• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

United heimsækir Everton á sunnudaginn

Magnús Þór skrifaði þann 25. apríl, 2015 | 3 ummæli

Fregnir frá Þýskalandi segja að United sé að ná samkomulagi við Dortmund um kaup á Ilkay Gundogan

Everton

Heimamenn hafa verið duglegir að hala inn stig að undanförnu eða 13 stig í 5 leikjum. Fram að því var stigasöfnunin 28 stig í 28 leikjum sem er afleit tölfræði fyrir lið sem stefndi pottþétt að meistaradeildarsæti. Markaskorunin hefur dreifst nokkuð vel í síðustu leikjum en liðið er þó ekki að skora mikið af mörkum. Í síðustu 3 leikjum hafa þeir einungis skorað 1 mark í leik en þó hlotið 7 stig. Það segir manni að vörnin hjá þeim virðist vera farin að smella saman en rétt er samt að taka fram að í síðustu 3 leikjum hafa þeir mætt Southampton, Swansea og Burnley.

View image | gettyimages.com

Frá vegna meiðsla eru þeir: James McCarthy, Leon Osman, Darron Gibson, Bryan Oviedo og Tony Hibbert.

United

Liðið tapaði svekkjandi gegn Chelsea á Stamford Bridge eftir að hafa verið betri á öllum sviðum knattspyrnunnar. Þannig að maður var ekki fúll eftir leikinn heldur svekktur. United hafa verið að spila vel í langan tíma núna og ég tel engar líkur á öðru en að það haldi áfram á sunnudaginn.

Á blaðamannafundinum í dag kom fram eftirfarandi. Töluvert er um meiðsli hjá liðinu en þeir Daley Blind, Michael Carrick, Marcos Rojo, Phil Jones, Adnan Januzaj og Rafael. Af þessum er einungis búist við því að Blind gæti mögulega komið við sögu gegn Everton á meðan van Gaal staðfesti það að Rafael væri rifbeinsbrotinn og myndi ekkert vera með það sem eftir er leiktíðar. Leiða má líkur að því að hans framlagi til Manchester United sé lokið.

View image | gettyimages.com

Líkleg byrjunarlið

Everton spái ég svona:

24
Howard
3
Baines
6
Jagielka
26
Stones
23
Coleman
17
Bešić
18
Barry
22
Pienaar
20
Barkley
25
Lennon
10
Lukaku

United spái ég svona:

1
De Gea
3
Shaw
6
Evans
12
Smalling
25
Valencia
17
Blind
18
Young
31
Fellaini
21
Herrera
8
Mata
10
Rooney

Eldri leikskýrslur

05.10.2014 – Manchester United 2:1 Everton
20.04.2014 – Everton 2:0 Manchester United
04.12.2013 – Manchester United 0:1 Everton
10.02.2013 – Manchester United 2:0 Everton
20.08.2012 – Everton 1:0 Manchester United (Fyrsta leikskýrsla síðunnar)

Efnisorð: Everton Upphitun 3

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Audunn Sigurdsson says

    24. apríl, 2015 at 20:34

    Þetta gæti orðið snúinn leikur.
    Það er lykilatriði fyrir United að skora snemma í þessum leik því sjálfstraust Everton manna mun vaxa eftir því sem á leikinn líður ef United tekst ekki að skora.
    Ég ætla að lofa mér að vera bjartsýnn og spái 0-2.

    0
  2. 2

    Jón Þór Baldvinsson says

    25. apríl, 2015 at 21:25

    Spái 1-2, Everton skorar fyrst en svo fer United í gírinn og klárar þá.

    0
  3. 3

    Cantona no 7 says

    26. apríl, 2015 at 10:45

    Ég spái sigri okkar manna (get ekki annað) 1-2
    G G M U

    0

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Magnús Þór um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Arni um Manchester Utd 3:1 Fulham
  • Bjarni um Önnur ferð til Sevilla!
  • Egill um Real Betis 0:1 Manchester United
  • Helgi P um United 0 – 0 Southampton

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2023 · Keyrt á WordPress