• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

United verður að vinna í Norwich

Magnús Þór skrifaði þann 6. maí, 2016 | 3 ummæli

Norwich - Manchester UnitedEftir jafnteflið gegn Leicester City var stuðningsfólk Manchester United orðið ansi svartsýnt á að liðið næði í Meistaradeildarsæti. Sá leikur eins og margir í vetur bauð upp á svarta og hvíta frammistöðu. Fínni frammistöðu í fyrri hálfleiknum var fylgt á eftir með frekar dapurri. Maroune „Elbows McGee“ Fellaini tókst að láta dæma sig í bann í kjölfarið á nokkrum ágætum frammistöðum í undanförnum leikjum. En eftir mikla hjálp frá Southampton sem gerði sér lítið fyrir og valtaði yfir Manchester City þá er þetta allt í einu orðinn möguleiki aftur. Með sigri gegn Norwich þá myndi United vera 4 stigum á eftir Arsenal og 1 stigi á eftir City en þau eiga innbyrðisleik á sunnudaginn. Manchester City er orðið mjög tæpt á sætinu og mega alls ekki við að tapa gegn Arsenal og varla gera jafntefli því þá mun Evrópadeildarsætið blasa við. United gæti verið komið í bísna góða stöðu eftir helgina svo framarlega að liðið skili sínu. Svo væri mjög sætt að hefna fyrir tapið gegn Norwich á Old Trafford.

Embed from Getty Images

Norwich City er eitt að verri liðum deildarinnar þetta tímabilið og er liðið í blóðugri baráttu við Newcastle United og Sunderland um áframhaldandi þáttöku í efstu deild. Norwich mun vera án þeirra Timm Klose, Ryan Bennett, Andre Wisdom og Alexander Tettey. Liðið er eingöngu með 29% sigurhlutfall í heimaleikjum á tímabilinu og -5 í markahlutfalli í þeim leikjum.

Embed from Getty Images

Hjá Manchester United hefur Louis van Gaal nánast úr öllu liðinu að velja fyrir utan langtímameiðslapésana Bastian Schweinsteiger og Luke Shaw og Marouane Fellaini sem verður í banni fram að bikarúrslitaleiknum. David de Gea var á dögunum kjörinn leikmaður ársins hjá Manchester United, annað árið í röð og geta menn dregið sínar ályktanir af því. Cameron Bortwick-Jackson var valinn besti leikmaður U-21 og Marcus Rashford valinn besti leikmaður U-18. Einnig var mark Rashford gegn West Ham í FA-bikarnum valið mark ársins af lesendum manutd.com.

Embed from Getty Images

Ég spái svo liðinu á morgun svona:

1
De Gea
5
Rojo
17
Blind
12
Smalling
25
Valencia
16
Carrick
28
Schneiderlin
10
Rooney
9
Martial
35
Lingard
39
Rashford

Leikurinn hefst klukkan 11:45

Efnisorð: Arsenal David de Gea Leicester City Manchester City Marcus Rashford Marouane Fellaini Meistaradeild Norwich City Upphitun 3

Reader Interactions

Comments

  1. Auðunn says

    6. maí, 2016 at 21:37

    Ég er ekki bjartsýnn á það en ég vona svo innilega að Van Gaal poppi þetta aðeins upp og setji Martial framm, Rooney og Herrera fyrir aftan hann, Schneiderlin sem djúpan miðjumann, Valencia á hægri kantinn og Young eða Depay á þann vinstri.
    Mér finnst í góðu lagi að stilla upp sóknarliði og hvíla menn eins og Rashford og Lingard.

  2. Bjarki says

    7. maí, 2016 at 09:55

    Þið segið að leikurinn hefjist kl 14 en svo stendur uppi í horninu að hann hefjist kl 11 45…hvort er það?

  3. Magnús Þór says

    7. maí, 2016 at 13:46

    Misskilningi hjá pistlahöfundi var um að kenna.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress