Kosning á besta leikmanni United í mars er lokið og hafa lesendur síðunnar kosið Michael Carrick með 41% atkvæða en David De Gea varð í öðru sæti með 38%. Þessir tveir leikmenn höfðu mikla yfirburði því næstur á eftir þeim kom Nemanja Vidic með 8% atkvæða.
Carrick hefur ásamt Evra spilað mest allra leikmanna United í vetur eða 36 leiki. Það er engin tilviljun því það hefur sýnt sig í vetur, og kannski sérstaklega núna á endasprettinum, að þegar Carrick er ekki með þá er liðið svolítið brothætt aftast á vellinum. Mikilvægi hans fær mann stundum til að velta því fyrir sér hvað myndi gerast ef hann yrði frá í lengri tíma. Ekki það að ég haldi að allt myndi hrynja, held að liðið myndi alveg spjara sig, en ég tek undir með þeim sem segja að liðinu vanti annan leikmann eins Carrick, sérstaklega þar sem óvíst er hvort Fletcher nokkurn tímann komist aftur í sitt fyrra form.
Kannski að Ferguson kaupi bara Falcao í sumar og í kjölfarið færi RVP í sóknartengiliðinn, og svo Rooney aftur í varnartengiliðinn! Ha, ekki?