Ole kom á óvart með að tefla ekki fram Pogba, nýkjörnum leikmanni mánaðarins hjá Manchester United í janúar mánuði. Í stað hans kom Greenwod inn í liðið, annars var þetta sömu leikmenn og byrjuðu gegn Arsenal. Hasenhüttl stilti fram þeim leikmönnum sem eru heilir í hans liði, sem eru ekki margir. Einungis tveir leikmenn af þeim níu sem sátu á bekknum hjá Southampton eru með einhverja reynslu í fullorðins fótbolta. Hins vegar eru nánast allir heilir hjá Southampton sem hafa átt byrjunarliðssæti á tímabilinu. Það voru hins vegar tveir leikmenn í byrjunarliði Southampton að byrja sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni. Gott byrjunarlið með reynslu lítinn bekk. Southampton krækti sér í Minamino á láni frá Liverpool seint í gærkvöldi og því ekki leyfilegur í leiknum í kvöld.
Lið Manchester United
Henderson, Bailly, Telles, Williams, Matic, Pogba, de Beek, James og Martial
Lið Southampton:
Fyrri hálfleikur
79 sekúndur liðnar, RAUTT SPJALD! Nýliðinn Jankewitz stimplaði lærið á McTominay með blý spennta löpp og langt frá því að ná knettinum. Eins mikið rautt spjald og þau verða, enda spjalda glaði Mike Dean sjaldann verið fljótari að rífa fram rauða spjaldið. Allt leikplan Hasenhüttl farið í vaskinn og leikurinn vart byrjaður.
Eftir margar fyrirgjafir og skot sem annað hvort voru laf laus eða enduðu í varnarmönnum og fram hjá, kom einn dúndur flott fyrirgjöf á 18. mínútu. Shaw fékk þá boltann við vítateigs hornið eftir góðann sprett Rashford og kom honum á fjær. Þar kom enginn annar en Wan-Bissaka á fleygi ferð og setti hann boltann auðveldlega inn af stuttu færi. Annað mark Wan-Bissaka á ferlinum og á þessu tímabili.
Það liðu einungis sjö mínútur þangað til að United tvöfaldaði forustu sína. Shaw skeiðaði þá upp kantinn stakk honum inn á Greenwood sem var fljótur að koma honum fyrir. Þar var Rashford fyrir miðjum teig og skoraði með þéttings föstu innan fótar skoti. Vel klárað hjá Rashford eftir lélega ákvarðanatöku upp á síðkastið í færum sínum.
Fyrsta markverða tækifæri Southampton kom eftir tæpan hálftíma leik. Þá fengu þeir aukaspyrnu eftir hornspyrnu rétt utan teigs sem Ward-Prowse nelgdi á markið en De Gea með fína vörslu. Stuttu seinna átti Bruno ágætis skot sem McCarthy varði. Þriðja mark leiksins var sjálfsmark. Hrökk boltinn þá út til hægri á Rashford eftir algjört kúluspil fyrir framan teig dýrlingana. Hann kom með frábæra fyrirgjöf sem hefði ratað á Fred eða Greenwood ef ekki hefði verið fyrir Bednarek sem rak fótinn í boltann og óheppilega fyrir hann stýrði hann honum í eigið net.
Þegar um fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik kom en eitt markið. Shaw fékk þá boltann út á kanti eftir sprett Rashford og kom honum fyrir líkt og fyrr í leiknum. Þar var Cavani einn á auðum sjó fyrir miðju marki og skallaði fyrirgjöfina inn af miklum krafti. Síðasta færi hálfleiksins kom svo eftir aukaspyrnu sem fyrst var dæmd sem víti, en var breytt eftir að VAR leit á atvikið. Bruno reyndi þá að skjóta undir vegginn en leikmenn Southampton hoppuðu ekki nægilega hátt til þess að knötturinn gæti rataði undir þá.
Algjör einstefna í fyrri hálfleik og aðeins spurning hversu stór sigur okkar manna yrði.
Seinni hálfleikur
Martial kom inn á fyrir Cavani í hálfleik og með honum kom Donny van de Beek einnig inn á fyrir Shaw sem var frábær í fyrri hálfleik. Vegna skiptingana færði Fred sig út í vinstri bakvörðinn sem er ný staða fyrir honum. Hasenhüttl gerði engar breytingar á sínu liði þrátt fyrir endalausan eltingarleik fyrstu 45 mínúturnar.
Fimm mínútur inn í seinni hálfleik fékk Martial fínt færi eftir flott þríhyrningaspil með Bruno, Bednarek kom sér hins vegar fyrir skot Frakkans. Stuttu seinna skoraði Southampton eftir að þeir tóku aukaspyrnu hratt. Che Adams skoraði þá úr ansi þröngu færi. Markið var hins vegar tekið af þeim eftir miklar teikningar hjá VAR dómurunum í London. Afar klaufarlegt að fá á sig svona mark, einungis heppni að þetta mark stóð ekki. Daniel James fékk að koma inn á eftir klukkutíma leik fyrir Rashford sem skilaði fínu dagsverki.
Það var ekki fyrr en á 70 mínútu sem næsta mark kom. Martial skoraði þá mark af dýrari gerðini. Bruno vippaði þá boltanum inn á Martial sem steig út Bednarek tók boltann með sér í þrögnt færi sem hann hamraði yfir McCarthy og í þak netið. Það leið þó ekki að löngu þar til að United skoraði annað mark. McTominay fékk þá boltann rúllandi út úr teignum eftir darraðardans þar. Hann hamraði boltann í fyrsta með fram jörðini og í hornið. Einungis mínútu síðar fékk Southampton besta færi sitt í leiknum. Adams fékk þá fyrirgjöf frá Redmond sem hafði komið inn á. Hann skaut á markið sirka frá vítateigspunkti einungis með De Gea fyrir framan sig, en boltinn hátt yfir. Strax í kjölfarið fékk Martial frábæra sendingu frá Fred inn fyrir en vippa hans rétt fram hjá.
Þegar sjö mínútur lifðu leiks dæmdi Mike Dean aftur víti. VAR tók sér tíma í að skoða þetta og endaði með því að senda Mike Dean sjálfan til að skoða atvikið í skjánum. Hann stóð við vítið og í þokkabót gaf Bednarek rautt spjald. Slæmur dagur hjá Bednarek, fá á sig sex mörk, skora sjálfs mark, fá á sig dæmt víti og rautt. Bruno Fernandes skoraði auðveldlega úr vítinu. Aðeins tveim mínútum eftir vítið skoraði Martial sitt annað mark. Wan-Bissaka kom knettinum þá fyrir, Martial tók þá boltann niður með kassanum og skoraði auðveldlega af stuttu færi. Þetta var alls ekki búið. Daniel James skoraði eitt í lokinn í uppbótartíma. Greenwood kom boltanum fyrir þar sem Bruno skallaði boltann fyrir fætur James sem kom boltanum yfir marklínuna. Skömmu seinna lauk leiknum, 9-0 sigur!
Ótrúlegur leikur þar sem ALLT gekk á afturfótunum hjá Southampton og ALLT gekk upp hjá okkar mönnum. Þessi úrslit voru jöfnun á tveim metum, stærsti sigur í sögu úrvalsdeildarinnar og í sögu Manchester United. Þeir sem stóðu upp úr í leiknum voru Shaw, Martial og Bruno af mörgum góðum.
Næsti leikur á laugardagskvöld gegn Everton á Old Trafford.
gummi says
Van de beek á ekki möguleika að vinna sér inn sæti í þessu liði og það virðist ekki skifta neinu máli hversu illa aðrir leikmenn spila og getur einhver útskýrt af hverju Bailly sé aftur kominn í kuldan hjá Solskjær hann var að spila mjög vel þegar hann var að spila
Karl Garðars says
Mikið líkar mér vel við Ingsiesta þarna í vinstri bakverðinum.
Nú verða menn að hamra járnið meðan það er heitt.
Soton eiga eftir að skora, það er nánast öruggt.
Turninn Pallister says
Sammála, væri gaman að fá eina góða slátrun @Karl Garðars.
Fínt að bæta þessa markatölu.
Cantona no 7 says
Ole
Rúnar P says
Að hugsa sér að aðdáendur hafi verði brjálaður fyrir því að fá Cavani og fjölmiðlar að kalla það neyðar kaup/samning (self-face-slapp)
Karl Garðars says
Þetta var nú ekki víti held ég.
Scaltastic says
Shaw me what you got!
Golli Giss says
Jahérna. Maður bara vorkennir Shton.
Scaltastic says
Takk fyrir mig #21
SHS says
#OleOut
Turninn Pallister says
Bara frábært í kvöld, nokkuð viss um að það hefðu verið fleiri mörk ef fullur OT hefði öskrað liðið áfram. Frábær úrslit og við getum verið glaðir í kvöld. GG
Egill says
Þetta var ótrúlegt, ég er eiginlega orðlaus. Frábært að sjá menn halda áfram að sækja allan leikinn, þetta var alveg geggjað. Frábært að Martial hafi náð að skora, VDB fékk mínútur, við héldum hreinu, jöfnuðum PL met, nýtt félags met og Klopp verður brjálaður. Geggjað!
Að þessari dómgæslu sem verður eflaust rædd mikið næstu daga.
Rauða spjaldið í byrjun, klárlega réttur dómur.
Cavani var með fótinn á línunni þegar það var brotið á honum, sama hvort brotið sjálft hafi verið fyrir utan, þá var Cavani kominn á línuna og því á það að vera víti. Auk þess var Greenwood kominn einn á móti markmanni þannig að Dean og co tóku af okkur mark/dauðafæri þarna.
Rangastaða Southampton var réttur dómur, núna er ekki miðað við öxlina, enda misjafnt hvar dómarar töldu öxlina enda og höndin byrja, í dag er miðað við treyjuna og því var þetta réttur dómur. Rangstöðureglurnar eru handónýtar, en skv. þeim var þetta rangstaða.
Vítið í lokin… mér fannst þetta vera dýfa, ég gat ekki séð neina snertingu. Reyndar var þetta „rétt“ að því leitu til að þetta voru ekki „augljós“ mistök dómarans því það þurfti margar endursýningar og ekki enn klárt hvort snerting hafi átt sér stað eða ekki, þ.a.l. ekki „augljós“ mistök. Vandamálið er að þetta er svo dýrt fyrir Southampton, reglurnar segja beint rautt, en feckin hell. Það var ekki/lítil snerting og ég væri brjálaður ef þetta hefði verið hinum megin. Þetta var í raun bara nákvæmlega eins og í leik Wolves vs Rúnars og félaga.
Ég get ekki beðið eftir ABU mönnum í vinnunni á morgun.
Þorsteinn says
Loksins kom fram þetta drápseðli sem verður að vera til staðar, mjög gaman að sjá liðið vera svona gráðugt í að slátra andstæðingnum.
Halldór Marteins says
Frábært að sjá liðið nýta víddina svona vel. Munur líka að hafa svona vel spilandi miðverði. Harry Maguire fær alls ekki nógu mikið kredit fyrir sendingarnar sínar, imo. Munaði miklu að hafa hann í hlutverkinu í leik þar sem hann gat nánast spilað eins og framliggjandi miðjumaður. En hann sýnir þetta í hverjum leik, líka þegar varnarlínan þarf að vera aftar í sóknarleiknum.
Við (stuðningsmenn og liðið líka) þurftum svo sannarlega á svona leik að halda. Nú er bara að taka þessa frammistöðu og byggja á henni í næstu leikjum.
Halldór Marteins says
En varðandi vítadóminn hjá Cavani. Skv. Dale Johnson, sérlegum VAR-sérfræðingi hjá ESPN, skiptir ekki máli hvort fótur Cavani hafi verið á línunni heldur hvar nákvæmlega brotið átti sér stað. Höggið á fót Cavani kemur rétt fyrir utan línuna og því rétt að hætta við vítið, skv. því.
Aðalmistökin í því atviki voru hins vegar að flauta of snemma því Mason Greenwood hefði komist í algjört dauðafæri ef dómarinn hefði beitt hagnaðarreglunni.
Og varðandi Martial-vítið þá fannst mér eins og það væri snerting þar en ég skil vel þá sem segja að það hefði ekki átt að vera víti. Martial var vissulega alltaf að leita að snertingunni og vildi fara niður. Í öllu falli fannst mér alltof brútal að gefa gæjanum rautt fyrir það, jafnvel þótt það sé rétt skv. reglubókinni. Gallinn þar er í lagabókstafnum frekar en hvernig dómarinn túlkaði það.
Mér finnst samt leiðinlegt hvað umræðan um VAR er mikið notuð til að gera lítið úr frábærri spilamennsku Manchester United í þessum leik.
Audunn says
Frábær leikur og frábær úrslit.
Var Ole ekki bara að refsa Pogba fyrir ummæli bróðir hans fyrr um daginn eða hvort þau komu daginn áður, man ekki?
Ef svo er þá styð ég Ole alla leið hvað það varðar.
Það er algjölega óþolandi að umbinn hans og bræður koma hvað eftir annað og segja að hann vilji ekki vera hjá United.. Þetta er búið að vera ongoing í mörg ár og aldrei reynir Paul að þagga þessa menn niður né eyða þessum endalausa orðrómi.
Segðu þessum mönnum að hætta að tjá sig um þína framtíð .. Þetta er ótrúlega súrt dæmi.
Ég er í alvöru farinn að halda að Pogba biðji þessa menn að koma fram með þessi ummæli, ég neita að trúa því að menn sem eru honum svona nálægt geri þetta án þess að hann gefi grænt ljós á það..
Það meikar bara engan sense.
Svo eru tímasetningar á þessu alltaf jafn galnar, afhverju núna þegar liðinu hefur bara gengið nokkuð vel? Og afhverju fyrir PSG leikinn þegar liðið var í virkilega góðum málum í sínum riðli í mestarardeildinni?
Maður bara spyr sig.. Það er eins og það sé einhver einbeittur skemmdar vilji á liðinu.. Spurning hvaðan hann kemur?