engri dollu í skápinn.
Það má því búast við því að pressan sé orðin talsvert þyngri á Mourinho og háværar raddir meðal stuðningsmanna vilja stjóraskipti. Ekki hefur United tekist að stoppa í öll þau göt sem sáust í liðinu á síðustu leiktíð sem varð til þess að liðið átti í raun aldrei möguleika á deildartitlinum. Okkur vantar miðvörð með leiðtogahæfileika auk þess sem ég myndi ekkert slá hendinni á móti flottum hægri kantmanni en enn eru örfáir dagar til stefnu fram að gluggalokum. Það myndi virkilega hjálpa okkur að ná lengra í öllum keppnum en á síðasta tímabili.
Samvinna Juan Mata og Alexis Sanchez á undirbúningstímabilinu, ásamt frammistöðu Jesse Lingard á HM, gefur mér samt von um að kannski sé hægri kantstaðan sé hugsanlega í betri málum en margir halda. Ég geri fastlega ráð fyrir því að Pogba-Matić-Fred verði kjarninn sem Mourinho muni byggja liðið upp í kringum, þá iðulega í 4-3-3 meðan Sanchez + Lukaku + Rashford/Martial/Lingard frammi. Það verður líka áhugavert að sjá hver fær tækifærið til að spila í holunni fyrir aftan fremsta mann ef Mourinho ákveður að setja upp í 4-2-3-1 kerfi en möguleikarnir eru greinilega fyrir hendi.
Það ætti að vera auðveldara að manna miðjuna núna en á síðasta tímabili, þar sem Fellaini samdi aftur við félagið, Fred kom inn í sumar og Andreas Pereira virðist vera orðinn tilbúinn fyrir stóra sviðið. Það ætti að minnka álagið, sérstaklega á Matić sem virtist vera á bensíngufunum síðustu metrana á síðasta tímabili. Undirbúningstímabilið var engin flugeldasýning en Pereira var þó klárlega ljósi punkturinn þar og það kæmi mér á óvart ef hann yrði sendur á lán aftur. Eins voru Timothy Fosu-Mensah og Axel Tuanzebe (sem er farinn á lán) flottir og sá fyrrnefndi ætti nú að fá tækifæri sérstaklega í ljósi þess að Valencia er meiddur og Diogo Dalot er meiddur og eflaust ekki tilbúinn fyrir djúpu laugina strax. Ég hef samt grun um að Mourinho muni gefa honum mínútur á þessu tímabili og verður áhugavert að sjá hvernig það mun takast.
Þegar kemur að spá fyrir Úrvalsdeildina geri ég ráð fyrir að titilbaráttan verði á milli Liverpool, Manchester City og United á meðan Tottenham, Chelsea og Arsenal komi í næsta pakka á eftir.
Klopp virðist vera búinn að henda kaupstefnu sinni út um gluggann og hefur farið hamförum á markaðinum og fengið til liðs við sig sterka leikmenn og það verður áhugavert að sjá hvernig þessir leikmenn blandast inn í hópinn.Ég tel að önnur lið í deildinni komi ekki til með að sýna Man City þá virðingu sem þau gerðu á síðasta tímabili og City mun tapa mun fleiri stigum á þessu tímabili en eru engu að síður líklegasta liðið til að taka titilinn.
Tottenham verður klárlega með þreyttasta liðið framan af tímabilinu og framherja sem kann ekki að skora í ágúst en þegar á líður munu þeir hrökkva í gang og á endanum tryggja sér meistaradeildarsæti. Chelsea verður í tómu basli framan af þar sem varnarlínan verður í vandræðum með leikkerfið hans Sarri en það gætu orðið fjörugir markaleikir. Arsenal er stærsta spurningamerkið í þessum pakka. Wenger er farinn og Emery tekinn við. Liðið hefur gríðarlega fjölbreytta og hæfileikaríka leikmenn en spurningin verður alltaf hvernig Emery tekst að láta þá vinna saman og svo sárvantar þá leiðtoga á miðjuna og það mun kosta þá á þessu tímabili.
Magnús Þór
Sumarglugginn hjá Manchester United var langt undir væntingum. Keypt var í stöður sem þurfti að styrkja hjá liðinu en það þurfti einfaldlega meira til. Fred er spennandi leikmaður en er svo spurningamerki. Lee Grant kemur inn sem þriðji markvörður og er fínn sem slíkur. Diogo Dalot er leikmaður fyrir framtíðina og ekkert víst að hann komist í liðið á þessu tímabili. Liðið vantar enn vinstri bakvörð nema að Luke Shaw geri eitthvað af viti. Mér finnst einnig vera þörf á leikmanni á hægri kantinn sem getur gefið fyrir og veitt Lukaku almennilega þjónustu. Þegar þetta er skrifað þá er ekki búið að ganga frá kaupum á miðverði en það er sennilega mikilvægasta staðan sem þarf að fylla.
Daley Blind var seldur aftur til Ajax og var maður eiginlega búinn að gleyma því að hann væri enn hjá liðinu. Aðrir leikmenn sem mega fara mín vegna eru: Matteo Darmian, Phil Jones, Marcos Rojo og Anthony Martial ef hann ætlar að vera fýlupúki.
Fyrir utan Chelsea og Tottenham hafa liðin í kringum okkur verið duglega að styrkja sig. Sérstaklega Liverpool og Arsenal. Bæði liðin hafa verið styrkja þær stöður sem mest þörf var á og gerðu það tímanlega.
Þó svo að ekki hafi verið gerð mörg kaup þá eru samt nokkrir leikmenn sem gætu mögulega fengið tækifærið í vetur. Andreas Pereira hefur litið vel út í æfingaleikjunum og fékk margar mínútur. Svo væri líka gaman að sjá Tabith Chong og Angel Gomes fá nokkur tækifæri í vetur. Síðan er alltaf möguleiki á að þetta verði tímabilið hans Victors Lindelöf.
Stærsta spurningin fyrir þetta tímabil er José Mourinho. Mun hann sprengja allt upp og taka hinn klassíska þriðjatímabils José eða ekki? Vonin er alltaf sú að ef vörnin verði styrkt og verði ekki jafn viðkvæm muni það skila sér í jákvæðari leikstíl en ég er ekki endilega alltof viss um það. En ef liðið vinnur leikina og haldi eins áfram gegn topp sex liðunum þá munu gagnrýnisraddirnar þagna.
Væntingarnar fyrir tímabilið er að komast amk í undanúrslit í Meistaradeild og vinna FA bikarinn. Deildin gæti orðið ströggl og ég held að liðið endi í Meistaradeildarsæti og ekki mikið meira en það.
Björn Friðgeir
Þetta sumar hefur verið eitthvað það erfiðasta og lengsta í stuðningsmanna United minnum. HM var vissulega góð afþreying, en frá því að Fred kaupin voru frágengin höfum við beðið í ofvæni eftir frekari styrkingu. Allar vonir um nýja bakverði eru löngu á bak og burt en eftir stóð að miðvörður og helst hægri kantur voru enn á dagskrá. En það virðist sem viðskiptavit og kænska séu fjarri og taktík og stefna í uppbyggingu hópsins líka. Allir þeir leikmenn sem nefndir hafa veirð sem möguleg skotmörk virðast of dýrir eða ófáanlegir og þegar þetta er skrifað, rúmum fjörutíu tímum áður en glugginn lokar er ekkert sem bendir til þess að eitthvað smelli, þó auðvitað sé ekkert útilokað, bara dýrt.
Undirbúningsferðin til Bandaríkjanna var erfið, í hópinn vantaði gríðarmarga og þó gaman væri að sjá unga leikmenn fá tækifæri vitum við að þeir verða ekki mjög nálægt aðalliðinu í vetur. Ofan á þetta bættust vandræðin með Anthony Martial sem þó bendir flest til að verði enn hjá United þegar lokar fyrir sölur til Evrópu í lok mánaðarins.
En þrátt fyrir allt þetta er ekki öll nótt úti enn. Fred mun koma sterkur inn á miðjuna og ekki síður Andreas Pereira sem stóð sig gríðarvel í Bandaríkjunum og hlýtur að hafa unnið sér inn fyrir að byrja leikinn gegn Leicester á föstudaginn. Síðan verður Marouane Fellaini í sínu hlutverki sem Plan B, eftir að hafa misst af nær öllu síðasta tímabili. Ef við orfum síðan til þess að að Ander Herrera kom sterkur inn á lokasprettinum í vor þá er þó alla vega hægt að vonast eftir að miðjan verði mun sterkari í vetur en hún var í fyrra og fleiri möguleikar bjóðist til að hvíla Nemanja Matić.
Vörn United fékk á sig næst fæst mörkin síðasta tímabil sem var jú að mestu David De Gea að þakka, og við vonumst bara eftir því sama. Svo má líka vænta þess að Victor Lindelöf fylgi góðri frammistöðu á HM og þokkalegum æfingaleikjum og geti spilað stærra hlutverk.
Síðast en ekki síst erum við með einn besta framherja deildarinnar í Romelu Lukaku, heimsmeistara í Paul Pogba og maðurinn sem var talað um að væri í raun hugsaður sem sumarakaup, Alexis Sánchez fékk gott sumarfrí og kom hörkusterkur inn í æfingjaleikjunum.
Það er eins og slæm frammistaða af og til síðasta vetur hafi alveg breitt yfir það að United var í öðru sæti í vor. Að vísu varð United langt á eftir langbesta liðinu, sem litlar vonir eru til að hafi veikst og því er ekki með neinu móti hægt að búast við sterkri atlögu að titlinum, en vissulega geri ég kröfu til að frammistaðan verði betri í vetur. Helstu keppinautarnir hljóta síðan að vera Liverpool, sem hafa styrkt sig duglega. Tottenham hafa enn ekki bætt við hópinn, og Chelsea og Arsenal eru spurningamerki með nýja þjálfara og breytingar á mannskap.
Það kæmi mér ekkert á óvart þó að City yrði aftur meistari, en það verður að vona að minni liðin beri minni virðingu fyrir þeim og reyni að finna leiðir til að brjóta þá niður. Næstu liðin fimm verða síðan þar á eftir og gætu hvert um sig lent í öðru sæti, ef allt fellur rétt fyrir þeim.
Við vitum að United er ekki að fara að spila glimrandi sóknarbolta, það bíður næsta framkvæmdastjóra, en fyrir mér verður næsta tímabli þokkalegt ef liðið spilar betur en í fyrra, verður minna brothætt og ég vil sjá liðið fara í undanúrslit í Meistaradeildinni. Ég er hættur að spá því hvað verði til að José Mourinho verði rekinn, líklega verður þó fimmta sætið til þess. Eigendurnir setja jú allt og eina kappið á að verða í Meistaradeildarsæti.
Kristófer
Það er spenna í loftinu í kringum Manchester United nú þegar enska knattspyrnutímabilið fer að hefjast á nýjan leik. Það er þó ekki endilega þessi eftirvænting og gleði yfir því að sjá loks nýja leikmenn eltast við nýja drauma heldur óróleiki og taugaspenna eftir fyrirgangsmikið sumar. Hinn síkáti José Mourinho hefur verið samur við sig og kvartað yfir öllu, hvort sem það er skortur á leikmannakaupum eða ferðalögin um Bandaríkin og hefur viðmót hans aðeins dregið tennurnar úr eftirvætingu áhugamanna um nýjan vetur á Old Trafford.
Ég nenni ekkert að skrifa um það, enda hafa alveg nógu margir tíundað allar áhyggjur Mourinho í bak og fyrir og ef ég á að vera fullkomlega hreinskilinn, þá er mér andskotans saman um þessa blessuðu, árlegu markaðsferð til Bandaríkjanna. Einbeitum okkur að því sem máli skiptir; góð byrjun á föstudaginn. Glugganum verður lokað áður en flautað verður til leiks gegn Leicester og vonandi verður búið að kaupa einn fyrir þann tíma en hvernig sem fer þá verður knattspyrnan vonandi í fyrirsögnunum í sumar. Það þýðir auðvitað að Mourinho þarf að vera til friðs og er þar eflaust til of mikils ætlast en rétt úrslit framan af hausti gætu komið honum í betra skap.
Nágrannarnir í ljósbláu hafa verið hófsamari en oft áður í glugganum en sýndu svo í leiknum um Samfélagssskjöldinn að þeir hafa engu gleymt frá því í fyrra, virðast hungraðir í meiri árangur. Liverpool er að versla af hörku og einfaldlega ekki hægt að afskrifa þá sem alvöru keppinauta um toppsætið, takist nýju mönnunum að koma sterkt inn. Arsenal er nokkuð óskrifað blað með nýjan mann í brúnni og þá hafa Tottenham og Chelsea lítið gert enn sem komið er.
Okkar menn lifa ekkert á fornri frægð í vetur. Vörnin þarf að vera betri. Fólk bendir gjarnan á þessi 28 mörk sem United fékk á sig á síðasta tímabili sem einhvers konar merki um það að varnarleikurinn hafi verið traustur en var það svo? David de Gea lék oftar en ekki á als oddi til að bjarga hinum og þessum stigum. Og þó ég sé allur fyrir varnarmenn af gamla skólanum þá vantar einfaldlega betri knattspyrnumenn í öftustu línu, þar sem spilið byrjar svo oft í nútíma fótbolta. Hinu megin á vellinum er vonin og jafnvel krafan að Marcus Rashford taki næsta skref, kominn með tíuna á bakið. Nú þarf hann að hætta vera strákur og vera alvöru spilari. Ég bíð líka enn eftir að Andreas Pereira verði jafn góður og fólk á samfélagsmiðlum segir að hann sé, en honum til varnar hefur hann kannski ekki fengið tækifærin. Vonandi breytist það í vetur.
Það virðist enginn almennilega skilja hvað er í gangi hjá félaginu um þessar mundir og ég skil það varla betur. Krafan hlýtur samt sem áður að vera einföld, við verðum að bæta árangurinn frá síðasta tímabili. Það má færa rök fyrir því að liðið sem slíkt og frammistöðurnar yfir veturinn voru betri í fyrra en þær voru á fyrsta ári Portúgalans geðþekka. Nú verður liðið að taka annað skref, helst þrjú, í þá átt.
Halldór
Þegar síðasta tímabil kláraðist var frekar augljóst að Manchester United þyrfti að styrkja sig í ákveðnum stöðum. Þrátt fyrir yfirburði í samkeppninni um 2. sætið var alltof langt í efsta liðið og þar af leiðandi hefði maður haldið að það væri skýrt plan um hvaða leikmenn ætti að reyna við til að styrkja þessar stöður sem þurfti að styrkja. Þegar þetta er skrifað hefur þó of lítið orðið úr því. Vissulega kom Fred inn og sem betur fer samþykkti Fellaini að framlengja við liðið, svona í ljósi þess hversu illa gengur að fá inn nýja leikmenn. En heilt yfir er þetta ekki nógu gott.
Það er sérstaklega pirrandi að þurfa að bera sig saman við Liverpool þegar kemur að þessum málum. Liverpool er með skýra stefnu í gangi, þar er farið af krafti á eftir akkúrat þeim leikmönnum sem þarf til að styrkja stöður sem þarf að styrkja og þar eru keyptir inn leikmenn sem passa inn í leikstíl liðsins. Auðvitað kostar það pening, en það er bara akkúrat það sem lið þurfa að gera sem vilja vinna keppnir. United hefur alveg eytt pening, það hefur bara ekki gert það á réttan hátt síðustu ár og ekki nógu mikið í sumar.
Þó má hugga sig að einhverju leyti við það að liðið er þó mjög vel mannað í sumum stöðum og menn sem gætu stigið verulega upp miðað við það sem við vitum að þeir geta. Ýmis nöfn sem hægt væri að tiltaka þar en ég hef sérstaklega mikla trú á að Alexis Sánchez stígi upp og verði allt í öllu í sóknarleik Manchester United. Það eiga eftir að koma mörg mörk í kringum hann í vetur. Það verður áhugavert að fylgjast með hvað hin toppliðin gera á tímabilinu. Sérstaklega þessi tvö með nýju stjórana. Ætli maður verði ekki að viðurkenna það að Pep og Manchester City séu líklegasta liðið til að vinna deildina. Það þarf mismikið að gerast til að hin liðin veiti City samkeppni en það er þó ekkert útilokað í þeim efnum. Það er vissulega erfiðara að verja titil en vinna hann til að byrja með.
Mourinho þarf að ákveðnu leyti að stíga upp og sanna það að hann geti klárað þriðja tímabil hjá fótboltafélagi með sóma og skilað því vel af sér. Ég held hann sé líka æstur í að gera einmitt það og muni takast það. Ég sé ekki fyrir mér að hann muni allt í einu gjörbylta leikstíl sínum svo líklega munu einhverjir kvarta áfram yfir skorti á skemmtanagildi en ég held hann muni finna leið til að ná árangri með þetta lið og að mörkin muni koma. Væntingarnar eru titilbarátta til loka, lágmark 8-liða úrslit í Meistaradeildinni og helst bikar líka, allavega ef deildin vinnst ekki í þetta skiptið.
Tryggvi Páll
Mér finnst svolítið merkilegt að þegar ég renni yfir sambærilegan pistil og þennan fyrir síðasta tímabil sé ég að mér hefur þótt merkilegt hvað Mourinho var afslappaður á undirbúningstímabilinu. Spólum eitt ár fram í tímann frá síðasta undirbúningstímabili og afslappaður er líklega síðasta lýsingarorðið sem maður myndi nota til þess að lýsa stemmaranum hjá stjóranum. Hann hefur bókstaflega haft allt á hornum á sér, hann virkar pirraður, þreyttur og bara almennt í vondu skapi, í það minnsta út á við. Þó ég geti vel ímyndað mér að þetta sé ekki andlitið sem Mourinho sýnir leikmönnum á æfingarsvæðinu er þetta andlitið sem við stuðningsmennirnir fáum að sjá og til lengri tíma er þreytandi að horfa og hlusta á þetta andlit.
Ég geri mér hins vegar fyllilega grein fyrir því að með þessu er Mourinho að senda Woodward og Glazer-fjölskyldunni afskaplega skýr skilaboð: Sjáið hvað City gera, ég þarf sambærilegan stuðning á markaðnum.
Pirringur Mourinho stafar án efa af því að Pep fær pening til þess að kaupa það sem honum sýnist á þeim pening sem þarf til þess að byggja það lið sem hann vill hafa. Pep er búinn að kaupa tvo markmenn, svona 10 bakverði, nokkra kantmenn, slatta af miðvörðum og svona mætti áfram telja. Starfsaldur Pep og Mourinho hjá Manchester-liðinum er álíka mikill. Á þessum tíma hefur Pep keypt 20 leikmenn, Mourinho 9.
Pep hefur fengið að fara í þær breytingar sem Mourinho þarf að fara í og þetta svíður, eflaust inn að beinni hjá Mourinho, og þess vegna er hann sítuðandi til þess að fá Woodward og co til þess að splæsa í það sem þarf.
Ég held að það dyljist engum að United þarf nýja bakverði, einn miðvörð, kantmann og helst einn framherja til þess að byggja ofan á síðasta tímabil og gera einhverja atlögu að titlinum. Við höfum fengið einn óreyndan bakvörð, einn ágætan miðjumann og nú virðist bara vera peningur til þess að kaupa miðvörð, og varla það enda er það reynast afskaplega erfitt.
Mér finnst raunar frekar óskiljanlegt að allt kapp sé lagt á að landa miðverði þó að það sé vissulega ágætt að fá einn nýjan þarna inn á kostnað eins af Smalling/Jones/Rojo. Vörnin, með De Gea fremstan í flokki, er alveg þolanleg og að mínu viti væri miklu nær að fá inn nýja bakverði og/eða einhvern kantmann. United þarf betri leikmenn á breiddina til þess að teygja á spilinu eins og sást svo glögglega á síðasta tímabili. En ég stjórna ekki þessu batteríi og mun vissulega ekki gráta það ef Alderweireld eða sambærilegur miðvörður kemur í hús. Það er hins vegar ekki bara nóg og miðað við kaup annarra liða í sumar og á síðasta tímabili óttast ég að United sitji eftir á tímabilinu.
City eru City og virka ógnarsterkir enda með langsterkasta hópinn í deildinni. Liverpool hafa styrkt byrjunarliðið mjög og þó breiddin sé áfram vandamál hjá þeim hefur þeim að því er virðist tekist að stoppa rækilega í þau göt sem voru til staðar á síðasta tímabili. Arsenal er svo með nýjan stjóra og ágætan hóp og gætu vel blandað sér í eitthvað á tímabilinu. Tottenham er einnig sterkt en Chelsea er pínu óskrifað blað með nýjan stjóra. United þarf eitthvað meira en forna frægð til þess að skjóta þessum liðum ref fyrir rass.
En þrátt fyrir að svartsýnin sé kannski bjartsýninni ögn yfirsterkari í aðdraganda tímabilsins er United þó í alveg þokkalegri stöðu. Við erum að fara að fá sjóðheitan Paul Pogba aftur, Romelu Lukaku varð bara betri og betri eftir því sem leið á síðasta tímabil og Alexis Sanchez hefur verið einn af örfáum skærum ljósum punktum á undirbúningstímabilinu eftir ákveðin vonbrigði frá því að hann mætti á svæðið í janúar.
Þetta er þrenningin sem þarf að stíga upp á tímabilinu og takist það er vel mögulegt að eitthvað sérstakt gerist. Til þess þarf Mourinho þó aðeins að sleppa klónni af leikmönnum okkar og leyfa þeim aðeins að njóta sín inn á vellinum. Eitt sem ég held að geti unnið með United er leikjadagskráin. Fyrir utan Spurs í 3. umferð er dagskráin tiltölulega „þægileg“ þangað til 20. október þegar við heimsækjum Chelsea. Takist okkur að raða saman þremur-fjórum sigrum í röð í upphafi gæti vélin farið af stað.
En eins og lesa má kannski úr þessu er ég ekkert sérlega bjartsýnn fyrir tímabilið. Ég held að liðið nái Meistaradeildarsætinu nokkuð örugglega en ef markmiðið er titilinn þarf liðið meiri pening frá stjórninni og það þarf meira frá stjóranum okkar Mourinho sem hefur ekki staðið sig nógu vel sem stjóri Manchester United.
Jón says
Ég ætla að vona að þessi spá mín gangi ekki eftir :) Held ég hafa aldrei verið eins svartsýnn fyrir tímabil í enska eins og nú, hef haldið með United síðan 197(og eitthvað).
Vonandi náum við meistaradeildarsæti, samt ekki vongóður. Geri mér engar vonir um bikar, eða góðan árangur í Meistaradeildinni.
En ég ætla því miður að spá því að Móri verður búinn að tapa klefanum í nóvember, og stjórnin orðin verulega áhyggjufull út af aukningu á tómum sætum á Old Trafford, flestir hafa annað við peninga og tíma að gera en að horfa á þennan leiðinlega bolta sem boðið er upp á. Móri verður svo rekinn fyrir áramót.