Manchester United spilaði í kvöld lokaleik sinn í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Það var heimaleikur gegn liðinu í 2. sætinu, AZ Alkmaar frá Hollandi. Fyrir leik höfðu bæði lið þegar tryggt þátttöku sína í 32-liða úrslitum en þó var barist um hvort liðið myndi enda á toppi L-riðils og þar með vera í betri stöðu fyrir dráttinn á mánudaginn. Manchester United dugði jafntefli á meðan AZ þurfti að leika til sigurs.
Manchester United stillti upp þessu byrjunarliði í leiknum:
Varamenn: Grant, Jones, Laird, Fred, McTominay, Chong, Rashford.
Gestirnir frá Hollandi stilltu upp þessu byrjunarliði:
Varamenn: Druijf, Vlaar, Kramer, Ouwejan, Boer, Aboukhlal, Reijnders.
Leikurinn sjálfur
Fyrri hálfleikurinn var afskaplega leiðinlegur. Það var nokkuð greinilegt að United nægði jafntefli en AZ þurfti sigur. Hollenska liðið var meira með boltann og reyndi að gera eitthvað. United lá þó ekki aftarlega heldur reyndi að halda hárri varnarlínu en voru mjög passífir með boltann og lítið að skapa. AZ reyndi að finna leiðir í gegnum rangstöðutaktíkina með stungum en það gekk lítið. Helstu færin sem AZ fékk var eftir klaufaskap í vörn United, t.d. eitt skipti þegar fyrirliðinn Ashley Young dólaði sér alltof lengi með boltann og missti hann. Þar var hann þó heppinn því sóknarmenn AZ náðu ekki að skapa sér neitt úr þeirri gjöf.
Bjartasti punktur fyrri hálfleiksins var þegar United vann boltann á eigin vallarhelmingi, eftir rúman hálftíma. Mason Greenwood fékk boltann fyrir framan eigin teig og sýndi yfirvegun í að finna réttu sendinguna í gegnum pressandi andstæðing, frekar en að dúndra bara eitthvert. Sendingin fann Juan Mata sem hafði ekrur af auðu plássi fyrir framan sig. Hann bar boltann upp völlinn og sendi á hægri kantinn þar sem Ashley Young kom brunandi aleinn upp kantinn. Young kom svo með fínustu sendingu fyrir, út í teiginn aftur á Juan Mata. Mata náði hins vegar ekki nógu góðu skoti heldur setti boltann beint í varnarmann. Flott sókn en ekki nógu gott slútt.
Markalaust í hálfleik. Hvorugt liðið líklega sátt með spilamennskuna en United þó sáttari við stöðuna. Mögulega var það upplegg hjá Solskjær að fara varlega inn í fyrri hálfleikinn og passa fyrst og fremst upp á að lenda ekki undir. Kannski áttu leikmenn ekki auðvelt með að mótivera sig í þennan fyrri hálfleik.
Hver sem ástæðan var þá var seinni hálfleikurinn allt annar og miklu skemmtilegri.
AZ byrjaði reyndar seinni hálfleikinn betur og fékk fyrsta almennilega færið. Þá náðu þeir stungufyrirgjöf af kantinum sem varnarlína United náði illa að eiga við. Sóknarmaður AZ fékk boltann en náði sem betur fer ekki að gera mikið við hann heldur átti slakt skot beint á Romero.
Þá var loks komið að Manchester United. Á 50. mínútu átti Garner sendingu upp hægri kantinn á Mason Greenwood. Hinn ungi og gríðarlega efnilegi Greenwood lét vaða á bakvörðinn, tók nokkur skæri og bjó sér til pláss fyrir fyrirgjöf. Hann fann Martial í góðu svæði í vítateignum. Frakkinn hafði nóg pláss til að láta vaða en skaut því miður yfir markið. Virkilega vel gert hjá Mason en Martial hefði mátt gera betur.
Aðeins 3 mínútum síðar var komið að fjórum leikmönnum sem hafa fengið að finna fyrir gagnrýnisröddum að undanförnu. Allir höfðu þeir fengið að heyra það fyrir heldur slaka frammistöðu í fyrri hálfleik. Fyrstur var það Andreas Pereira, hann var með boltann við hornfána AZ og með varnarmann í bakinu þegar hann ákvað að taka bara suddalegan snúning og skilja varnarmanninn eftir í reyknum. Þar fann hann Juan litla Mata og skiptist á sendingum við hann á leið að teignum. Juan Mata fann svo serbneska reynsluboltann Nemanja Matic en hélt hlaupinu áfram inn í teiginn. Matic þræddi stungusendingu í gegnum fjölmennan varnarpakka gestanna, beint á Mata. Mata lét boltann fara undir hægri fótinn en tók hann svo með vinstri fætinum inn að markinu og var í góðri stöðu til að láta vaða. Þess í stað gaf hann fyrir. Fyrirgjöfinn virtist ætla að sigla framhjá öllum þegar fyrirliðinn Ashley Young mætti allt í einu, ekki einu sinni á fjærstönginni heldur ennþá lengra fjær en það, hægra megin í teignum. Hann lét vaða með flottu skoti úr nokkuð þröngu færi og sendi boltann upp í þaknetið. Stórglæsilegt mark og ísinn brotinn hjá okkar mönnum.
Aðeins fimm mínútum síðar var United búið að bæta við marki. Fyrsta markið í leiknum hafði verið fyrsta mark United á tímabilinu sem var án aðkomu leikmanns úr unglingastarfi Manchester United. Fyrir það mark var elsti markaskorari United á tímabilinu Jesse Lingard. Í öðru markinu voru það þó James Garner og Mason Greenwood, báðir fæddir 2001, sem bjuggu það mark til. United hafði verið í sókn en misst boltann við vítateig AZ. Hollendingarnir gerðu sig líklega til að bruna í skyndisókn en James Garner braut þá sókn á bak aftur með tæklingu, boltinn barst á Mason sem lét einfaldlega vaða fyrir utan teig. Frábært skot sem söng í netinu. Liðið getur þakkað fyrir VARleysið því tækling Garner var ekki alveg lögleg. En fallegt var markið engu að síður og United komið í 2-0 gegn liði sem hafði haldið hreinu í 8 af síðustu 9 leikjum sínum á undan þessum.
Manchester United var þó hvergi nærri hætt. Solskjær sá að United var komið í vænlega stöðu og ákvað að taka ekki óþarfa sénsa með Anthony Martial. Hann sendi Tahith Chong inn í staðinn fyrir Frakkann. Chong fór þá á hægri kantinn í staðinn fyrir Greenwood. Stuttu síðar var Greenwood kominn á fulla ferð inn í teiginn þegar það var brotið á honum. Réttilega dæmt víti sem Juan Mata skoraði úr af miklu öryggi. 3-0 fyrir United.
Og aðeins þremur mínútum síðar var staðan orðin 4-0. Juan Mata fann Mason Greenwood sem bjó sér til pláss sjálfur til að skjóta og lét vaða. Markvörður AZ kom engum vörnum við, virkilega flott skot. Mason Greenwood er einn efnilegur slúttari.
Eftir þetta var leikurinn búinn. Solskjær gat leyft sér að taka Harry Maguire og Ashley Young af velli fyrir Phil Jones og Ethan Laird. AZ vissi að leikurinn var búinn, náðu þó aðeins að reyna á Romero þegar 10 mínútur voru eftir með fínu skoti sem argentínski markvörðurinn gerði vel í að blaka yfir markið. Mason Greenwood reyndi að búa sér til færi til að klára þrennuna en það hafðist ekki. Flott úrslit þó og United sigrar bæði leikinn og vinnur riðilinn.
Pælingar eftir leik
Frábær úrslit. Frábær seinni hálfleikur. Frábær Mason Greenwood.
Manchester United kláraði þennan L-riðil mjög vel. Liðið hélt hreinu í 5 leikjum af 6. Markaskorunin batnaði eftir því sem leið á og liðið átti frábæran seinni hálfleik í þessum leik.
Mason Greenwood. Getum við rætt þennan dreng meira? Hann er 18 ára gamall síðan í október en hann bara einfaldlega virkar tilbúinn í stærri verkefni en bara með einhverjum varaliðum. Menn eru að keppast við að tala um hann í sömu andrá og Robin van Persie þegar kemur að því að klára færi, hann getur skotið eins og engill með báðum löppum. Hann er áræðinn og leikinn, það er kraftur í honum. Hann er einfaldlega einn af þessum fótboltaleikmönnum sem gera mann spenntan í hvert skipti sem hann fær boltann. Vonandi heldur hann áfram á sömu braut og vonandi fer hann að fá stærra hlutverk í liðinu.
Sergio Romero var að spila sinn 50. leik í kvöld. Hann hélt auðvitað hreinu, það eru varla fréttir. Hann var að halda hreinu í 31. skiptið, hefur auk þess aldrei tapað á Old Trafford á ferlinum. Hann hefur nú haldið hreinu jafn oft og Tim Howard, Bandaríkjamaðurinn þurfti þó 27 fleiri leiki til að ná þessari tölu.
Það verður dregið í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar í hádeginu á mánudaginn. Manchester United fer í efri pottinn í þeim drætti, sem þýðir lægra skrifaðir andstæðingar og að United spilar seinni leikinn á heimavelli. Með United í efri styrkleikaflokki eru:
Ajax (NED)
Arsenal (ENG)
Braga (POR)
Basel (SUI)
Benfica (POR)
Celtic (SCO)
Espanyol (ESP)
Gent (BEL)
Internazionale Milano (ITA)
İstanbul Başakşehir (TUR)
LASK (AUT)
Malmö (SWE)
Manchester United (ENG)
Porto (POR)
Salzburg (AUT)
Sevilla (ESP)
Í neðri styrkleikaflokki eru þessi lið:
APOEL (CYP)
AZ Alkmaar (NED)
Bayer Leverkusen (GER)
CFR Cluj (ROU)
Club Brugge (BEL)
Copenhagen (DEN)
Eintracht Frankfurt (GER)
Getafe (ESP)
Ludogorets (BUL)
Olympiacos (GRE)
Rangers (SCO)
Roma (ITA)
Shakhtar Donetsk (UKR)
Sporting CP (POR)
Wolfsburg (GER)
Wolves (ENG)
Manchester United getur ekki dregist gegn liði frá Englandi eða AZ Alkmaar í 32-liða úrslitum. 32-liða úrslitin verða spiluð 20. og 27. febrúar á næsta ári.
Egill says
Á skalanum Andreas Pereira til Jesse Lingard, hversu lélegur er Tuanzebe?
Bjarni says
Ekkert að frétta, jú bekkjarbræðurnir Mata og Matic eru búnir á því, yfirferð engin. Martial nennir ekki að spila nema besta liðið sé inná, Young er einsog hann er, turninn í vörninni ráðvilltur í engu sambandi við hálf sofandi Romero og Pereira, ja hvað getur maður sagt jákvætt um hann. Ungu strákunum er vorkunn að spila í kvöld. Nær hefði verið að gefa leikinn.
Karl Garðars says
Ég efaðist sko aldrei með þessar líka rakettur inná….
Egill says
aahhh ok, þetta er s.s. það sem gerist þegar maður hættir ekki að spila fótbolta í stöðunni 1-0. Áhugavert, ólíkt því sem við eigum að venjast.
Golli Giss says
Er ekki bara bjart yfir mönnum. Þetta er allt í rétta átt. líklega rétt hjá þulinum, þeir voru bara of langt frá mótherjanum í fyrri hálfleik. Ungir upprennandi menn. Sækja grimt til leiksloka. Verum jákvæðir.
Sindri says
Flottur sigur. Greenwood maður þessa riðils.
.
Ég næ því bara alls ekki, að þegar við spilum á nokkurnveginn varaliðinu, að menn mæti hérna inn á, nokkurnveginn í nafnleysi, og ausi úr reiðiskálunum.
Það þurfti að vinna þennan riðil og jafntefli hefði nægt.
Trúi því ekki að menn séu svona ósáttir með 4-0 sigur, það er allavega skárra en að gefa leikinn.
GGMU
Mikael Tamar says
Nú er allur heimurinn að ræða ungan leikmann að nafni Erling Braut Halaand sem er jú virkilega góður. Það væri ekki gott fyrir þróun Mason Greenwood ef hann kæmi. Greenwood verður ekki síðri fótboltamaður ef hann fær tækifæri og tíma til þess að þróast áfram.
Karl Garðars says
Sindri ef þú skoðar betur þá voru menn að horfa og rita í fyrri hálfleik sem ég held að flestir geti verið sammála um að hafi verið frekar slappur almennt séð.
Ég held líka að öll séum við mjög ánægð með úrslitin og frammistöðuna í lok dags. :)
Það var virkilega gaman að sjá hvað menn voru banhungraðir eftir fyrsta markið og hvernig þeir hápressuðu AZ sem gaf okkur mark 2. Það hefði að vísu mögulega ekki átt að standa tel ég en það var ómögulegt fyrir dómarann að sjá. VAR hefði líklega dæmt það af en svo má líka spyrja sig hvert boltinn var að fara áður en snertingin kom.
Mason Greenwood! Maður lifandi hvað þessi drengur er flottur. Það er ekki eftir neinu að bíða, hann bara vex með hverjum leik og draumaframlínan hjá manni fer að verða erfið spurning.
Margir aðrir áttu fínan leik, þ.m.t OGS og co. en AZ áttu líka mjög slæman leik og létu Perreira líta út eins og Ronaldinho á köflum.
Maður getur ekki verið annað en himinlifandi með síðustu leiki en næstu leikir verða prófsteinn.
Hjöri says
Eigum við ekki að leyfa leikjum að klárast áður en menn fara að ausa úr skálum reiði sinnar. Fyrri hálfleikur var lélegur hjá okkar mönnum, en bættu það heldur betur í þeim seinni (hef oft nefnt það að liðið virðist aldrei ná að spila báða hálfleikina góða, og það var raunin í þessum leik, hver svo sem ástæðan er fyrir þessu) já seinni hálfleikur var frábær hjá þeim að mínu mati, og ekki oft sem liðið hefur skorað 4 mörk. Vonum að verði framhald á þessu, svo menn geti farið að vera jákvæðir, og leifum leikjum að klárast áður en farið er að kommenta um hann. Góðar stundir.
Karl Garðars says
Eigum við samt ekki að leyfa fólki að hafa skoðanir og sleppa því að skammast yfir þeim en rökræða þá frekar mismunandi sjónarmið ef þurfa þykir. Sumir vilja ræða stöðuna og leikina á meðan þeir standa yfir en það þarf ekki að endurspegla skoðun þeirra á leiknum eða einstaka leikmönnum í leikslok. Hjóla í boltann frekar en mennina strákar. :)
silli says
Mikið vona ég að sokkarnir hafi verið þykkir sem þið þurftuð að kyngja @Bjarni og @Egill ;-)
GGMU!
Óskar G Óskarsson says
Týpískt ! Nu fara menn að segja að við þurfum ekki góða leikmenn (haaland) utaf greenwood hefur verið góður gegn partizan,astana og Az.
Ferguson vildi alltaf vera með 4 topp strikera þegar við vorum hvað bestir.
Greenwood a ekkert að vera öruggur með sitt sæti i dag, hann þarf samkeppni eins og aðrir til þess að bæta sig
silli says
@Óskar Þór.
Það er hárrétt hjá þér að Sir Alex vildi hafa 4 strækera, enda byggði kerfið hans nær alltaf upp á því að hafa 2 í byrjunarliðinu hverju sinni, nema helst í útileikjum í evrópukeppni þar sem hann oft valdi að hafa bara 1.
Annað – Ferguson er hættur störfum. Nú eru nýjir tímar.
Ég treysti OGS fullkomlega til að koma liðinu okkar aftur á rétta braut, sem hann er svo sannarlega að gera – þó það taki tíma, þá er allavega plan í gangi.